Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu
mánudaginn 3. janúar 2022
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir klukkan 12 fimmtudaginn 23. desember
SÉRBLAÐ
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru sem í boði
er fyrir þá sem stefna á
frekara nám.
–– Meira fyrir lesendur
50 ÁRA Lára er Reykvíkingur, ólst upp í
Breiðholti, en býr í Hafnarfirði. Hún er með
einkaþjálfarapróf frá Danmörku, verklegur
hönnuður frá Iðnskólanum í Reykjavík og
lýsingahönnuður frá Tækniskólanum. Hún
starfar sem lýsingahönnuður á verkfræði-
stofunni Lotu, þar sem Lára kemur að lýs-
ingahönnunini á nýja Landspítalanum. „Það
er stórt og mikið verkfeni en við erum að sjá
fyrir endann á því.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Láru er Guð-
mundur Pétur Yngvason, f. 14.12. 1971,
sölustjóri hjá Ó Johnson & Kaaber. Börn
Láru eru Helgi Aron Ágústsson, f. 1993, og
Kristófer Thor Ágústsson, f. 2000. Stjúp-
börn Láru eru Elvar Andri Guðmundsson, f.
1993, og Sandra Karen Guðmundsdóttir, f. 2001. Foreldrar Láru voru
Örlygur Pétursson og Helga Jóna Helgadóttir, bæði látin.
Lára Sigríður Örlygsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Fólk sem þú telur þig þekkja út og
inn getur komið þér á óvart og það á já-
kvæðan hátt. Leggðu þig því fram um að
sýna þínar bestu hliðar.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú getur treyst eðlisávísun þinni
varðandi peningamál og viðskipti. Þol-
inmæði þrautir vinnur allar og það mun
sannast á þér á næstu dögum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þín sérgrein er að skipuleggja
svo þú skalt vera óragur við að flagga þeim
hæfileika þínum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Reyndu að rífa þig upp úr gamla
farinu þótt ekki sé nema að gera hlutina í
annarri röð en í gær. Láttu öfund annarra
ekki fara í taugarnar á þér.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þegar maður sinnir stóru verkefni er
orkan oft tvístruð. Slakaðu á en þó ekki of
lengi. Mundu að svo uppsker maðurinn
sem hann sáir til.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er ekki hyggilegt að hleypa mál-
um af stað án þess að reyna að sjá fram-
vinduna fyrir. Gefðu þér tíma til að rækta
sálarlíf þitt en forðastu allar öfgar.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þeir eru margir sem vilja hitta þig að
máli svo þú átt erfitt með að skipuleggja
tíma þinn. Mundu að gæði og magn fara
ekki endilega saman.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þér finnst engu líkara en ein-
hver sé að leggja fyrir þig sérstakt próf og
ert óöruggur þess vegna. Fátt er eins dýr-
mætt og að kunna að verja sjálfan sig.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ættir að láta hendur standa
fram úr ermum því dagurinn býður upp á
mörg tækifæri. Treystu víðsýnum félaga
fyrir viðkvæmu málefni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Viðleitni þín til þess að fram-
kvæma eitthvað í hópi eða samstarfi við
aðra verður stöðvuð tímabundið.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það getur reynst þér erfitt að
fylgja nákvæmri dagskrá, þar sem eitt og
annað kemur upp á og þú þarft líka að
sinna því.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú gætir fengið óvænta peninga
eða gjöf, annaðhvort beint eða í gegnum
einhvern nákominn. Hugaðu að ferðalögum
og leiðum til að auka menntun þína.
baka finnst mér að það hafi alls ekki
verið mér fjötur um fót að vera ein
örfárra kvenna í hópi lögfræðinga
heldur hafi það að sumu leyti gefið
mér frekari tækifæri.“
Margvísleg trúnaðarstörf
Meðal helstu trúnaðarstarfa sem
Guðríður hefur gegnt eru að hún var
formaður Jafnréttisráðs 1979-1985,
fulltrúi Íslands í Jafnréttisnefnd nor-
rænu ráðherranefndarinnar 1983-
1985, og formaður nefndarinnar
1984-1985. Hún sat í sendinefnd Ís-
lands á kvennaráðstefnu Sameinuðu
G
uðríður Þorsteinsdóttir
fæddist 15. desember
1946 í Reykjavík.
Fyrstu árin ólst Guð-
ríður upp í Höfðaborg,
en síðan í Smáíbúðahverfi til 20 ára
aldurs. Hún var eitt sumar í sveit að
Þverfelli í Lundarreykjadal. Hún
vann við blaðburð, var í unglinga-
vinnu og fiskvinnu. Frá 16 ára aldri
vann hún ýmis skrifstofustörf á
sumrin og með skóla.
