Morgunblaðið - 15.12.2021, Page 4

Morgunblaðið - 15.12.2021, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 Söfnum í jólasjóðinn hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Jólasöfnun Guð blessi ykkur öll Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Fjórtán daga nýgengi kórónuveiru- smita innanlands hefur farið hækk- andi síðastliðna daga og því ljóst að yfirstandandi bylgja faraldursins er ekki á niðurleið eins og vonir stóðu til. Þetta sagði Þórólfur Guðna- son sóttvarna- læknir í samtali við Morgunblaðið í gær. Sérfræð- inganefnd Lyfja- stofnunar Evrópu (CHMP) um lyf fyrir menn sam- þykkti notkun bóluefnisins Comirnaty (Pfi- zer/BioNTech) hjá börnum á aldrin- um 5 til 11 ára þann 25. nóvember og á mánudag greindi Þórólfur frá því í samtali við mbl.is að börnum í ofan- greindum aldurshópi yrði boðin bólusetning hér á landi í janúar. Spurður segir hann afstöðu sína til bólusetninga barna í þessum aldurs- hópi hafa breyst með tilkomu Delta- afbrigðis veirunnar og nú hins nýja Ómíkron-afbrigðis, sem virðist smita meira en en fyrri afbrigði veirunnar, og með samþykki CHMP á notkun bóluefnisins Comirnaty hjá þessum börnum. „Það verður að horfa á þetta í því ljósi að fyrri afbrigði veirunnar sem við vorum að eiga við voru ekki að valda miklu smiti hjá börnum,“ segir hann. „Börn eru að smitast miklu, miklu meira af Delta-afbrigðinu sem við erum að eiga við núna. Við erum með upplýsingar frá útlöndum sem sýna hversu alvarlega þau geta veikst af veirunni.“ Í samantekt Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDCI) frá 1. desember sl., sem birt var á covid.is í vikunni, kemur fram að 0,6% barna á aldrinum 5-11 ára sem smitast af Covid-19 þurfi á spítalainnlögn að halda, 10% þeirra þurfi að leggjast inn á gjörgæslu og 0,006% smitaðra barna hafi látist. „Ef við yfirfærum þessar tölur á okkar hóp, sem telur um 32.000 börn og þau mundu öll smitast af Covid-19, þyrftu um 150 þeirra á spítalainnlögn að halda, þar af þyrftu 15 þeirra að leggjast inn á gjör- gæsludeild og 1-2 börn myndu lát- ast,“ segir Þórólfur. „Þannig að börn geta veikst alvarlega þó það sé ekki eins algengt og hjá fullorðnum og því fyllsta ástæða til að bjóða þeim bólu- setningu til að koma í veg fyrir það.“ Þá segir hann ekki síður mikil- vægt að reyna að draga úr þeirri miklu truflun sem veiran veldur á daglegu lífi barna og foreldra þeirra sem lenda gjarnan í sóttkví eða í ein- angrun þegar börnin smitast. „Menn hafa mikið talað um að þeir hafi áhyggjur af andlegri heilsu barna sem þurfa að vera í einangrun eða sóttkví. Virki bólusetningin jafn vel og rannsóknir benda til ætti hún að koma í veg fyrir þessa truflun líka.“ Aðspurður segir Þórólfur mögu- legar aukaverkanir af bólusetning- um barna lítið hafa verið rannsak- aðar enda séu bóluefnin tiltölulega nýtilkomin og fá börn hafi enn verið bólusett. „Ég bendi þó á niðurstöður upp- gjörs sem Lyfjastofnun og Embætti landlæknis stóðu fyrir þar sem trufl- un á tíðarhring kvenna var til skoð- unar en samkvæmt þeim niðurstöð- um var einungis í örfáum tilvikum talið að bólusetningin væri orsökin.“ Það sé þó vitað að 30-50% þeirra sem smitast af Covid-19 glími við al- varlegar aukaverkanir vegna sýk- ingarinnar til lengri tíma og því séu ókostirnir við að smitast langtum fleiri en ókostirnir við bólusetningu, að sögn Þórólfs. „Eins og staðan er núna og miðað við þær upplýsingar sem við höfum er ólíku saman að jafna um auka- verkanir af bólusetningunni og auka- verkanir af Covid-19,“ segir hann. „Við vitum ekki hvernig staðan verð- ur eftir tvö ár, þegar menn gera upp bæði afleiðingar af Covid-sýkingum og svo hugsanlegum afleiðingum af bólusetningum, en ef við ætlum að bíða með að bólusetja núna þá gæt- um við misst af lestinni og staðið frammi fyrir því að fleira fólk fái Covid.