Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 9
DAGMÁL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Hildur Björnsdóttir segist ekki vera
að bjóða sig fram á móti Eyþóri Arn-
alds með því að sækjast eftir efsta
sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík í komandi borgarstjórnarkosn-
ingum. „Við Eyþór erum fínir fé-
lagar,“ segir hún og kveðst hafa sagt
honum frá fyrirætlan sinni áður en
hún tilkynnti framboð sitt, hún vildi
að hann heyrði það frá sér.
„Ég lít ekki svo á að ég sé að hjóla
í Eyþór, ég er bara að bjóða mig
fram til forystu. Hann gerir það líka
og svo gefst kjósendum kostur á að
velja á milli,“ segir Hildur og kveðst
eiga von á drengilegri, heiðarlegri
og málefnalegri baráttu.
Hún á von á því að sjálfstæðis-
menn í Reykjavík velji í efstu sæti
lista síns með almennu prófkjöri,
sem sennilega verði haldið hinn 26.
febrúar á komandi ári, þótt ekki sé
það frágengið enn.
Góð reynsla af prófkjörum
„Ég held að reynslan af próf-
kjörum til þingsins, þar sem 20 þús-
und sjálfstæðismenn alls staðar að
af landinu komu og völdu fólk á lista,
hafi verið gríðarlega sterk. Það var
ánægja með þetta fyrirkomulag og
engin ástæða til annars en að halda
áfram með það inn í sveitarstjórn-
arkosningar.“
Markmið Hildar er þó ekki það
eitt að komast í efsta sæti listans,
hún vill verða borgarstjóri.
„Þetta hefur verið eyðimerkur-
ganga hjá okkur um 27 ára skeið og
ég ætla að binda enda á hana.“
Hildur segir að borgarpólitíkin
hafi verið of undirlögð af menningar-
stríði, pólitískri umræðu í skot-
gröfum.
„Við sjáum það að meirihluta-
flokkarnir – og Viðreisn gengur inn í
það og tekur þátt í því – hafa svolítið
öfgafulla stefnu, t.d. í skipulags-
málum, þau vilja ganga svakalega
langt og skipa fólki í fylkingar. Sum-
ir líta svo á að eina svarið við þessu
sé að fara í öfgarnar alveg í hina átt-
ina.
Þetta á ég erfitt með að skilja af
því að mín pólitík og trú á frelsið fer
ekki saman við þetta,“ segir Hildur.
„Mér finnst stórkostlegt ef við
getum þróað borg sem er fjölbreytt.
Mér finnst stórkostlegt ef borgar-
hverfin fá að þróast sjálfstætt, þann-
ig að þau séu fjölbreytt.
Það á ekki að vera neitt hættulegt
að borgarhverfin í Reykjavík fái að
vera svona ólík, því að það fjölgar
valkostunum fyrir fólk
Það hefur stundum gerst í þessari
umræðu að meirihlutaflokkarnir
vilja ráðast að fólki, sem velur að
búa í úthverfi eða þarf nauðsynlega
að nota bíl í sínu daglega amstri.
Mér hefur stundum þótt sem fólki
þyki eina svarið við þessum öfgafulla
málflutningi vera að láta fólk sem
vill hjóla leiðar sinnar eða drekka
latte fara í taugarnar á sér. Eigum
við ekki bara öll að fá að vera eins og
við erum? Við sem trúum á frelsið
vitum að ein grunnforsenda frels-
isins er umburðarlyndið og við þurf-
um að geta sýnt valkostum annarra
umburðarlyndi. Ég vil bara fjöl-
breytta borg fyrir fjölbreytt fólk,
þar sem allir geta valið sinn lífsstíl
eftir eigin höfði og við látum það
bara í friði.“
Borgarlínan þarf betri útfærslu
Borgarlínan er eitt helsta deilu-
efnið í borgarmálunum og þar hafa
sjálfstæðismenn ekki verið fyllilega
samstiga. Hildur segir að þar verði
að gera greinarmun á samgöngu-
sáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem
hún kveðst styðja, og þeirri útfærslu
sem Reykjavíkurborg hefur sett
fram um borgarlínuna. Hún telur
hana að mörgu leyti ófullkomna og
erfitt að mynda sér skoðun um hana
meðan svo er.
„Ég skil mjög vel að fólk sé
áhyggjufullt um borgarlínuna,“ seg-
ir hún og telur að einmitt þess vegna
þurfi sjálfstæðismenn að koma að
málum. „Þessar útfærslur eru ekki í
samgöngusáttmálanum, þetta eru
útfærslur Reykjavíkurborgar, þetta
eru útfærslur núverandi meirihluta.
Borgarlínan þarf ekki að vera þann-
ig úr garði gerð að hún taki akreinar
frá öðrum farkostum. Ég vil ekki að
hún sé árás á aðra fararmáta. Það
hafa verið útfærslur þessa meiri-
hluta, það eru ekki útfærslur í sam-
göngusáttmálanum, sem ég styð.“
Nauðsynlegt sé að skoða fleiri
lausnir en Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri hafi lagt fram, fara
verði vel með opinbert fé og lausnin
þurfi að vera hagkvæm og skilvirk.
Hún tekur hins vegar undir að sam-
göngusáttmálinn kunni að vera í
uppnámi vegna vanefnda. „Reykja-
víkurborg er að draga lappirnar.“
Virkar Reykjavík ekki?
