Morgunblaðið - 15.12.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Til jóla
fyrir dömur og herra
Ilmir • Gjafakassar • Blússur
Peysur • Bolir • Buxur
Silkislæður • Hanskar
Töskur • Skart
Herra- og dömutreflar
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Þrátt fyrir 1.255 vísbendingar og
skýrslugjöf 250 vitna stendur lög-
reglan í Toronto í kanadíska fylkinu
Ontario ráðþrota gagnvart ráðgát-
unni um hver myrti Barry og Honey
Sherman, hjón á áttræðisaldri og
þekkta milljarðamæringa í Toronto,
á heimili þeirra, líklega að kvöldi 13.
desember 2017, fyrir réttum fjórum
árum.
Engin merki um innbrot
Barry Sherman komst í miklar
álnir sem stofnandi samheitalyfja-
framleiðandans Apotex og þau hjón-
in voru kunn að góðgerðarstarfsemi
sinni, sem meðal annars fólst í veg-
legum fjárframlögum þeirra til
sjúkrahúsa, háskóla og stofnana í
eigu gyðinga. Þau fundust fullklædd
við innisundlaug á heimili sínu 15.
desember 2017 og var dánarorsök
beggja kyrking með einhvers konar
áhaldi. Engin merki var að finna um
innbrot eða átök.
Síðasta hálmstrá lögreglunnar í
rannsókn málsins er myndskeið úr
öryggismyndavél skammt frá heimili
Sherman-hjónanna, sem sýnir per-
sónu á gangi um snæviþakið hverfið
að kvöldi 13. desember og hefur lög-
reglan lýst því yfir að þessi vegfar-
andi, hver sem hann eða hún er, sé
grunaður um víg hjónanna. Einfald-
lega vegna þess að þar sé komin eina
manneskjan, sem sést á upptökum á
svæðinu, sem lögreglu hefur ekki
tekist að bera kennsl á.
„Þessi einstaklingur kemur inn á
mjög afmarkað svæði, er þar um
stund og fer svo aftur,“ sagði Brand-
on Price, stjórnandi rannsóknarinn-
ar, við kanadíska fjölmiðla í gær.
Lögreglu hefði ekki tekist að varpa
ljósi á hvaða erindi grunaði, eða
grunaða, hefði átt í hverfið auk þess
sem ferðalag viðkomandi hefði verið
„mjög grunsamlegt“.
Milljarður í boði
Ekki er þó á vísan að róa þar sem
ómögulegt er að greina kyn, aldur,
þyngd eða hörundslit af myndinni,
lögregla kveðst ekki hafa annað að
styðjast við en að þarna gangi ein-
hver, sem er 168 til 175 sentimetrar
á hæð með einkennandi göngulag.
Aðstandendur hjónanna eru allt
annað en ánægðir með að lögregla
hafi ekkert annað að hengja hatt
sinn á eftir fjögurra ára rannsókn en
óljósa mynd úr öryggismyndavél,
sem sýnir manneskju á gangi að
kvöldlagi í íbúðahverfi. Árið 2018
létu aðstandendurnir þau boð út
ganga að tíu milljónir kanadískra
dala, nánast sléttur milljarður ís-
lenskra króna, skyldi falla hverjum
þeim í skaut er veitt gæti þær upp-
lýsingar sem leiddu til handtöku og
sakfellingar í máli Sherman-
hjónanna. Staðfesti lögregla í gær að
þessi fundarlaun stæðu enn til boða.
Ljósmynd/Lögreglan í Toronto
Lokamöguleiki Eini vegfarandinn sem lögreglan hefur ekki getað útilokað.
250 vitni dugðu ekki til
- Lögreglan í Toronto í blindgötu eftir víg hjóna á áttræðisaldri - Kyrkt á heimili
sínu í desember 2017 - Síðasta hálmstráið myndskeið af manneskju á gangstétt
Áhöfn dönsku freigátunnar Esbern
Snare skildi ef til vill milli feigs og
ófeigs í kjölfar þess er henni bárust í
fyrradag upplýsingar um að hugsan-
lega væri sjóræningjafar á ferð um al-
þjóðlegt hafsvæði nálægt eynni
Bioko, sem tilheyrir Afríkuríkinu
Miðbaugs-Gíneu á vesturströnd Afr-
íku.
Tók Esbern Snare stefnuna á vett-
vang á meðan áhöfnin gerði árangurs-
lausar tilraunir til að ná sambandi við
önnur skip á svæðinu, sem hugsan-
lega gætu legið vel við höggi sjóræn-
ingja. Seahawk-þyrla hóf sig í fram-
haldinu á loft frá dönsku freigátunni
til að kanna aðstæður.
Gámaskip í nauðum statt
Þegar þyrluáhöfnin nálgaðist
áfangastað barst henni neyðarkall frá
gámaflutningaskipi, sem statt var þar
á svæðinu, og er að var komið reynd-
ist sjóræningjafley liggja við síðu
þess. Ræningjarnir lögðu þegar á
flótta og köstuðu ýmsu lauslegu út-
byrðis til að komast hraðar yfir. Um
borð hjá þeim var fólk, sem augljós-
lega var haldið í gíslingu, og hélt
þyrluáhöfnin hæfilegri fjarlægð til að
stofna því ekki í hættu.
