Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 17

Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 ✝ Hólmfríður Stella Helga Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 7. nóv- ember 1959. Hún lést 3. desember 2021. Foreldrar henn- ar voru Ólafur S. Þórarinsson, f. 21.7. 1928, d. 7.7. 2010, og Kristín Óla Karlsdóttir, f. 24.2. 1930, d. 31.8. 2018. Systkini Hólmfríðar Stellu eru Guðbjörg, f. 6.4. 1951, Þór Fannar, f. 31.8. 1953, Hallur Einar, f. 13.4. 1955, Karl Rúnar, f. 6.1. 1957, Þorkell Ingi, f. 16.9. 1961, Þórarinn Vignir, f. 25.3. 1964, Sævar Óli, f. 23.2. 1967, Guðmundur Páll, f. 10.11. 1969 og Magnús Már, f. 31.12. 1972. Hólmfríður Stella giftist Ró- 8.11. 1989, börn þeirra eru Vikt- or Snær, f. 24.6. 2008 og Hall- dóra Karítas, f. 31.1. 2012. Hólmfríður Stella ólst upp á Háfi í Þykkvabæ ásamt 9 systk- inum. Gekk í Barnaskólann í Þykkvabæ og Gangfræðaskól- ann á Hellu. Þaðan fer hún í Húsmæðraskólann á Laug- arvatni og útskrifast þaðan 1975. Hólmfríður Stella hóf störf í Landsvirkjun ung að aldri og vann lengst í Hraun- eyjum sem aðstoðarmaður í eld- húsi og ýmislegt fleira. Árið 1996 stofnuðu Hólmfríður Stella og Róbert jarðvinnufyrirtæki og það var farsælt til ársins 2012. Svo flutti hún austur fyrir fjall á Selfoss. Hún hafði mjög gaman af allri handavinnu og var mikil listakona. Hólmfríður Stella veiktist árið 2016, þá greindist hún með blóðkrabbamein, barð- ist við krabbameinið í fimm ár. Útförin fer fram frá Selfoss- kirkju í dag, 15. desember 2021, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á www.selfosskirkja.is. https://www.mbl.is/andlat bert Braga Guð- mundssyni, f. 9.8. 1956. Þau slitu samvistum 2012. Börn þeirra eru: 1) Jón Karl Róberts- son, f. 8.6. 1977, maki hans er Ingv- eldur Sævarsdóttir, f. 9.11. 1969, börn hans eru Brynjar Máni, f. 4.3. 1999, sonur Brynjars er Dagur Blær Diego, f. 9.8. 2021, Sædís Alda, f. 29.3. 2001 og Sól- ey Helga, f. 27.8. 2008. 2) Þor- geir Gunnar Róbertsson, f. 9.2. 1982, d. 29.6. 1982. 3) Kristrún Eva Róbertsdóttir, börn hennar eru Gabríel Róbert, f. 16.5. 2007 og Maríana Ósk, f. 30.4. 2010. 4) Sigurbjörg Sara Róbertsdóttir, f. 16.11. 1988, maki hennar er Ármann Magnús Ármannsson, f. Eitt af því dýrmætasta í lífinu er falleg og sönn vinátta. Stella hafði allt sem góða vinkonu prýð- ir. Hún var heilsteyptur persónu- leiki sem vildi öllum vel, um- hyggjusöm og einkennandi fyrir hana var létt lund og glaðværð. Við hlógum mikið saman að mörgu, stundum bara að smá- munum og oft að okkur sjálfum. Vinátta hennar var mér mikils virði og fyrir hana þakka ég af heilum hug. Ég mun aldrei gleyma stundunum sem við átt- um þar sem við töluðum um allt, svo mikið að við gleymdum stundum tímanum. Þær geymi ég í hjartanu mínu að eilífu. Elsku vinkona það er komið að leiðarlokum samveru okkar hér, en við munum hittast á nýjum stað. Þakka þér fyrir yndislega vináttu. Guð blessi þína minningu og veri með börnunum þínum á erfiðum tímum. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Elsku Nonni, Kristrún, Sibba og fjölskylda, mínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Nína. Hólmfríður Stella Helga Ólafsdóttir ✝ Búi Guð- mundsson fæddist 27. mars 1939 á Patreks- firði. