Morgunblaðið - 18.12.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
www.plusferdir.is
Ámaður ekki skilið gott tjill um jólin og um áramótin?
Ná stressinu úr skrokknum, mæta núllstillt inní næsta ár.
20. desember - 3. janúar
49.900 kr.
til KANARÍ
Verð frá
Stökktu!
SÓL
UMJÓLOG
ÁRAMÓT
SÍÐUSTU
SÆTIN!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefnt er að því að hefja bólusetn-
ingar barna á aldrinum 5 til 11 ára
skömmu eftir áramót. Nákvæm út-
færsla á framkvæmdinni liggur þó
ekki fyrir en meðal þess sem er til
skoðunar er að bólusetningarnar fari
fram í grunnskólum.
Ekki eru allir sáttir við áform um
það en Samtökin frelsi og ábyrgð
hafa sent bréf til almannavarna þar
sem lýst er áhyggjum vegna áætlana
um að bólusetja börn í húsnæði skól-
anna.
„Verði þessum áætlunum fram-
fylgt má leiða líkur að því að það
verði á allra vitorði, nemenda og
starfsfólks skólans, hverjir hafa eða
hafa ekki fengið umrædda sprautu,“
segir í bréfinu. Kemur þar einnig
fram að slíkar upplýsingar gætu leitt
til félagslegrar útskúfunar þar sem
óbólusettu börnin gætu þótt hættu-
leg eða óhrein. Gengur þetta gegn
markmiðum íslenskra laga um
grunnskóla, þar á meðal um almenna
skólaskyldu og um skóla án aðgrein-
ingar, að því er segir í bréfinu.
Jón Viðar Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri almannavarnanefndar
höfuðborgarsvæðisins, segir beiðni
heilbrigðisyfirvalda um að nýta hús-
næði skólanna til bólusetninga enn
til skoðunar. Á fundi framkvæmda-
ráðs almannavarnanefndar á höfuð-
borgarsvæðinu í gærmorgun hafi
hún verið rædd en fundað verður
með heilsugæslunni á mánudag.
Ekki góð reynsla af höllinni
„Menn eru opnir fyrir því að nýta
skólana en það eru ákveðin skilyrði
sem þarf að uppfylla sem við eigum
eftir að ræða við heilsugæsluna,“
segir Jón Viðar.
Hann segir ekki góða reynslu af
því að nýta Laugardalshöll fyrir
bólusetningar yngri aldurshópa þar
sem um viðkvæman hóp sé að ræða.
Væri æskilegra að vera í lokaðri
rýmum með meira næði til að bregð-
ast við þeim tilfellum þegar bólu-
setning fer illa í viðkomandi, til
dæmis vegna kvíða. Spurður út í
bréfið og þau persónuverndarsjón-
armið sem koma þar fram, segir Jón
Viðar að horft sé til þeirra sjónar-
miða og að þau séu hluti af sam-
ráðinu. „Við vinnum þetta þétt með
heilsugæslunni og reynum að finna
bestu lausnina.“ hmr@mbl.is
Hvar verða
börn bólusett?
- Deilt um staðsetningu bólusetninga
Úrbóta er þörf í nokkr-
um fjölda undirganga
- Í Reykjavík eru 48 undirgöng - Laga þarf lýsingu víða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vesturberg Lýsingu þótti ábótavant í þessum undirgöngum. Eins er ekki gott aðgengi að þeim öðrum megin.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þörf er á úrbótum í nokkrum fjölda
undirganga í Reykjavík. Bæta þarf
lýsingu í allmörgum þeirra til að
auka öryggiskennd vegfarenda og
vegna sjónskertra og þeirra sem
eiga erfitt með að rata.
Þetta kemur fram í skýrslu mann-
réttinda- og lýðræðisskrifstofu
Reykjavíkur um úttekt á undir-
göngum borgarinnar. Hún var ný-
lega lögð fram í skipulags- og sam-
gönguráði.
Í Reykjavík eru samtals 48 undir-
göng og gerðu starfsmenn mann-
réttinda- og lýðræðisskrifstofu út-
tekt á þeim. Könnuð var lýsing,
aðgengi, sýnileiki og hvort annar
möguleiki var á þverun götu, t.d.
hvort gangbraut var til staðar.
Úttektin sýndi að lýsing var í 33
undirgöngum, aðgengi var í 30
þeirra og við fern undirgöng var völ
á annars konar götuþverun.
Skortur á aðgengi í undirgöngum
getur t.d. verið vegna mikils bratta í
göngunum eða stígum sem að þeim
liggja og eins ef þar eru tröppur sem
fatlað fólk getur ekki notað. Bent er
á að mikilvægt sé að merkja undir-
göng svo þau séu vel sýnileg vegfar-
endum.
Undirgöng þar sem lýsingu þótti
ábótavant voru m.a. undir Vestur-
bergi, rétt við verslunina Iceland.
Aðgengi er gott öðrum megin en
einungis tröppur hinum megin. Að-
eins ein pera er í ómerktum undir-
göngum undir Vesturlandsveg við
Sævarhöfða. Engin lýsing er í
ómerktum undirgöngum undir
Stekkjarbakka við Urðarstekk.