“ Veik rök væru fyrir því að ráðast í útbreiddar bólusetningar gegn veir- unni í aldurshópnum 5-11 ára, væru börn í þeim hópi ekki að smitast jafn mikið og þau gera núna, segir Þór- ólfur, inntur eftir því. Tenglar á fleiri rannsóknir um áhrif Covid á börn eru á www.co- vid.is//fra-sottvarnalaekni. Ávinningurinn meiri en áhættan - Sóttvarnalæknir segir afstöðu sína til bólusetninga barna hafa breyst með tilkomu nýs afbrigðis - Ávinningurinn af þeim sé líklega meiri en áhættan þótt aukaverkanir hafi lítið verið rannsakaðar 175 150 125 100 75 50 25 0 165 ný innanlands- smit greindust sl. sólarhring Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí 1.390 erumeð virkt smit og í einangrun2.442 einstaklingar eru í sóttkví 14 einstaklingar eruásjúkrahúsi, þarafþrírágjörgæslu 36hafa látist, þar af einn einstaklingur sl. föstudag Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra á LSH með Covid-19 smit 154 32 14 H ei m ild : co vi d .is júlí ágúst september október nóvember des. 165 129 Þórólfur Guðnason Framkvæmd bólusetningar barna við Covid-19 er nú í undirbúningi um allt land eftir að ákvörðun sótt- varnalæknis um bólusetningar barna á aldrinum 5-11 ára var kynnt í fyrradag. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæð- inu hefur þegar sett fram áætlun sína um framkvæmd. Þar segir að bólusetningar barnanna muni fara fram í skólum þeirra vikuna 10. til 14. janúar og boð verði send á for- eldra í vikunni á undan. Þá segir í áætluninni að skólahjúkrunarfræð- ingar verði í lykilhlutverki við skipu- lag innan hvers skóla en einnig sé gert ráð fyrir lækni og sjúkraflutn- ingamanni á staðnum. Fá strikamerki Lögheimilisforeldrum verður boð- ið að skrá barn sitt í bólusetningu, skrá aðra sem heimilt er að fylgja barni í bólusetningu eða hafna/bíða með bólusetningu barns. Með skrán- ingu barns í bólusetningu verður strikamerki sent á lögheimilis- foreldri. Gert er ráð fyrir að bólu- setningardagur verði stuttur vinnu- dagur barnanna í skólanum þar sem yngstu börnin mæta fyrst. Fyrirkomulag bólusetninga elstu barna í leikskóla, sem náð hafa til- skildum aldri, verður kynnt síðar. karitas@mbl.is Bólusetning barna í þriðju viku ársins - HH langt komin með skipulag AFP Bóluefni Börnum á aldrinum 5-11 býðst bráðlega bólusetning. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Slysavarnafélagið Landsbjörg hóf nýverið að selja svissnesk úr til að afla fjár fyrir starfsemi félagsins. Sala úranna bætist því við sölu á flugeldum og sölu á Neyðarkallinum hjá Landsbjörg. Á heimasíðu Landsbjargar segir að úrin, sem framleidd eru af Luminox, henti fyrir krefjandi ís- lenskar að- stæður, dag sem nótt, enda búi þau yfir sérstakri nano-tækni sem geri þeim kleift að lýsa í myrkri. Úrin kosta frá 69.000 krónum og upp í 104.000 krónur. Kristján Þór Harðarson, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að úrin séu framleidd fyrir erfiðar aðstæður. Merki Landsbjargar er á úrunum. „Þetta eru falleg úr og það er alltaf einhver áhugi á þeim. Við erum ekki að selja þau í bílförmum en það hafa margir áhuga enda eru þetta góð úr og vönduð.“ Undirbúningur stendur nú yfir fyrir flugeldasölu björg- unarsveita og mót- ast hann nokkuð af áhrifum alheims- faraldurs kórónu- veiru. Flutningar milli landa, einkum og sér í lagi frá Kína, hafa reynst tor- veldari en áður og beita hefur þurft kænsku til að allt gengi upp. „Okkur hefur tekist með hjálp góðra manna og fyrir- tækja að ná inn því sem við pöntuðum. Síðustu gámarnir koma í næstu viku,“ segir Krist- ján. Flugeldarnir koma nokkuð seinna til landsins í ár en alla jafna og því er minni tími til undirbún- ings en ella. „Nú er allt á út- opnu og verið að vinna við pökkun og undirbúning. Það verður nóg að gera í næstu viku og síðustu dagana fyrir gamlárs- kvöld. Þau eru nokkuð mörg handtökin sem eru eftir,“ segir Kristján sem kveðst þó vera bjart- sýnn á að allt gangi upp. Hann segir aðspurður að svipað magn flugelda sé flutt inn og áður, aðeins meira í ár en í fyrra en meira hafi verið keypt inn á árum áður. Sölutímabilið var enda stytt og er nú síðustu þrír dag- arnir fyrir áramót. Ekki þarf að óttast miklar verð- hækkanir á flugeldum að sögn Krist- jáns þó kostnaður hafi aukist. „Gengið var hagstæðara og það vó upp á móti tugprósenta hækkunum á flutningskostnaði. Í heildina erum við bara mjög ánægð með það hvernig til tókst. Verðhækkanir verða vel innan við tíu prósent, ætli þær verði nema um fimm prósent.“ Svissnesk úr bætast við fjáröflun Landsbjargar - Flugeldarnir seint á ferð í ár - Verð hækkar um 5-10% Kristján Þór Harðarson Morgunblaðið/Árni Sæberg Áramót Margir fá fiðring í magann þegar flugeldasala hefst. Gæði Lum- inox-úrin kosta allt að 104.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.