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Eski- völlum 21a í Hafn- arfirði, 6. desem- ber 2021. Foreldrar hans voru Guðmundur Sigurðsson og Hjördís Þórarinsdóttir, gjarn- an kennd við Hliðskjálf á Pat- reksfirði. Búi var annar í röð tíu systkina, sjö komust til fullorðinsára en þrjú létust í frumbernsku. Að lokinni hefðbundinni skólagöngu útskrifaðist hann frá Vélskóla Ís- lands og stundaði störf við vélstjórn til sjós og lands til starfsloka. Búi var kvænt- ur Rannveigu Helgadóttur, f. 14. ágúst 1939. Hún lifir mann sinn. Þau bjuggu lengst af í Hafn- arfirði. Útför Búa fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15. desember 2021, klukkan 13, að viðstöddum nánustu ætt- ingjum og vinum. Streymt verður frá útförinni. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Nú skilur leiðir og okkur systkinin langar í nokkrum orðum að minnast bróður okk- ar, Búa Guðmundssonar. Búi var elstur eftirlifandi systkina þegar hann yfirgaf þennan heim. Það eru ótal- margar minningarnar sem koma upp í hugann og stutt í bros því sögurnar eru ófáar skemmtilegar og lýsa hans léttu lund. Endalaust gátum við sótt hjá Búa fróðleik og upplýsingar er tengdust sögu og ættfræði því þar lá hans áhugasvið. Búi vissi svo margt um líf og störf forfeðra okkar og -mæðra og sagði frá af mik- illi tilfinningu, hann vissi hvað- an hann kom. Fyrsta sagan af mörgum ferðalögum Búa er sennilega sagan af því er hann, ásamt foreldrum okkar og eldri bróður Sverri, lagði í langferð yfir Patreksfjörð á bát föður okkar þar sem fjöl- skyldan var að flytja frá Nesi (Sellátranesi) í litla þorpið handan við fjörðinn. Þegar glitta fer í fjöruna á nýjum heimaslóðum verður Búa á orði „Sverrir sjáðu, þeir eru búnir að eyðileggja fjöruna!“ Þeir bræður voru vanir gylltri sand- fjörunni á Nesi en fjaran á nýju heimaslóðunum var svört malarfjara. Þessi bátsferð var ein af fjölmörgum þar sem Búi byrj- ar að stunda sjóinn ungur. Búi vissi að hann vildi mennta sig. Um tvítugt fer hann til Reykjavíkur og stundaði þar nám við Vélskóla Íslands. Ást- in hans, hún Rannveig, fylgdi honum svo í borgina en sam- búð þeirra hjóna hófst á náms- árum Búa. Eftir að Búi útskrif- ast sem vélstjóri stundaði hann sjóinn og starfsævi hans var helguð vélstjórn til sjós og lands. Þau hjón lögðu svo land undir fót árið 1978, þangað sem fjörurnar hafa sennilega verið meira framandi en mal- arfjaran við Geirseyri, til Bali í Indónesíu. Búi starfaði við vél- stjórn og kennslu á vegum Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna og dvöldu þau þar í þrjú ár. Þetta ferðalag og dvölin á þessum framandi slóð- um var ekki síður ævintýri fyrir okkur systkini Búa, þar sem við fengum margar skemmtilegar sögur af dvöl þeirra hjóna í þessum heimi sem var svo ólíkur öllu sem við þekktum. Þessi tími var þeim hjónum mjög dýrmætur og minningarnar ljúfar, þetta var sennilega þeirra blómatími. Lengst af bjuggu þau hjónin í Hafnarfirði, fyrst á Suður- götunni og svo þessi síðustu ár á Völlunum. Við systkinin erum alin upp með það að leiðarljósi að við létum okkur falla, eins og hún mamma orðaði það, hvað sem á bjátaði. Það segir margt um hann Búa okkar að aldrei hall- aði orði á milli