Morgunblaðið - 15.12.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.12.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 Verði tekjur af samkeppnis- rekstri, eins og þær eru kall- aðar í reikningum Ríkisútvarps- ins, svipaðar á næsta ári og verið hefur á liðnum árum, um tveir milljarðar króna, fara heildar- tekjur ríkismiðilsins yfir sjö millj- arða króna í fyrsta sinn. Ástæðan er sú að í fjárlaga- frumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að útvarps- gjaldið hækki verulega, um 430 milljónir króna, og verði nær 5,1 milljarður. Útvarpsstjóri skýrir þetta með því að Ríkisútvarpið hafi þurft að taka á sig tekjulækkun á þessu ári og það gangi að hluta til baka á því næsta. - - - Frá sjónarhóli skattgreiðenda horfir málið dálítið öðruvísi við. Þeir horfa upp á það að greiðslur þeirra til Rúv. hækki um nær 1,3 milljarða króna, eða ríflega þriðjung, frá árinu 2016 til 2022. Á sama tíma hækkar vísitala neysluverðs um það bil um fimmtung. Rúv. hefur þannig fengið mun meira í sinn hlut en sem nemur verðlagsþróun, sé lit- ið nokkur ár aftur í tímann. - - - Við þessar tekjur hafa svo bæst um tveir milljarðar árlega sem teljast til tekna af samkeppn- isrekstri, sem eru fyrst og fremst auglýsingatekjur. Þær tekjur eru teknar af samkeppnismarkaði, það er að segja frá öðrum sem bjóða auglýsingabirtingar, fyrst og fremst af fjölmiðlum í einka- eigu. - - - Er ekki orðið tímabært að gera Rúv. að hagræða í rekstri og hlífa annaðhvort skatt- greiðendum við stöðugum hækk- unum útvarpsgjalds eða einka- reknum fjölmiðlum við samkeppni Rúv? Digrir sjóðir Rúv. STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sauðárkrókur | Sveitarfélagið Skagafjörður tók í gær formlega á móti nýjum dráttarbáti fyrir Sauðárkrókshöfn. Báturinn var keyptur í Skotlandi og kom til hafn- ar í lok nóvember sl. Hann er 20 metra langur og sjö metra breiður, búinn tveimur Caterpillar-vélum sem gefa honum 28 tonna togkraft. Við athöfnina í gær blessaði sr. Sigríður Gunnarsdóttir bátinn og bað honum og áhöfn hans alls vel- farnaðar. Ingibjörg Huld Þórðar- dóttir, formaður hafnarstjórnar, gaf fleyinu nafnið Grettir sterki, með hefðbundinni aðferð. Að sögn hafnarstarfsmanna hefur báturinn verið reyndur og gefist vel og segja þeir að um verulegt örygg- isatriði sé að ræða þar sem aftur hef- ur fjölgað komum stórra flutninga- og fiskiskipa í höfnina. Grettir sterki í Sauðárkrókshöfn Morgunblaðið/Björn Björnsson Dráttarbátur Ingibjörg Huld gaf bátnum nafnið Grettir sterki. Björgvin Friðgeir Magnússon lést aðfara- nótt mánudagsins 13. desember, 98 ára að aldri. Björgvin fæddist í Reykjavík 29. sept- ember, sonur hjónanna Magnúsar Guðbjörns- sonar póstfulltrúa og Guðbjargar Sigur- veigar Magnúsdóttur húsfreyju. Móðir Björgvins lést þegar hann var fjögurra ára og hann ólst upp hjá afa sínum og ömmu, Magnúsi Vig- fússyni og Sólveigu Jónsdóttir á Kirkjubóli við Laugarnesveg. Björgvin lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1942, stúdentsprófi frá MR 1946, embætt- isprófi í guðfræði frá HÍ, gerðist kaþólskur, var vígður djákni árið 1953 og var djákni í Hafnarfirði í átta ár hjá Kaþólsku kirkjunni. Hann lauk kennaraprófi frá Kenn- araskóla Íslands og prófi í náms- ráðgjöf frá San Francico-háskóla. Björgvin kenndi við Gagnfræða- skóla Reykjavíkur 1946-55, var skólastjóri heimavistarskólans á Jaðri 1955-74, yfirkennari Vörðu- skóla 1974-77 og kennari við Öldu- selsskóla 1977-86. Eft- ir að Björgvin hætti að sinna skólamálum varð hann fjármálastjóri og umsjónarmaður hús- næðis Þjóðskjalasafns- ins. Þaðan fór hann til Viðlagatryggingar Ís- lands. Björgvin gekk ung- ur í skátahreyfinguna, sá um sumarbúðir fyr- ir drengi, var sendur af Bandalagi íslenskra skáta í Gilwell-þjálfun á Gilwell Park utan við London, var skólastjóri Skátaskól- ans á Úlfljótsvatni um langt árabil frá 1947 en 1959 fékk hann leyfi til að vera í forsvari fyrir Gilwell-skáta í Íslandi. Hann var einnig virkur fé- lagi í Oddfellow-reglunni í 70 ár. Björgvin var sæmdur hinni ís- lensku fálkaorðu fyrir störf að upp- eldis- og skólamálum og var sæmdur Silfurúlfinum, æðsta heiðursmerki skáta, árið 1991 og 70 ára fornliða- merki Oddfellow-reglunnar. Eiginkona Björgvins var Margrét Kristinsdóttir, sjúkraliði og nuddari. Þau skildu. Dóttir þeirra er Edda leikari. Sambýliskona Björgvins var Sigrún Sigurjónsdóttir, hún lést 2011. Andlát Björgvin Friðgeir Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.