Guðríður gekk í Laugarnesskóla,
Breiðagerðisskóla, Réttarholtsskóla
og tók landspróf í Gagnfræðaskól-
anum við Vonarstræti. Hún varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1966 og lögfræðingur frá
Háskóla Íslands 1972. „Fyrsta kon-
an, Auður Auðuns, lauk embættis-
prófi í lögfræði frá HÍ árið 1935, en á
þeim tæplega fjörutíu árum sem liðu
þar til ég útskrifaðist luku aðeins 16
konur embættisprófi í lögfræði frá
HÍ.“
Guðríður varð héraðsdómslög-
maður 1983, hæstaréttarlögmaður
1995 og lauk MA-prófi í heilbrigðis-
lögfræði og heilbrigðissiðfræði frá
Kinǵs College/London University
2009. Enn fremur stundaði hún
sænskunám við Háskóla Íslands
1974-1975, nám í heilsuhagfræði við
HÍ 1990 og nám í þýðingafræði og
bókmenntum við enskudeild Háskóla
Íslands 2017-2019.
Guðríður var framkvæmdastjóri
Bandalags háskólamanna 1972-1983,
rak eigin lögfræðiskrifstofu 1983-
1987, var starfsmannastjóri Ríkis-
spítala (Landspítala) 1987-1996,
skrifstofustjóri lögfræðiskrifstofu
heilbrigðisráðuneytisins 1996-2010,
settur ráðuneytisstjóri heilbrigðis-
ráðuneytisins 2010, skrifstofustjóri í
velferðarráðuneytinu 2011-2014 og
sérfræðingur í velferðarráðuneytinu
í hlutastarfi 2015-2018.
„Þegar ég hóf nám við HÍ stóð val-
ið milli náms í tungumálum og bók-
menntum og lögfræðinnar. Ég hef
aldrei séð eftir að hafa valið lögfræð-
ina, enda tekur hún á öllum sviðum
mannlegs lífs og gefur möguleika á
störfum á ólíkum sviðum. Starfsfer-
illinn hefur verið bæði fjölbreyttur
og skemmtilegur. Þegar ég lít til
þjóðanna í Kaupmannahöfn 1980 og í
Nairobi 1985. „Það var mjög áhuga-
vert og skemmtilegt að taka þátt í
þessum stóru ráðstefnum, kynnast
konum sem búa við mjög ólíkar að-
stæður og taka þátt í umfjöllun um
mikilvæg málefni sem varða réttindi
kvenna. Mér er þó líka minnisstætt
hvernig reynt var að nýta þennan
vettvang í pólitiskum tilgangi. Eftir
ráðstefnuna í í Nairobi ferðuðumst
við maðurinn minn um Kenía ásamt
fleirum og það var mikið ævintýri.“
Guðríður var fulltrúi Íslands í stjórn-
arnefnd Evrópuráðsins um líf-
siðfræði, Steering Committee on
Bioethics (CDBI) 2001-2010 og sat í
stjórn CDBI 2006-2007, þá var hún
um árabil í yfirkjörstjórn við alþing-
iskosningar og sveitarstjórnarkosn-
ingar í Reykjavík. Hún sat í samn-
inganefnd ríkisins 1989-1996 og í
endurmenntunarnefnd Háskóla
Íslands 1983-1991.
Hún hefur enn fremur setið í
fjölda nefnda á vegum heilbrigð-
isráðuneytisins og velferðarráðu-
neytisins. „Ég hef m.a. stýrt nefnd-
um sem undirbúið hafa löggjöf á
heilbrigðissviði svo sem undirbún-
ingsnefnd nýrrar heildarlöggjafar
um heilbrigðisþjónustu og laga um
landlækni og nefnd sem undirbjó
löggjöf um vísindarannsóknir á heil-
brigðissviði. Ég átti stóran þátt í
samningu flestra frumvarpa á sviði
heilbrigðisráðuneytisins þann tíma
sem ég gegndi embætti skrif-
stofustjóra, en á því tímabili voru
nær öll lög á sviðinu endurskoðuð
eða samin ný lög.“ Á árunum 2018-
2021 hefur Guðríður verið formaður í
hæfnisnefndum sem fjallað hafa um
hæfni umsækjenda um embætti í
heilbrigðisráðuneytinu. Hún hefur
sinnt stundakennslu við HÍ og
kennslu hjá Endurmenntun HÍ og
haldið fjölda fyrirlestra hjá ýmsum
félögum og stofnunum.
Helstu áhugamál Guðríðar eru
bókmenntir, tungumál, tónleikar,
leikhús, ferðalög og gönguferðir.
„Fyrir rúmlega þrjátíu árum stofn-
uðum við, fern hjón sem þekkst
höfðu frá því í menntaskóla, göngu-
klúbb sem við kölluðum Smáspöl og
um tuttugu ára skeið fórum við sam-
Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur – 75 ára
Amman Guðríður ásamt dóttur sinni Ingibjörgu og dótturdætrum,
Þorbjörgu og Nínu, en nú er Guðríður orðin langamma.
Ein fárra kvenna í lögfræði
Hjónin Á 25 ára brúðkaups-
afmæli þeirra árið 1992.
Afmælisbarnið Á Jakobsveginum.
Til hamingju með daginn
Garður Hafþór Ingi Ragnarsson
fæddist 4. febrúar 2021 kl. 12.30 í
Reykjavík. Hann vó 3.288 g og var 49
cm langur. Foreldrar hans eru Ragnar
Þór Baldursson og Erla Ósk
Ingibjörnsdóttir.
Nýr borgari