Morgunblaðið - 06.12.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021
England
Burnley – Newcastle ............................... 1:0
- Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 81
mínútuna með Burnley.
West Ham – Chelsea................................ 3:2
Southampton – Brighton ......................... 1:1
Wolves – Liverpool................................... 0:1
Watford – Manchester City .................... 1:3
Leeds – Brentford.................................... 2:2
Manchester United – Crystal Palace ..... 1:0
Tottenham – Norwich .............................. 3:0
Aston Villa – Leicester ............................ 2:1
Staðan:
Manch. City 15 11 2 2 32:9 35
Liverpool 15 10 4 1 44:12 34
Chelsea 15 10 3 2 35:9 33
West Ham 15 8 3 4 28:19 27
Tottenham 14 8 1 5 16:17 25
Manch. Utd 15 7 3 5 25:24 24
Arsenal 14 7 2 5 17:20 23
Wolves 15 6 3 6 12:13 21
Brighton 15 4 8 3 14:16 20
Aston Villa 15 6 1 8 21:24 19
Leicester 15 5 4 6 23:27 19
Brentford 15 4 5 6 19:21 17
Crystal Palace 15 3 7 5 19:21 16
Leeds 15 3 7 5 15:22 16
Southampton 15 3 7 5 14:21 16
Everton 14 4 3 7 17:24 15
Watford 15 4 1 10 20:29 13
Burnley 14 1 7 6 14:21 10
Newcastle 15 1 7 7 17:30 10
Norwich City 15 2 4 9 8:31 10
Þýskaland
Bayern München – Leverkusen............. 7:1
- Glódís Perla Viggósdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Bayern á 66. mínútu, Karól-
ína Lea Vilhjálmsdóttir var ekki í hóp.
B-deild:
St. Pauli – Schalke................................... 2:1
- Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 73
mínúturnar með Schalke.
Ítalía
AC Milan – Inter Mílanó ......................... 0:3
- Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með
AC Milan.
- Anna Björk Kristjánsdóttir var ekki í
leikmannahóp Inter Mílanó.
B-deild:
Como – Pisa.............................................. 0:1
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Pisa.
Crotone – SPAL....................................... 1:2
- Mikael Egill Ellertsson kom inn á sem
varamaður hjá SPAL á 66. mínútu.
C-deild:
Ancona-Matelica – Siena ........................ 3:2
- Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn
með Siena og skoraði eitt mark.
Belgía
OH Leuven – Gent ................................... 0:1
- Rúnar Alex Rúnarsson varði mark OH
Leuven.
B-deild:
Lierse – Lommel...................................... 2:2
- Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 77 mín-
úturnar með Lommel og skoraði eitt mark.
Rúmenía
Chindia Targoviste – CFR Cluj ............. 0:1
- Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 61
mínútuna með CFR Cluj.
Danmörk
Bikarkeppnin 8-liða úrslit:
Randers – OB ........................................... 0:2
- Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn
með OB.
SönderjyskE – Hvidovre ........................ 1:0
- Kristófer Ingi Kristinsson lék allan leik-
inn með SönderjyskE.
B-deild:
Köge – Lyngby......................................... 3:3
- Sævar Atli Magnússon kom inn á sem
varamaður hjá Lyngby á 68. mínútu og
skoraði, Frederik Schram var ekki í hóp.
Freyr Alexandersson þjálfar liðið.
Bandaríkin
Úrslitaleikur Austurdeildar:
Philadelphia Union – New York City ... 1:2
- Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem
varamaður hjá New York á 58. mínútu og
lagði upp sigurmarkið.
Svíþjóð
Norrköping – Gautaborg ....................... 1:2
- Jóhannes Kristinn Bjarnason var ónot-
aður varamaður hjá Norrköping. Ari Freyr
Skúlason er frá keppni vegna meiðsla.
- Adam Ingi Benediktsson varði mark
Gautaborgar, Kolbeinn Sigþórsson var
ekki í hóp.