„Nei, mér finnst hún ekki virka og
um það má nefna fjölmörg dæmi,“
segir Hildur og tínir til samgöngu-
málin, húsnæðismál, leikskóla,
grunnskóla … „Kerfið virkar ekki
fyrir atvinnurekendur og fjármálin
virka ekki. Fyrir ótrúlega marga
virkar borgin ekki. Þess vegna
sjáum við fyrirtæki og fjölskyldur
fara annað.“
Það segir hún erindi sitt og ástæð-
una fyrir því að hún vilji verða borg-
arstjóri. „Ég er ekki að segja að það
verði einfalt, en það þarf að leysa
þessi mál.“
Skiptir öllu máli að vera númer eitt
Morgunblaðið/Hallur
Reykjavík Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi er gestur Dagmála í dag.
- Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi í viðtali - Væntir heiðarlegrar baráttu í prófkjöri í lok febrúar
- Reykjavík virkar ekki fyrir ótrúlega marga - Kveðst vilja fjölbreytta borg fyrir fjölbreytt fólk
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
25
ára
1996-2021
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nýja Fossvogsbrúin mun hafa áhrif
á starfsemi Siglingaklúbbsins Siglu-
ness og Siglingafélags Reykjavíkur
– Brokeyjar í Nauthólsvík. Eins mun
þurfa að flytja skeljasand á Yl-
ströndina landleiðina í framtíðinni.
Lokast út á Skerjafjörð
Nýja brúin breytir í raun litlu fyr-
ir Siglingaklúbbinn Siglunes að sögn
Óttars Hrafnkelssonar, forstöðu-
manns klúbbsins sem hefur aðstöðu í
Nauthólsvík. Siglunes er í eigu
Reykjavíkurborgar og heldur sigl-
inganámskeið fyrir 9-12 ára börn og
siglingaklúbb fyrir 10-16 ára börn og
unglinga á sumrin.
„Við erum mikið á Nauthólsvík-
inni og Fossvoginum framan við að-
stöðu okkar. Við höfum líka siglt út á
Skerjafjörðinn,“ segir Óttarr. Hann
segir að minnstu seglbátarnir muni
geta siglt undir brúna á fjöru en ekki
þegar hærra er í sjó. Siglingasvæði
Sigluness mun því ninnka.
Óttarr segir Fossvog og Nauthóls-
vík ákjósanleg svæði fyrir byrjendur
til að æfa siglingar því þar myndast
ekki stórar öldur þótt hann blási.
Eftir því sem færnin eykst vilji sigl-
ararnir þó takast á við meira krefj-
andi aðstæður.
Brokey þarf nýtt svæði
„Við börðumst mikið á móti þess-
ari brú en sáum fljótt að það þýddi
ekki neitt,“ segir Ólafur Már Ólafs-
son, formaður Siglingafélags
Reykjavíkur – Brokeyjar. Félagið er
með aðstöðu fyrir kænusiglingar í
Nauthólsvík, innan við væntanlega
brú. Kænunámskeið og kænuæfing-
ar eru þar á hverju sumri, aðallega
fyrir börn og yngra fólk. Starfsemin
verður óbreytt næsta sumar. „Við
sáum hag okkar í að fara í viðræður
við Reykjavíkurborg um að koma
okkur fyrir utan við brúna, í stað
þess að slást á móti þessu,“ segir
Ólafur. Hann minnir á að verið sé að
kynna frummatsskýrslu um landfyll-
ingu í Nýja Skerjafirði. Mögulega
geti þar skapast aðstaða fyrir sigl-
ingar á Skerjafirði.
Brokeyjarmenn hafa haft nokkrar
áhyggjur af neyðarlúgu í fráveitu-
kerfinu utan við Skeljanes í firðin-
um. Hún opnast þegar fráveitukerfið
hefur ekki undan og ómeðhöndlað
skólp fer þá í sjóinn. Ólafur sagði
óþægilegt fyrir siglarana að vera of
nærri yfirfallinu þegar það er opið.
„Óþynnt skólpið er heilsuspillandi og
getur valdið útbrotum og öðru. Þetta
getur verið slæmt,“ segir Ólafur.
Hann segir gott ef sett væri upp við-
vörunarljós eða einhver merki gefin
þegar lúgan er opin.
Ekki lengur skipgengt
Sanddæluskip Björgunar flutti á
sínum tíma fyllingarefni og skelja-
sand vegna Ylstrandarinnar í Naut-
hólsvík. Ljóst er að stór sanddælu-
skip komast ekki lengur inn á
Fossvog eftir að brúin kemur.
Eysteinn Dofrason, verkefnastjóri
hjá Björgun, segir þetta minnsta
áhyggjuefni í heimi. Vanti skelja-
sand í Nauthólsvík sé hægt að koma
honum þangað með flutningabílum.
Nýja brúin mun
þrengja að siglingum
- Tveir siglingaklúbbar eru með aðstöðu við Nauthólsvík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nauthólsvík Sanddæluskipið Sóley kom með fyllingarefni og skeljasand í
Ylströndina 2014. Ekki verður skipgengt þar inn þegar nýja brúin er komin.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Námskeið Siglunes og Brokey
kenna siglingar í Nauthólsvík.