Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 14
14
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Dekurmolar í jólapakkann
fyrir þig og þína úr jólaverksmiðju L’Occitane
erumVIÐ RÆKTENDUR FRAMTÍÐARINNAR
Hugmyndir um að
merkja fólk og mis-
muna eftir því hvort
eða hversu marga
skammta bóluefnis við
kórónaveirunni það
hefur fengið eru var-
hugaverðar. Við þessu
er réttilega varað í
Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins
sunnudaginn 12. des-
ember og vísað til sögunnar. Því
miður virðast alltof fáir gera sér
grein fyrir að öll slík mismunun,
sama hversu sakleysislega hún lítur
út í byrjun, vindur ávallt upp á sig.
Sá sem er mismunað er brenni-
merktur. Brennimerkingin leiðir til
æ harðari mismununar, sem aftur
styrkir brennimerkinguna. Á end-
anum er sá sem er mismunað útilok-
aður með öllu. Við sjáum þessa þró-
un nú þegar í ýmsum
nágrannalöndum okkar. Í Austur-
ríki er óbólusett fólk nú innilokað á
heimilum sínum og eftir áramót er
stefnt að fangelsun þess.
Því miður örlar nú þegar á sömu
tilhneigingu hérlendis. Taktinn slá
meðal annars Kári Stefánsson sem
farið hefur fram á lífstíðarfrelsis-
sviptingu þeirra sem ekki þiggja
bóluefnin1), og Þórólfur Guðnason
sem kallar eftir mismunun barna2);
jafnvel enn óhugnanlegri krafa, ekki
síst í ljósi áhættunnar, en nýverið
mælti franska lækna-
akademían gegn bólu-
setningu heilbrigðra
barna sem ekki búa
með fólki í áhættuhóp-
um3), og finnsk yfirvöld
hyggjast fylgja sama
fordæmi.4)
Vísindalegar for-
sendur að baki mismun-
uninni eru veikar. Ekk-
ert samhengi er milli
bólusetningarhlutfalls
og smittíðni5) og ljóst að
samfélagslegt ónæmi næst aldrei
með hinum svonefndu bóluefnum,6)
sem af þeim sökum væri kannski
réttara að kalla fyrirbyggjandi lyf.
Þau gagnast vel fólki í áhættuhóp-
um, en ungt og heilbrigt fólk hefur
hins vegar enga þörf fyrir þau, og
nokkur ungmenni hérlendis hafa
þegar orðið fyrir varanlegum skaða
vegna lyfjagjafarinnar. Það kemur
ekki á óvart, enda er tíðni tilkynn-
inga um alvarlegar aukaverkanir
vegna þeirra allt að þúsundföld mið-
að við fyrri reynslu.7) Innlagnir
vegna aukaverkana eru nú þegar
orðnar 149 talsins, sem dregur síður
en svo úr álagi á heilbrigðiskerfið.8)
Það er ástæðulaust að við Íslend-
ingar eltum mistökin sem gerð eru í
sumum nágrannalöndum okkar.
Góðu heilli hefur nýr heilbrigðis-
ráðherra, Willum Þór Þórsson,
ítrekað talað fyrir umburðarlyndi og
lýst skýrri andstöðu sinni við hug-
myndir um mismunun og útilokun
fólks eftir bólusetningarstöðu, sem
bendir til að hann skilji vel hvert
slíkt getur leitt okkur. Ég vona að sú
manneskjulega og heilbrigða lífssýn
sem endurspeglast í afstöðu ráð-
herrans hafi yfirhöndina hér á okkar
litla landi.
1) Kári Stefánsson, Morgunblaðið, 26. nóv-
ember 2021: „Svo það má færa rök fyrir því
að koma eigi þeirri skyldu á að þeir ein-
staklingar sem ekki vilja láta bólusetja sig
verði skikkaðir í sóttkví að eilífu.“
2) visir.is 7.12.2021: „3. Undanskilja börn
yngri en 16 ára sem fengið hafa grunn-
bólusetningu (tvo skammta) frá fjöldatak-
mörkunum og hraðgreininga- eða PCR
prófum fyrir viðburði.“
1) Le Monde og BFMTV, 17. nóvember
2021: „Les vaccins anti-Covid ne doivent
pas être donnés à tous les enfants mais
certains d’entre eux devraient en bénéfi-
cier, a estimé mercredi l’Académie fran-
çaise de médecine, prenant une position
médiane face à un regain de polémiques sur
le sujet.“ Mælt er með því að bólusetja ein-
ungis börn í áhættuhópum og þau sem búa
með fólki í áhættuhópum.
4) Reuters, 2. desember 2021: „Finland to li-
mit children’s COVID-19 vaccines to high-
risk households.“
5) Subramanian, Kumar: „Increases in CO-
VID-19 are unrelated to levels of vacc-
ination across 68 countries and 2947 coun-
ties in the United States“, European
Journal of Epidemology, 2021. Rannsóknin
sýnir enga fylgni milli smita og hlutfalls
bólusettra.
6) Kampf: „The epidemiological relevance of
the COVID-19-vaccinated population is inc-
reasing“, The Lancet Regional Health –
Europe, 2021. Sýnir að vernd bóluefna
gegn smiti fer síminnkandi. Einnig: Nord-
ström, Ballin: „Effectiveness of Covid-19
Vaccination Against Risk of Symptomatic
Infection, Hospitalization, and Death Up to
9 Months: A Swedish Total-Population Co-
hort Study“, The Lancet (preprint), 2021.
Sýnir að vernd bóluefna hverfur nær alveg
á fáeinum mánuðum.