Noregur
Bodö/Glimt – Brann................................ 2:2
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Stabæk – Rosenborg ............................... 1:3
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Sandefjord – Kristiansund ..................... 3:2
- Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Sandefjord og skoraði.
- Brynjólfur Willumsson kom inn á sem
varamaður hjá Kristiansund á 66. mínútu.
Viking – Odd ............................................ 3:1
- Samúel Kári Friðjónsson kom inn á sem
varamaður hjá Viking á 11. mínútu og skor-
aði. Patrik Sigurður Gunnarsson varði
mark Viking.
50$99(/:+0$
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Aliyah Collier skoraði 21 stig og tók
sautján fráköst fyrir Njarðvík þegar
liðið vann 69:60-sigur gegn Val í
toppslag úrvalsdeildar kvenna í
körfuknattleik, Subway-deildarinnar,
í Origo-höllinni á Hlíðarenda í elleftu
umferð deildarinnar í gær.
Njarðvík byrjaði leikinn betur og
leiddi með ellefu stigum í hálfleik,
36:25. Njarðvíkingar voru með frum-
kvæðið í síðari hálfleik en Vals-
konum tókst að minnka forskot
þeirra í fjögur stig, 60:64, þegar ein
og hálf mínúta var til leiksloka.
Lengra komust Valsarar hins vegar
ekki og Njarðvík fagnaði sigri.
Lavína Gomes skoraði 15 stig fyr-
ir Njarðvík en Ameryst Alston var
stigahæst Valskvenna með 26 stig
og átta fráköst.
Njarðvík er með 18 stig í efsta
sæti deildarinnar en Valur er í
þriðja sætinu með 14 stig.
_ Þá hafði Grindavík betur gegn
Keflavík í Suðurnesjaslagnum í HS
Orku-höllinni í Grindavík, 84:72.
Mikið jafnræði var með liðunum
framan af og var staðan 37:36,
Keflavík í vil, í hálfleik. Grindavík
leiddi með fjórum stigum þegar
þrjár mínútur voru til leiksloka,
72:68, og Keflvíkingum tókst ekki að
snúa leiknum sér í vil á lokamín-
útunum.
Robbi Ryan átti enn einn stórleik-
inn fyrir Grindavík; skoraði 31 stig
og tók þrettán fráköst, en Daniela
Wallen var stigahæst í liði Keflavík-
ur með 27 stig og þrettán fráköst.
Grindavík er með 8 stig í sjötta
sætinu en Keflavík er í fjórða sætinu
með 12 stig.
_ Michaela Kelly átti sannkall-
aðan stórleik fyrir Breiðablik þegar
liðið vann sinn annan leik á tíma-
bilinu gegn Skallagrími í Smáranum
í Kópavogi.
Leiknum lauk með 81:74-sigri
Breiðabliks en Kelly var með þre-
falda tvennu; 20 stig, tíu fráköst og
tíu stoðsendingar.
Skallagrímur leiddi 23:19 eftir
fyrsta leikhluta en Breiðablik tókst
að snúa leiknum sér í vil í öðrum
leikhluta og var staðan 44:37,
Breiðabliki í vil, í hálfleik.
Breiðablik leiddi með níu stigum
eftir þriðja leikhluta og þrátt fyrir
hetjulega baráttu Skallagríms í
fjórða leikhluta dugði það ekki til.
Anna Soffía Lárusdóttir skoraði
18 stig fyrir Breiðablik en Maja Mic-
halska var stigahæst í liði Skalla-
gríms með 21 stig.
Breiðablik er með 4 stig í sjöunda
sætinu en Skallagrímur er án stiga í
neðsta sætinu.
_ Dagný Lísa Davíðsdóttir fór á
kostum fyrir Fjölni þegar liðið vann
öruggan átján stiga sigur gegn
Haukum í Dalhúsum í Grafarvogi.
Leiknum lauk með 77:59-sigri
Fjölnis en Dagný Lísa var stigahæst
í liði Fjölnis með 25 stig og þá tók
hún einnig 20 fráköst í leiknum.
