Morgunblaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 4
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjármála- og efnahagsráðuneytið vill ekki fallast á tillögur sem fram hafa komið um að virðisaukaskatts- ívilnun (VSK-ívilnun) vegna tengil- tvinnbíla verði framlengd um ára- mótin. Þetta kemur fram í umfjöllun ráðuneytisins um umsagnir sem bor- ist hafa við fjárlagafrumvarpið. Bílgreinasambandið, Samtök fyr- irtækja í ferðaþjónustu og Samtök verslunar og þjónustu gerðu í sam- eiginlegri umsögn athugasemdir við að ívilnunin vegna tengiltvinnbif- reiða muni lækka skv. frumvarpinu úr 960 þús. kr. á hverja bifreið í 480 þús. kr. og renni sitt skeið á enda þegar viðmið um 15 þúsund tengil- tvinnbifreiða hámarki verður náð, sem talið er að verði á fyrri hluta næsta árs. Í ítarlegri greinargerð ráðuneyt- isins eru tekin af öll tvímæli um að ekki sé rétt að ráðast í framlengingu á VSK-ívilnun vegna tengiltvinnbíla. Tillögur samtakanna um áframhald- andi aðgerðir í formi VSK-ívilnana fyrir tengiltvinnbíla hafi í för með sér gífurlegan kostnað fyrir ríkis- sjóð. Hann gæti samkvæmt grófu mati verið um 20 milljarðar kr. Það sé niðurstaða ráðuneytisins að ekki sé rétt að ráðast í framlengingu á þessari ívilnun vegna tengiltvinnbíla. Tugmilljarða kostnaður Ríkið hefur veitt rafmagns-, ten- giltvinn- og vetnisbílum VSK-íviln- anir í tæp tíu ár og hafa þær frá upp- hafi numið 21,2 milljörðum kr., þar af 11,4 milljörðum vegna tengiltvinn- bíla. Fjöldi tengiltvinnbíla er kominn upp í 13.226 samkvæmt upplýsing- um Skattsins og til samanburðar eru rafmagnsbílar liðlega tíu þúsund. Bent er á í greinargerðinni að orkuskipti í samgöngum eru komin á fullt skrið. Ríkisstjórnin hafi sett sér metnaðarfull markmið um að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullkomnum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaelds- neyti fyrst ríkja. Er vísað til þess að í Noregi hafi gengið hraðast að ná upp hlutdeild rafbíla og þar í landi beinist VSK-ívilnanir eingöngu að hrein- orkubílum. „Með því að ívilna einungis hrein- um rafmagnsbílum verða þeir mun hagkvæmari kostur fyrir þá sem vilja fara í orkuskipti. Samhljómur er um það meðal framleiðenda og annarra fagaðila að hreinorkubílar séu varanleg lausn og tengiltvinnbíl- ar séu tímabundin lausn,“ segir í greinargerð ráðuneytisins. Til þess að halda áfram og ljúka orkuskiptum getur að mati ráðu- neytisins reynst árangursríkara að fara í sértækari aðgerðir, s.s. að beina sjónum að nýjum markhópum líkt og tekjulægri heimilum og hleðsluinnviðauppbyggingu um allt land. „Fjármála- og efnahagsráðu- neytið telur að framlenging á VSK- ívilnun tengiltvinnbíla yrði ekki kostnaðarskilvirk aðgerð í loftslags- málum,“ segir í umfjölluninni. Skilvirkasta leiðin að skatt- leggja heildarakstur Orkuskipti í samgöngum hafa mikil áhrif á tekjur ríkissjóðs af skattheimtu af ökutækjum og elds- neyti. Ríkisendurskoðandi fjallar um það í umsögn við fjárlagafrumvarpið og bendir á að tekjur af þeim séu áætlaðar 39,8 milljarðar á næsta ári. Fyrir liggi að ríkið þurfi að taka upp nýtt tekjuöflunarkerfi til að fjár- magna samgönguframkvæmdir eftir því sem hlutdeild ökutækja sem knú- in eru jarðefnaeldsneyti minnkar. „Eftir því sem slíkum [rafknúnum] ökutækjum fjölgar verður brýnna að útfæra leiðir til að skattleggja einnig slík ökutæki sé ætlunin að láta eig- endur þeirra taka þátt í kostnaði við samgöngukerfið,“ segir hann og bendir á mögulegar leiðir í nýju tekjuöflunarkerfi. „Skilvirkasta leið- in til þess er líklega sú að skattleggja heildarakstur hvers ökutækis en til þess eru ýmsar leiðir, svo sem að eig- endur ökutækja tilkynni kílómetra- stöðu skv. ökumæli bifreiðarinnar og þær upplýsingar væru síðan sann- reyndar við reglulegar skoðanir við- urkenndra skoðunarstöðva.