Hvarf þyrlan að lokum til Esbern
Snare á ný, en freigátunni er ekki
heimilt að veita sjóræningjum eftirför
á alþjóðlegu hafsvæði. Maður í áhöfn
gámaskipsins reyndist hafa orðið fyr-
ir skoti og var særður á fæti. Var
hann fluttur yfir í dönsku freigátuna
þar sem hann komst undir læknis-
hendur auk þess sem mannskapur af
Esbern Snare fór um borð í skipið til
að aðstoða við leit að tveimur úr
áhöfn, sem saknað var eftir árásina,
og voru þeir enn ófundnir í gærmorg-
un.
Stökktu sjóræn-
ingjum á flótta
- Danir til bjargar við strendur Afríku
AFP
Freigátan Esbern Snare á æfingu
með norska sjóhernum árið 2014.
Lögregla og björgunarsveitir í
Vestur-Noregi höfðu í nógu að snú-
ast í gær þegar gjörningaveður
gerði í strandfylkjunum eins og
gjarnan um þetta leyti árs. Féll
skriða á E16-veginn svo loka þurfti
honum, áður hafði þó vörubifreið
ekið upp á stóreflis grjót sem festist
undir henni. Gangandi vegfarandi
og annar á rafhlaupahjóli urðu fyr-
ir bíl nánast á sömu mínútu í Berg-
en og franskur ferðamaður lenti í
ógöngum við útsýnisstaðinn Troll-
tunga við Harðangursfjörðinn en
komst í neyðarskýli. Hafði hann
slegist í för með þýskum og amer-
ískum ferðamönnum en týnt þeim
og leituðu björgunarsveitir þeirra
enn í gærkvöldi.
NOREGUR
Ljósmynd/Norski Rauði krossinn
Björgunarsveitir á leið til leitar í gær.
Ákeyrslur, skriður
og týndir ferðamenn
Frönsk yfirvöld
hafa borið kennsl
á 26 af 27 líkum
flóttamanna sem
drukknuðu á
Ermarsundi 24.
nóvember þegar
gúmmíbátur
þeirra sökk.
Meðal fórn-
arlambanna voru
16 íraskir Kúrdar, þar á meðal
tveir vinir frá sama bænum í Írak,
þeir Rezhwan Hassan og Afrasia
Mohammed. Ræddi breska rík-
isútvarpið BBC við fjölskyldur
þeirra og kveðst Dahin Hama,
frændi Hassans, hafa reynt að telja
honum hughvarf. „Hann sagðist
ekki geta búið hér, ekkert líf væri
eftir til að lifa hérna,“ sagði Hama
um frænda sinn, sem var trésmiður
og dreymdi um betra líf á Englandi.
FRAKKLAND
„Ekkert líf væri eftir
til að lifa hérna“
Rezhwan Hassan
Alþjóðaveðurfræðistofnunin,
WMO, hefur staðfest að 38 stiga
hiti, sem mældist í rússneska
bænum Verkhoyansk í Jakútíu,
stærsta héraði Rússlands, 20. júní
í fyrra sé hæsta hitastig, sem
nokkru sinni hefur mælst norðan
heimskautsbaugs. Verkhoyansk,
sem er 115 kílómetra norðan
baugsins, er fjórði minnsti bær
Rússlands með sína 1.311 íbúa.
WMO greindi frá þessari niður-
stöðu sinni í gær auk þess sem
forstjóri stofnunarinnar, Petteri
Taalas, kvað óvenjuháar hitatölur
sums staðar í heiminum hringja
viðvörunarbjöllum um hækkandi
hitastig á jörðinni. Nefndi Taalas
þar sérstaklega tölur, sem stofn-
unin ynni nú að því að staðfesta,
54,4 stiga hita í Dauðadal í Kali-
forníu í fyrra og nú í ár, ásamt
48,8 gráðum á Sikiley í sumar,
sem, fáist mælingin staðfest, er
hæsta hitastig sem mælst hefur í
Evrópu.
Stofna nýjan flokk rannsókna
„Skráningardeild veðuröfga hjá
WMO hefur aldrei áður unnið að
svo mörgum rannsóknum sam-
tímis,“ er haft eftir Taalas í frétt
WMO um nýju hitametin á heima-
síðu stofnunarinnar í gær þar sem
enn fremur segir af því, að nefnd
sérfræðinga á vegum hennar hafi
ákveðið að stofna nýjan efnisflokk
innan hitastigsrannsókna, sem
fjalli um mesta mælda hita norðan
heimskautsbaugs, en ýmissa grasa
kennir í rannsóknum WMO og
falla þar reglulega met, sem snúa
að hitastigi, regni, mestu hagl-
éljum, lengstu þurrkatíð, sterk-
ustu vindhviðum, lengst varandi
eldingaglömpum og veðurtengdum
dauðsföllum svo eitthvað sé nefnt.
Með tilkomu nýja norðurskauts-
flokksins eiga bæði heimskautin
sér veðuröfgaflokka hjá rannsak-
endum WMO, en suðurheim-
skautið fékk eigin flokk árið 2007.
Mesti hiti á heimskautinu staðfestur
- WMO aldrei áður sinnt svo mörgum
veðuröfgarannsóknum samtímis
AFP
Jakútía Algengara hitastig en +38.