Hafnfirðingar skoruðu einungis
átta stig gegn 24 stigum Fjölnis í
fyrsta leikhluta og eftir það var róð-
urinn þungur fyrir Hauka. Fjölnir
leiddi 39:25 í hálfleik og Haukum
tókst aldrei að snúa leiknum sér í vil
í síðari hálfleik.
Aliyah Mazyck skoraði 22 stig og
tók tíu fráköst fyrir Fjölni og Iva
Bosnjak skoraði 16 stig og tók fjór-
tán fráköst. Lovísa Björt Hennings-
dóttir var stigahæst Hauka með 16
stig og þær Haiden Palmer og Bríet
Sif Hinriksdóttir skoruðu 11 stig
hvor.
Fjölnir er með 16 stig í öðru sæt-
inu en Haukar eru með 8 stig í
fimmta sætinu.
- Fjölnir lagði Hauka í Grafarvogi
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Einvígi Valsarinn Ásta Júlía Grímsdóttir reynir að verjast Njarðvíkingnum
Aliyuh Collier á Hlíðarenda í gær en Collier skoraði 21 stig í leiknum.
Njarðvík vann toppslaginn
_ Knattspyrnukonan Colleen Kennedy
er gengin til liðs við FH og mun leika
með liðinu í 1. deildinni á komandi
keppnistímabili. Kennedy lék með Þór/
KA síðasta sumar þar sem hún skoraði
2 mörk í 18 leikjum með Akureyringum.
FH hafnaði í þriðja sæti 1. deildarinnar
síðasta sumar og rétt missti af sæti í
efstu deild.
_ Magdeburg er áfram með fullt hús
stiga eða 26 stig á toppi þýsku 1. deild-
arinnar í handknattleik eftir 29:25-sigur
gegn Lemgo í
Magdeburg í gær.
Ómar Ingi Magn-
ússon skoraði fjög-
ur mörk fyrir
Magdeburg, ásamt
því að gefa fimm
stoðsendingar og
Gísli Þorgeir Krist-
jánsson skoraði
tvö mörk og gaf einnig fimm stoðsend-
ingar hjá Magdeburg. Bjarki Már El-
ísson var næstmarkahæstur í liði
Lemgo með fimm mörk en liðið er með
13 stig í tíunda sætinu. Þá skoraði Elvar
Örn Jónsson fjögur mörk fyrir Melsun-
gen þegar liðið tapaði með þriggja
marka mun, 28:31, gegn Wetzlar í
Wetzlar. Arnar Freyr Arnarsson skoraði
þrjú mörk fyrir Melsungen og Alexand-
er Petersson eitt mark. Melsungen er
með 14 stig í níunda sætinu. Á laugar-
daginn mættust svo Bergischer og
Flensburg í Íslendingaslag í Wuppertal
þar sem Flensburg vann 29:24. Teitur
Örn Einarsson sloraði fjögur mörk fyrir
Flensburg sem er með 18 stig í fjórða
sætinu en Arnór Þór Gunnarsson skor-
aði þrjú mörk fyrir Bergischer sem er
með 10 stig í fjórtánda sætinu.
_ Knattspyrnukonan Sydney Carr hef-
ur skrifað undir samning við ÍBV og
mun hún leika með liðinu í úrvalsdeild
kvenna á komandi keppnistímabili. Sydn-
ey leikur með Seattle-háskólanum þar
sem hún hefur skorað 16 mörk í 16 leikj-
um á tímabilinu í efstu deild háskólabolt-
ans í Bandaríkj-
unum. ÍBV hafnaði í
sjöunda sæti úr-
valsdeildarinnar á
síðustu leiktíð.
