Morgunblaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ox kom af himnum og steypti sér
beint í djúpsjó undirmeðvitundar-
innar. Þar óx hann inni í mér, nærð-
ist á öllum mínum upplifunum og
demöntum sem ég hafði safnað úr
botnum brunna erfiðra tímabila.
Hann fæddist í vatni, stökk svo út á
tún og ég bara hló, elskaði hann og
leyfði honum að leika sér.“ Tónlistar-
konan og tónskáldið Gyða Valtýs-
dóttir er að segja frá nýrri plötu
sinni, Ox, hennar fjórðu, sem kom út
á dögunum. Á unglingsaldri var Gyða
einn stofnenda hljómsveitarinnar
múm sem átti eftir að koma fram
víða um lönd. Hún lærði á selló og
tónsmíðar hér heima en líka í Rúss-
landi og í Sviss, og hún hefur átt í
frjóu samstarfi við ýmsa og ólíka
listamenn víða. Ox er önnur sólóplata
Gyðu þar sem hún semur alla tónlist
sjálf en á hinum tveimur, Epicycle I
og II, fékk hún ólík tónskáld og tón-
listarmenn til að leggja fram lögin.
Fyrir tveimur árum hlaut Gyða hin
virtu Tónlistarverðlaun Norður-
landaráðs „fyrir tónlistarflutning þar
sem sköpunarkrafturinn brýst fram
með afgerandi rödd, frumlegum
hljóðfæraleik og miklum persónu-
töfrum“.
Þegar Gyða er spurð út í muninn á
verklaginu við síðustu plötur sínar,
annars vegar að vinna með tónverk
annarra og hins vegar semja allt
sjálf, þá svarar hún: „Á Epicycle II
fékk hvert tónskáld/tónlistamaður al-
gjörlega að ráða hvað þau vildu gera
og hvernig þau vildu vinna með mér.
Svo ég varð bara að treysta að úr
yrði heilsteypt plata. Það var mjög
hollt að fara í gegnum svona ferli sem
maður hefur ekki fulla stjórn á. Í
raun reyni ég yfirleitt að nálgast
vinnu mína á þann hátt, læt eitthvað
af stjórn, leyfi einhverjum leikbrúðu-
meistara lífsins að dansa við mig.“
Ox fæddist síðan í heimsfaraldri
kórónuveirunnar.
„Í upphafi faraldursins fannst mér
mjög erfitt að ná nokkrum fókus,“
segir Gyða. „Ég var í Brooklyn og
þar gjörbreyttist lífið á hátt sem við
höfum aldrei þurft að upplifa hér á
Íslandi. En það myndaðist sterk
samfélagsvitund á meðal listamanna
þar. Við hittumst á netinu á hverjum
morgni til að gera æfingar, bjuggum
til okkar eigin verslun til að kaupa
inn mat sem við keyrðum um á milli
húsa því það var svo erfitt að versla.
Við skipulögðum einnig vikur þar
sem við urðum að semja eitt lag á
dag, sem var svo sent á allan hópinn.
Þrjú lagana á Ox uxu út frá því.
En þótt að maður hafi haft miklu
meiri tíma þá vantaði algjörlega
ramma, það var enginn túr til að
stefna að eða neitt svoleiðis. Svo í
haust þá fékk ég sumarhús við Þing-
vallavatn í láni í tíu daga og fór þang-
að með Úlfi Hanssyni,“ – hann kom
að upptökunum og hljóðblöndun
plötunnar með Gyðu – „og setti mér
það markmið að klára plötuna. Ég
var þá komin langt með flest lögin en
var enn að vinna í útsetningum og
einu laginu hafði ég ekki einu sinni
byrjað á. Ég sat því þarna uppi í sveit
og skrifaði útsetningar sem ég sendi
svo til New York og fékk upptök-
urnar svo sendar í tölvupósti nokkr-
um tímum síðar.“
Að koma sjálfri sér á óvart
Fjölhæfir tónlistarmenn koma við
sögu á plötunni, þar á meðal Kjartan
Sveinsson (Sigur Rós) Indre Jurge-
leviciûte & Bert Cools (Merope) Alex
Sopp og Julians Sartorius.