7) Sigurlaug Tara Elísdóttir: Bólusetning
gegn inflúensunni á Íslandi, B.A.-ritgerð
2015, bls. 10: „Rannsóknir hafa sýnt að einn
af hverjum 500.000-1.000.000 bólusettum
gæti þróað með sér alvarlegar aukaverk-
anir.“
https://www.lyfjastofnun.is/frettir/
covid-19-sundurlidun-tilkynninga-vegna-
gruns-um-alvarlega-aukaverkun-i-kjolfar-
bolusetningar-20/: 249 tilkynningar höfðu
borist þann 9. desember eftir ríflega 280
þúsund bólusetningSar, sem eru tæplega
900 á hverja milljón. Tólf tilkynningar
höfðu borist vegna örvunarskammta.
(stytt slóð: http://mbl.is/go/gy84a )
8) https://www.lyfjastofnun.is/frettir/
covid-19-sundurlidun-tilkynninga-vegna-
gruns-um-alvarlega-aukaverkun-i-kjolfar-
bolusetningar-20/
(stytt slóð: http://mbl.is/go/747fn )
Útilokun á aðventu
Eftir Þorstein
Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson
» Það er ástæðulaust
að við Íslendingar
eltum mistökin sem
gerð eru í sumum ná-
grannalöndum okkar
Höfundur er hagfræðingur.
Gegnum tíðina hef
ég tryggt hjá Sjóvá en
sú saga telur áratugi.
Fyrir þó nokkrum ár-
um lærðist mér hins
vegar að fastir kúnnar
með sjálfvirka end-
urnýjun þar fá ekki að
njóta þeirrar tryggðar
sem þeir sýna fyrir-
tækinu. Almennt má
segja að fastir kúnnar
þar fái verri kjör en þeir sem koma
nýir inn í viðskipti. Tjónasaga mín er
frekar fábrotin en þó var gengið í
kaskótryggingu vegna skemmd-
arverka sem unnin voru á lakki nýrr-
ar bifreiðar í minni eigu árið 2020.
Ekki stóð reyndar til að láta lagfæra
þessar skemmdir en þar sem Sjóvá
fullyrti að þetta yrði ekki til að
skerða framtíðarkjör mín lét ég slag
standa. Fyrir allar tryggingar hjá
Sjóvá hafði ég greitt iðgjöld fyrir ár-
ið 2020 upp á 575 þúsund en inni í
þeim telja þrjár bifreiðar, íbúðarhús,
sumarhús, ferðavagn o.fl. Þegar mér
barst svo greiðslukrafa í lok ársins
2020 vegna ársins 2021 fyrir ná-
kvæmlega sömu tryggingar kom
hins vegar í ljós að kjör mín átti að
skerða vegna fyrrnefnds tjóns og
hafði þá heildarpakkinn hækkað um
60 þúsund eða í 635
þúsund samtals. Ég
leitaði tilboða hjá hin-
um tryggingunum og
færði mig í framhald-
inu til Varðar. Ég hef
reyndar verið í við-
skiptum við Vörð áður
og ekki hef ég orðið var
við að þjónustan þar sé
lakari en á hinum
staðnum nema síður sé.
Fyrir stuttu leitaði ég
svo aftur tilboða hjá öll-
um tryggingafélög-
unum vegna nákvæmlega sama
pakka og áður. Hjá Verði stóðu ið-
gjöldin nánast í stað frá fyrra ári og
hefur nú verið endurnýjað þar fyrir
árið 2022. Það tilboð sem skar sig
hins vegar verulega úr var frá Sjóvá,
en sá pakki sem fyrir árið 2021 kost-
aði 635 þúsund kostar 970 þúsund
fyrir árið 2022. Það verður að teljast
nokkuð rífleg hækkun, tæplega 53%,
og ber þess að geta að algjört tjón-
leysi hefur verið á árinu 2021. En þá
ber á það að líta að Sjóvá brynnti ný-
lega hlutabréfakálfunum sínum með
því að ganga í bótasjóði sem safnast
hefur hressilega í, greinilega vegna
oftekinna iðgjalda. Hlutabréfakálfar
Sjóvár sugu nefnilega nýlega til sín
gegnum spena bótasjóða félagsins
2.500 milljónir. Slík ofurfóðrun hlýt-
ur að kalla á að rétta þurfi sjóðina
við og þá er nærtækast að ganga á
tryggingataka, sem á endanum
borga veisluna fyrir kálfana. Flestir
tryggingatakar segja nefnilega aldr-
ei neitt og borga bara þegjandi og
hljóðalaust. Þetta dæmi er enn ein
staðfestingin á því að við endurnýjun
trygginga er full ástæða til að fá til-
boð frá öllum tryggingafélögunum á
hverju einasta ári. Þeir sem það gera
ekki mega búast við því að vera hafð-
ir að féþúfu. Þá er rétt að geta þess
að félagi minn sem býr í Noregi, þar
sem verðlag er ekki ósvipað og hér,
greiðir NOK 3.000 eða ISK 45.000 í
iðgjald fyrir ábyrgðartryggingu á
sambærilegum bíl og ég er með til-
boð í frá Sjóvá upp á ISK 145.000.
Eru Norðmenn svona miklu betri
ökumenn en við hér á Fróni að tjón
eru ekki nema þriðjungur þar á við
hér?
Hlutabréfakálfunum
brynnt hjá Sjóvá
Eftir Örn
Gunnlaugsson »Enn ein staðfest-
ingin á að við
endurnýjun trygginga
er full ástæða til að
fá tilboð frá öllum
tryggingafélögunum
á hverju einasta ári.
Örn Gunnlaugsson
Höfundur er fv. atvinnurekandi.
orng05@simnet.is