okkar og alltaf var traust að leita til hans, með þá fullvissu að þau ráð sem við fengjum yrðu okkur farsæl, því ekki var hann Búi bara vel gefinn heldur var hann líka svo vel gerður. Það er okkur systkinunum ómet- anlegt hversu vel hann hugsaði um hana mömmu okkar síð- ustu árin hennar. Það að vita af því að ekki leið sá morgunn að Búi byrjaði ekki daginn á því að kanna hvort mamma væri ekki örugglega komin á fætur, hvort ekki logaði á eld- húskrónunni í Miðvanginum. Við kveðjum hann bróður okkar með þakklæti og sökn- uði, minningu um einstakan mann, hans skarð verður vand- fyllt. Elsku Rannveig, við sendum þér okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Systkinin frá Hliðskjálf, Sigríður Fjóla, Hjörleifur, Jóna, Sigríður og Ólafía. Fallinn er frá góður vinur og mágur, Búi. Ég talaði við hann í síma, eins og við gerðum oft, um tíuleytið á sunnudagskvöld og bað hann að fara vel með sig. Búi endaði slík tilmæli á sinn hátt; að lífið væri allt að láni og því yrði skilað þegar kallið kæmi. Búi vinur minn skilaði lífinu nokkrum klukku- stundum síðar um nóttina. Við vinirnir áttum samleið megnið af hans lífslengd, báðir aldir upp í þorpinu fyrir vest- an, stunduðum hefðbundna vinnu unglinga þá, við fisk- vinnslu og í bland handfæra- veiðar á sumrum. Við tengd- umst síðan fjölskylduböndum er hann gekk að eiga systur mína Rannveigu. Við völdum báðir að fara iðn- skólaleiðina. Búi útskrifaðist frá Iðnskólanum á Patreksfirði og iðnnáminu lauk hann í vél- smiðjunni Loga á staðnum. Ég lauk mínu námi í Reykjavík. Leiðir okkar lágu aftur sam- an er við lukum báðir námi í Vélskóla Íslands. Búi var lengi vélstjóri á fiskiskipum, lengst á aflaskip- inu Helgu Guðmundsdóttur BA, síðan lá leið hans til Heklu. Búi var mikill áhugamaður um sögu og ættfræði sveitar okkar, því ættir okkar beggja koma úr gamla Rauðasands- hreppi. Ef ættfræði kom til tals, og ekki allar upplýsingar lágu fyrir, var ávallt sagt: Töl- um við Búa. Búi var einstakur mann- kostamaður, vel af Guði gerður og hugsaði vel um fjölskyldu sína. Hann var mikill fagmaður og hafði traust allra sem hann þjónaði og kynntist. Það var gott að leita til hans og ræða ýmis mál er varða vélfræði og lífsins gang. Það kom okkur sem þekkt- um hann vel ekki á óvart að hann var ráðinn til Sameinuðu þjóðanna, deildar FAO, fisk- veiðideildar, sem staðsett var í Róm. Starfsstöð Búa var á Balí í Indónesíu og bjuggu þau hjón þar á fjórða ár. Búi varð yfirvélstjóri á stóru hafrannsóknaskipi sem stund- aði rannsóknir á því mikla haf- svæði. Búi hafði margar sögur að segja frá veru sinni á þess- um slóðum. Ein er mér minn- isstæð, því Búi taldi að sér hefi verð sýnt það mesta þakklæti er hann hefði orðið fyrir á lífs- leiðinni. Í einum af leiðöngrum sínum sigldu þeir fram á sex manna lítinn fiskibát á reki, vélvana og matarlausan, úti á opnu hafi. Búi var sendur um borð í bátinn, og kom vélinni í gang. Sem þakklæti klæddu þeir Búa úr skóm og sokkum, og allir kysstu þeir fætur hans. Töldu að hann væri sendur af almættinu! Svo kann að vera, því hann þekkir jú sitt fólk. Farinn er góður drengur sem verður sárt saknað. Mun fjölskyldan taka höndum um Rannveigu og styðja hana í sorg hennar. Hvíl í