_ Eva Margrét
Falsdóttir hafnaði í
þriðja sæti í 200 m
fjórsundi kvenna á
Norðurlandamótinu í sundi sem lauk í
Väsby í Svíþjóð í gær. Eva Margrét kom í
mark á tímanum 2:17,44 og bætti sinn
besta tíma um tæplega fimmtíu hundr-
aðshluta úr sekúndu. Ada Hakkarainen
frá Finnlandi hafnaði í öðru sæti á tím-
anum 2:17,42 og Karolin Victoria Kots-
ar frá Eistlandi fór með sigur af hólmi á
tímanum 2:16,99.
Eitt
ogannað
Elbert Matthews var hetja Grinda-
víkur þegar liðið vann dramatískan
92:88-sigur gegn Stjörnunni í úr-
valsdeild karla í körfuknattleik,
Subway-deildinni, í HS Orku-
höllinni í Grindavík í áttundu um-
ferð deildarinnar á laugardaginn.
Matthews skoraði 32 stig í leikn-
um en hann jafnaði metin fyrir
Grindavík í 88:88 þegar 27 sek-
úndur voru til leiksloka. Matthews
skoraði svo fjögur síðustu stig
Grindavíkur af vítalínunni.
Ólafur Ólafsson átti einnig frá-
bæran leik fyrir Grindavík og skor-
aði 27 stig en Shawn Hopkins var
stigahæstur Garðbæinga með 21
stig.
Þá var Hilmar Pétursson stiga-
hæstur Breiðabliks með 24 stig
þegar liðið vann 122:94-stórsigur
gegn Þór frá Akureyri í Smáranum
í Kópavoginum en með sigrinum
skaust Breiðablik upp úr fallsæti og
í það níunda. Þetta var jafnframt
annar sigur Blika á tímabilinu.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
24 Hilmar Pétursson fór mikinn fyrir Breiðablik gegn Þór frá Akureyri í
Smáranum og skoraði 24 stig, tók fjögur fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Ótrúlegur viðsnúningur
á síðustu sekúndunum
Mariam Eradze átti stórleik fyrir
topplið Val þegar liðið vann eins
marks sigur gegn HK í úrvalsdeild
kvenna í handknattleik, Olísdeild-
inni, í Origo-höllinni á Hlíðarenda í
níundu umferð deildarinnar á
laugardaginn.
Mariam skoraði átta mörk í leikn-
um sem lauk með 18:17-sigri Vals
sem er með 16 stig í efsta sæti deild-
arinnar.
Morgan Maria Þorkelsdóttir og
Auður Ester Gestsdóttir skoruðu
tvö mörk hvor í liði Vals en Elna
Ólöf Guðjónsdóttir og Jóhanna Mar-
grét Sigurðardóttir skoruðu þrjú
mörk hvor í liði HK.
_ Þá skoraði Karen Knútsdóttir
sex mörk fyrir Fram þegar liðið
vann tveggja marka sigur gegn
Hauka í Framhúsi í Safamýri, 24:22.
Staðan var jöfn í hálfleik, 14;14,
en Framarar eru með stigi minna en
Valur í öðru sætinu með 15 stig.
Ragnheiður Júlíusdóttir og Þórey
Rósa Stefánsdóttir skouðu fimm
mörk hvor fyrir Fram en Sara
Odden var markahæst í liði Hauka
með átta mörk.
_ Stjarnan vann svo öruggan sig-
ur gegn KA/Þór í frestuðum leik úr
annarri umferðinni í TM-höllinni í
Garðabæ þar sem Lena Margrét
Valdimarsdóttir skoraði átta mörk
fyrir Garðbæinga.
Leiknum lauk með 27:20-sigri
Stjörnunnar en Tinna Húnbjörg
Einarsdóttir átti stórleik í marki
Garðbæinga og varði 18 skot.
Elísabet Gunnarsdóttir skoraði
sjö mörk fyrir Stjörnuna sem var að
vinna sinn þriðja leik í deildinni á
tímabilinu en Unnur Ómarsdóttir
var markahæst í liði Íslands- og bik-
armeistaranna með sex mörk.
Fram og Valur að
stinga af á toppnum
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Markahæst HK-ingar réðu ekkert
við Mariam Eradze á Hlíðarenda.