„Allt fólkið sem ég vinn með á Ox
semur sína eigin tónlist og ég er
aðdáandi þeirra. Það er þvílíkur heið-
ur að fá þau til að spila á plötunni,“
segir Gyða. „Á Evolution spilaði ég
nánast allt sjálf en ég vildi hafa
stærri hljóðheim á Ox. Ég nota mikið
flautu og klarinett í útsetningunum
en það er aðallega út af fólkinu sjálfu
frekar en hljóðfærunum sem þau
spila á. Klarinettuleikarinn Doug
Wieselmann mætti heim til mín viku-
lega í kóvitinu, til að spila „Kvartet
fyrir endalok tímans“ eftir Messiaen
og stundum eftir æfingar fékk ég
hann til að spila litlar útsetningar
fyrir Ox. Ég vissi að ég ætti að vinna
plötuna með Úlfi, við höfum oft unnið
saman áður og það er alltaf svo mikið
flæði. Mér fannst hann skilja svo vel
hvað ég væri að gera og leitast eftir.
Svo smíðaði pabbi hans líka sellóið
mitt.
En já, ég vinn yfirleitt með fólki
sem ég finn sterka tengingu við og þá
ekki bara tónlistarlega tengingu
heldur á margvíslegan hátt.“
Textar Gyðu eru athyglisverðir –
líkamlegir og innilegir; verða þeir til
á undan lögunum?
„Yfirleitt á sama tíma, nema text-
arnir „Black Swan“ og „Heavenly Pi-
racy“,“ svarar hún.
„Ég samdi textann fyrir „Black
Swan í algjöru“ „stream of con-
sciousness“ á meðan ég var fárveik,
þar þakka ég líkama mínum fyrir að
neyða mig til að staldra við. „Hea-
venly Piracy“ byrjaði sem tölvu-
póstur, ég skrifaði hann fyrir sjö ár-
um og hef flutt hann á mismunandi
vegu en þetta er alveg ný útgáfa á
plötunni. Ég samdi textann rétt eftir
að eldgosið í Holuhrauni byrjaði, svo
ég byrjaði á því að vinna með upp-
tökur af Fagradalsfjalli. Ég sé það út
um svefnherbergisgluggann minn.
Við bjuggum til rytma úr upptök-
unum frá eldgosinu og svo fékk ég
fólk til að senda mér parta sem við
púsluðum saman.“
Sellóið er hljóðfæri Gyðu en semur
hún tónlistina á það?
„Ég byrja yfirleitt ekki að semja á
sellóið. En það er þó draumur, einn
daginn mun ég gera sóló-sellóplötu,
bara ein rödd – helst allt spunnið.
Það verður hápunktur feril míns. En
ég er ekki komin þangað. Lögin á Ox
urðu flest til við píanóið. Annars er
ég ekki með neinn ákveðinn hátt við
að semja, reyni yfirleitt að breyta til
og finna nýjar leiðir til að koma
sjálfri mér á óvart. En ég nota sellóið
svo mikið við útsetningu laganna.“
Þegar Gyða er spurð að því hvort
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
hafi breytt einhverju, hvort þau hafi
aukið einhverja pressu á hana, þá
kemur spurningin henni á óvart.
„Heyrðu nei, ég fann ekki fyrir
neinu. Nema kannski inni í mér, ég
þurfti að útskýra fyrir sjálfri mér
hvernig það gat staðið að ég hafi
hlotið þessi verðlaun. Þurfti að sjá og
sætta mig við að ég væri búin að gera
fullt. Ég ætla mér bara svo miklu
meir. En í raun byrjaði kóvid stuttu
síðar og allt staðnaði.“
Mosa-tónlist og myndbönd
En hvað er fram undan – mun
Gyða fylgja plötunni eftir með tón-
leikum? Og bíða önnur verkefni?