“ Ívilnun tengiltvinnbíla felld niður - Fjármálaráðuneytið fellst ekki á tillögur um framlengingu á ívilnun virðisaukaskatts fyrir tengil- tvinnbíla - Ber fyrir sig gífurlegan kostnað sem gæti numið 20 milljörðum og aðgerðir í loftslagsmálum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílaumferð Rafmagns- og tengiltvinnbílar eru 56% nýskráninga bifreiða það sem af er þessu ári. 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er slatti farinn út til ýmissa klúbba sem verða með skötuveislur en ég er með 4-500 kíló hérna í búð- inni og fæ meira á mánudag. Það er nóg til og ekki veitir af,“ segir Sigfús Sigurðsson, Fúsi fisksali í Skipholti. Margir hugsa sér gott til glóð- arinnar í næstu viku enda sjálf jólahátíðin fram undan og kannski ekki síður hinn heilagi forleikur, sjálf skötuveislan. Fúsi fisksali segir að margir bjóði upp á saltaða skötu eða dauft kæsta. Sjálfur vill hann hafa skötuna þykka og mikið kæsta. „Þetta á að vera alvörukæsing. Ef menn eru að þessu á annað borð þá á að vera bragð af. Menn eiga helst að svitna aðeins við að borða skötuna! Einhver sagði við mig að skatan væri best þegar hún er svo kæst að það flagnar innan af gómnum við að borða hana svo það verður líka skötubragð af jólamatnum,“ segir hann og hlær hrossahlátri. Úlfar Finnbjörnsson mat- reiðslumeistari verður með skötu- veislu á Grand hóteli á Þorláks- messu. Þar verður á boðstólum kæst vestfirsk skata, smáskata, saltfiskur, reykt og nætursöltuð ýsa, sköt- ustappa og hnoðmör svo fátt eitt sé nefnt. Úlfar segir að uppselt sé í veisluna og mikil eftirvænting hjá gestum. „Þarna eru sömu hóparnir og hittast ár eftir ár. Það var farið að hringja í okkur í ágúst til að spyrja hvort það yrði ekki skata í ár. Við gætum auðvitað að öllum takmörk- unum og allir þurfa að sanna að þeir séu hreinir af öllum veirum enda ætlum við ekki að missa af þessu fjöri.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Vígalegur Fúsi fisksali hefur í nógu að snúast við að selja þykka og vel kæsta skötu fyrir veislur næstu viku. Menn eiga helst að svitna aðeins við að borða skötu - Annir hjá Fúsa fisksala - Uppselt í skötuveislu á Grand Ekki er lengur til staðar þörf á framlengingu úrræðanna í tengslum við átaksverkefnið All- ir vinna, sem hefur falist í tíma- bundnum 100% endurgreiðslum virðisaukaskatts við byggingar- framkvæmdir, bílaviðgerðir o.fl. Þetta er mat skrifstofu skatta- mála í fjármálaráðuneytinu, sem sent hefur efnahags- og við- skiptanefnd ítarlegt minnisblað um þessar aðgerðir, sem að óbreyttu falla niður um áramót. 100% endurgreiðslurnar voru ákveðnar við upphaf kórónu- veirufaraldursins til að mæta efnahagslegum áhrifum hans. Fram kemur að ef endur- greiðslur vegna íbúðarhúsnæðis yrðu áfram 100% í stað 60% á næsta ári megi áætla að tekju- tap ríkissjóðs yrði 8,5 milljarðar kr. Ef útvíkkanir þessa úrræðis til annarra tegunda starfsemi yrðu framlengdar á næsta ári megi gróflega áætla tekjutap vegna þess upp á 3,5 milljarða kr. Ef þessi úrræði öll sem ákveð- in voru vegna faraldursins yrðu framlengd óbreytt yrði sam- anlagt tekjutap vegna þess um 12 milljarðar á árinu 2022. Á yfir- standandi ári hefur Skatturinn móttekið 61 þúsund umsóknir um endurgreiðslur virðis- aukaskatts. Framlenging sögð óþörf ÁTAKIÐ ALLIR VINNA MANNDÝRIÐ EINAR ÞORGRÍMSSON MANN DÝRIÐ er beint framhald af Óðali óttans sem seldist vel Fæst í Eymundsson Veitir lesendum dýpra skyn á jákvætt samhengi í mótun umhverfis og hvetur til eigin hugsana í opnum skipulagsumræðum FLÉTTAÐ INN Í BORGARVEFINN OG LANDSLAGIÐ Penninn • Forlagið • Bóksala stúdenta • Mál og menning Verð 2.990 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.