friði. Guðbjartur Einarsson. Búi Guðmundsson Okkar ástkæri GUÐJÓN INGVI STEFÁNSSON verkfræðingur lést á hjartadeild Landspítalans laugardaginn 4. desember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 17. desember klukkan 13. Gestir eru beðnir að framvísa neikvæðu Covid-prófi sem er ekki eldra en tveggja sólarhringa gamalt. Athöfninni verður streymt á slóðinni www.streyma.is. Elín Guðjónsdóttir Stefán Arnarson Þorbjörn Guðjónsson Þórdís Bragadóttir Stefán Broddi Guðjónsson Þuríður Anna Guðnadóttir Guðrún Broddadóttir Heba Björk, Tómas, Stefanía Bergljót, Friðrik Þjálfi, Guðni Snær, Ingvi Freyr og Óskar Máni Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN ÞÓRARINSSON, landgræðsluvörður og bóndi í Krossdal í Kelduhverfi, verður jarðsunginn frá Garðskirkju í Kelduhverfi laugardaginn 18. desember klukkan 14. Athöfnin er öllum opin en gestir þurfa að sýna viðurkennt hraðpróf eigi eldra en 48 klst. Beint streymi verður á facebook-síðu Garðskirkju í Kelduhverfi. Ólöf Sveinsdóttir Matthías Guðmundsson Ingveldur Guðný Sveinsd. Þorsteinn Guðjónsson Þórarinn Sveinsson Regina Bailing og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR AÐALSTEINSSON, Baugakór 12, Kópavogi, var bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 5. desember. Útför fer fram fimmtudaginn 16. desember klukkan 11. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Streymt verður frá athöfninni, hlekk má nálgast á heimasíðu Digraneskirkju, https://www.digraneskirkja.is. Soffía Jóhanna Gestsdóttir Emilía Maí Gunnarsdóttir Hrafnhildur Skúladóttir Valgerður Dís Gunnarsdóttir Halldór Margeir Hönnuson Sólrún Aspar Baldur Blær, Sara Jóhanna Gunnar Skúli, Sædís Hera, Anton Emil Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN RÚNAR SÖRLASON, Sóleyjarima 21, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar 2. desember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Edda Aspelund Georg A. Þorsteinsson S. Ósk Olgeirsdóttir Guðrún Þorsteinsdóttir Ágúst Valgeirsson Lilja Björk Þorsteinsdóttir Óskar Þór Jónsson afa- og langafabörn Hjartans pabbi okkar, sonur, afi, bróðir og mágur, FJÖLNIR GEIR BRAGASON húðflúrlistamaður, lést laugardaginn 11. desember. Útför að hætti ásatrúar verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. desember klukkan 13. Gestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra er 48 klst. við komu. Í ljósi fjöldatakmarkana og þess hve Fjölnir var vinmargur eru vinir hans hvattir til að safnast saman og fylgjast með útförinni með streymi: https://youtu.be/M98ky-QMc0U Atli Freyr Fjölnisson Fáfnir Fjölnisson Fenrir Flóki Fjölnisson Kolbrún Benediktsdóttir Fjölnir Myrkvi, Ísabel Dimma og Indíana Nótt Bragi Agnar (Brian), Júlía, Ásgeir Reynar og Helga María, Símon Jóhann, Kolbrá Þyri Kæra Gíslína Ólöf. Takk fyrir samfylgdina í lífinu. Vertu sæl og hvíldu í friði. Þessi kveðja er frá frænku þinni, Svönu, og fjölskyldum mínum. Við sendum aðstandendum þínum sam- úðarkveðjur. Svanhildur Guðbjartsdóttir. Gíslína Ólöf Ingibergsdóttir ✝ Gíslína Ólöf Ingibergsdóttir frá Stóra-Múla, Dalasýslu, fæddist 29. apríl 1957. Hún lést 20. október 2021. Útför hennar fór fram í kyrrþey.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.