„Ég vonast til að geta byrjað að
spila aftur næsta vor. Þangað til er
ég að semja tónlist fyrir heimildar-
mynd um mosa. Ég finn svo mikinn
innblástur frá mosanum að ég held
að þetta verði bara næsta plata,
mosa-tónlist. Svo er ég að gera tón-
listarmyndbönd fyrir Ox, ég var að
taka upp þriðja myndbandið í síðustu
viku og er með hugmyndir fyrir þrjú
í viðbót.
En núna í janúar fer ég upp í fjöll í
Perú með gamalli seiðkonu og verð
þar í þrjár vikur að læra á plöntur,
vefnað, söng og heilun.“
Gyða sem sagt vinnur þessa dag-
ana að gerð margra tónlistarmynd-
banda við lögin á plötunni nýju.
Blaðamaður hitti hana á dögunum í
stúdíói þar sem hún var að vinna að
einu þeirra ásamt ballerínunni Juliet
Burnett. Um vídeóin sagði Gyða þá
að hugmyndirnar hafi leitað á sig.
„Eitt þeirra kom til dæmis þegar ég
var að mixa plötuna og sá þá fyrir
mér ballerínudúett í einu laginu. Ég
hef svo sem engan sérstakan áhuga á
ballett en var samt að fylgja Juliet á
Instagram og hafði samband við
hana. Svo skrifaði hún mér um dag-
inn, sagðist vera laus í næstu viku og
hvort hún ætti ekki að koma til Ís-
lands. Hún mætti og við höfðum þrjá
daga til að búa til dansinn og taka
upp vídeó. Ég var þá allt í einu komin
í ballerínubúning,“ segir Gyða og
hlær. „Þessa dagana þarf ég að passa
mig á því hvers ég óska mér, því ósk-
irnar rætast mjög hratt.“
Nú um helgina kemur út annað
vídeó við lag á plötunni, „Miracle“.
„Ég sá það fyrir mér á laugardegi
og gerði það á mánudegi. Vídeóin eru
enn þá frekar heimagerð, ég hef ekki
mikið fjármagn til að vinna með, en
það gerir þau kannski enn persónu-
legri,“ segir Gyða.
„Þegar ég fæ svona ákveðna sýn á
útfærslu þá reyni ég að láta það fæð-
ast. Eins og ballerínuvídeóið – aldrei
hefur mig dreymt um að dansa ball-
ett en var svo allt í einu komin í tutu.
Í þessu er skemmtilegur leikur sem
ég leyfði mér ekki þegar ég var yngri
því ég tók mig þá svo alvarlega. Áður
var ég mun gagnrýnni á hugmynd-
irnar mínar en nú finnst mér
skemmtilegt að leyfa þeim að koma
mér á óvart.
Mér finnst vídeó ekki alltaf bæta
einhverju við tónlistina en það er
samt alltaf markmiðið að ýta undir
orkuna í henni. Ég hef mjög gaman
af því að gera plötur sem heild og allt
sem tengist þeim, hvaða lög eiga
heima saman og hvaða saga verður
til þegar þau eru þrædd í eina heild.
En líka hönnun umslagsins og ein-
mitt gerð myndbanda. Það er allt
hluti af sköpuninni og því að vera
listamaður. Þegar maður er með
skapandi hug þá stoppar það ekki
endilega í einu formi,“ segir Gyða.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ballerína „Þegar maður er með skapandi hug þá stoppar það ekki endilega í einu formi,“ segir Gyða Valtýsdóttir.
Hún er hér við tökur á einu af þeim tónlistarmyndböndum sem eru gerð við lög á nýrri plötu hennar, Ox.
„Í djúpsjó undirmeðvitundarinnar“
- Ox er ný plata Gyðu Valtýsdóttur - Eftir að hafa samið hluta laganna í Brooklyn innilokuð í
heimsfaraldrinum kláraði hún plötuna í bústað við Þingvallavatn - Sex ný tónlistarmyndbönd
Leikur Stilla úr splunkunýju myndbandi við lagið Miracle á Ox.