Göngin eru ósýnileg frá götu og ná-
grenni en ekki er um aðra götuþver-
un að ræða þarna.
Lýsing er hins vegar til staðar í
göngum undir Suðurhóla og þau eru
aðgengileg. Hægt er að sjá í göngin
frá íbúðum beggja vegna við. Eins er
lýsing t.d. í göngum undir Breið-
holtsbraut við Mjódd, göngum undir
Reykjanesbraut við Stjörnugróf og
göngum undir Höfðabakka við Ár-
bæjarsafn. Aðgengi að undir-
göngum þótti ábótavant m.a. við
göng undir Miklubraut við Löngu-
hlíð, við göng undir Breiðholtsbraut
við Elliðaár, við göng undir Reykja-
nesbraut við Mjódd og við göng und-
ir Kristnibraut við Maríubaug.
Gott aðgengi er við göng undir
Snorrabraut, undir Bústaðaveg við
Veðurstofu og Breiðholtsbraut við
Arnarbakka.
Íslenska ríkinu er gert að greiða
Guðjóni Skarphéðinssyni og dán-
arbúi Kristjáns Viðars Júlíussonar,
tveimur af sakborningum í Guð-
mundar- og Geirfinnsmáli, samtals
610 milljónir. Þetta er niðurstaða
Landsréttar, en áður hafði héraðs-
dómur sýknað ríkið af öllum kröfum
í málinu.
Landsréttur vísaði aftur á móti
bótakröfu dánarbús Tryggva Rún-
ars Leifssonar frá dómi. Ríkinu er
gert að greiða Guðjóni 260 milljónir
en dánarbúi Kristjáns 350 milljónir.
Guðjón gerði kröfu upp á um 1,3
milljarða vegna áralangrar órétt-
mætrar frelsissviptingar.
Krafa dánarbús Kristjáns var tví-
þætt. Annars vegar miskabótakrafa
að fjárhæð 1.629.323.810 krónur fyr-
ir brot gegn friði, persónu og æru
hans. Hins vegar krafa að fjárhæð
kr. 25.530.910 vegna þess fjártjóns
sem hann hafi orðið fyrir við það að
möguleikar hans til tekjuöflunar
ónýttust. Dánarbú Tryggva Rúnars
krafðist þess að honum yrðu greidd-
ar alls 1.644.672.833 krónur.
Arnar Þór Stefánsson, lögmaður
dánarbús Kristjáns Viðars Júl-
íussonar, sagði dóminn góðan sigur
og mjög ásættanlega niðurstöðu.
„Það er viðurkennt að Kristján
þurfti að þola vanvirðandi meðferð af
hálfu ríkisins og mikinn órétt um
langan tíma sem litaði allt hans líf frá
tvítugu og fram í andlátið. Fyrir það
eru honum dæmdar þessar bætur
sem eru þær langhæstu í Íslandssög-
unni í svona máli,“ sagði Arnar.
Páll Rúnar M. Kristjánsson, lög-
maður dánarbús Tryggva, sagði í
samtali við mbl.is að sýknað hefði
verið vegna þess að Tryggvi Rúnar
var látinn þegar málið var höfðað og
að við málshöfðun rynni krafan ekki
til dánarbúsins. Annað hefði verið
upp á teningnum með Kristján Við-
ar, en hann hefði verið á lífi þegar
málið var höfðað.
„Þetta þýðir að íslenska ríkið hef-
ur fjárhagslegan ábata af andláti
manns sem það er uppvíst að því að
pynta og frelsissvipta í þúsund
daga,“ sagði Páll Rúnar. „Við það
verður ekki unað.“
Kveðst hann gera ráð fyrir að sótt
verði um áfrýjunarleyfi til Hæsta-
réttar hið fyrsta. Það sé þó að því
gefnu að íslenska ríkið bæti ekki tjón
Tryggva að eigin frumkvæði. „Það
hefur verið yfirlýstur vilji íslenska
ríkisins að allir sem voru sakfelldir
sitji við sama borð.“
Dæmdi 610 millj-
óna króna bætur
- Landsréttur sneri við fyrri dómi
Hópsmit kórónuveiru hefur komið
upp á Alþingi en að minnsta kosti
þrír þingmenn og tveir úr starfsliði
þeirra hafa greinst með Covid-19.
Líklegt þykir að fleiri smit eigi eftir
að greinast. Um er að ræða Odd-
nýju Harðardóttur, þingmann Sam-
fylkingar, auk tveggja þingmanna
Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson, þing-
flokksformaður Viðreisnar, stað-
festi í samtali við mbl.is í gærkvöldi
að tvö smitanna væru í þingflokki
hennar.
Ekki lá þá fyrir hverjir það eru
sem munu þurfa að sæta sóttkví
vegna smitanna, en smitrakning-
arteymi hafði ekki haft samband.
Hanna Katrín sagði að flestir hefðu
þá þegar farið í próf. Bjóst hún við
að niðurstöður myndu fást árdegis í
dag.
„Við göngum öll út frá því núna
að við séum smituð. Það er eina vit-
ið. Við högum okkur samkvæmt
því,“ sagði Hanna. „Það verður
kannski bara glænýr þingflokkur
sem mætir í vinnu á mánudaginn.“
Hópsmit á Alþingi og þingmenn smitaðir