Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 52

Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ox kom af himnum og steypti sér beint í djúpsjó undirmeðvitundar- innar. Þar óx hann inni í mér, nærð- ist á öllum mínum upplifunum og demöntum sem ég hafði safnað úr botnum brunna erfiðra tímabila. Hann fæddist í vatni, stökk svo út á tún og ég bara hló, elskaði hann og leyfði honum að leika sér.“ Tónlistar- konan og tónskáldið Gyða Valtýs- dóttir er að segja frá nýrri plötu sinni, Ox, hennar fjórðu, sem kom út á dögunum. Á unglingsaldri var Gyða einn stofnenda hljómsveitarinnar múm sem átti eftir að koma fram víða um lönd. Hún lærði á selló og tónsmíðar hér heima en líka í Rúss- landi og í Sviss, og hún hefur átt í frjóu samstarfi við ýmsa og ólíka listamenn víða. Ox er önnur sólóplata Gyðu þar sem hún semur alla tónlist sjálf en á hinum tveimur, Epicycle I og II, fékk hún ólík tónskáld og tón- listarmenn til að leggja fram lögin. Fyrir tveimur árum hlaut Gyða hin virtu Tónlistarverðlaun Norður- landaráðs „fyrir tónlistarflutning þar sem sköpunarkrafturinn brýst fram með afgerandi rödd, frumlegum hljóðfæraleik og miklum persónu- töfrum“. Þegar Gyða er spurð út í muninn á verklaginu við síðustu plötur sínar, annars vegar að vinna með tónverk annarra og hins vegar semja allt sjálf, þá svarar hún: „Á Epicycle II fékk hvert tónskáld/tónlistamaður al- gjörlega að ráða hvað þau vildu gera og hvernig þau vildu vinna með mér. Svo ég varð bara að treysta að úr yrði heilsteypt plata. Það var mjög hollt að fara í gegnum svona ferli sem maður hefur ekki fulla stjórn á. Í raun reyni ég yfirleitt að nálgast vinnu mína á þann hátt, læt eitthvað af stjórn, leyfi einhverjum leikbrúðu- meistara lífsins að dansa við mig.“ Ox fæddist síðan í heimsfaraldri kórónuveirunnar. „Í upphafi faraldursins fannst mér mjög erfitt að ná nokkrum fókus,“ segir Gyða. „Ég var í Brooklyn og þar gjörbreyttist lífið á hátt sem við höfum aldrei þurft að upplifa hér á Íslandi. En það myndaðist sterk samfélagsvitund á meðal listamanna þar. Við hittumst á netinu á hverjum morgni til að gera æfingar, bjuggum til okkar eigin verslun til að kaupa inn mat sem við keyrðum um á milli húsa því það var svo erfitt að versla. Við skipulögðum einnig vikur þar sem við urðum að semja eitt lag á dag, sem var svo sent á allan hópinn. Þrjú lagana á Ox uxu út frá því. En þótt að maður hafi haft miklu meiri tíma þá vantaði algjörlega ramma, það var enginn túr til að stefna að eða neitt svoleiðis. Svo í haust þá fékk ég sumarhús við Þing- vallavatn í láni í tíu daga og fór þang- að með Úlfi Hanssyni,“ – hann kom að upptökunum og hljóðblöndun plötunnar með Gyðu – „og setti mér það markmið að klára plötuna. Ég var þá komin langt með flest lögin en var enn að vinna í útsetningum og einu laginu hafði ég ekki einu sinni byrjað á. Ég sat því þarna uppi í sveit og skrifaði útsetningar sem ég sendi svo til New York og fékk upptök- urnar svo sendar í tölvupósti nokkr- um tímum síðar.“ Að koma sjálfri sér á óvart Fjölhæfir tónlistarmenn koma við sögu á plötunni, þar á meðal Kjartan Sveinsson (Sigur Rós) Indre Jurge- leviciûte & Bert Cools (Merope) Alex Sopp og Julians Sartorius. „Allt fólkið sem ég vinn með á Ox semur sína eigin tónlist og ég er aðdáandi þeirra. Það er þvílíkur heið- ur að fá þau til að spila á plötunni,“ segir Gyða. „Á Evolution spilaði ég nánast allt sjálf en ég vildi hafa stærri hljóðheim á Ox. Ég nota mikið flautu og klarinett í útsetningunum en það er aðallega út af fólkinu sjálfu frekar en hljóðfærunum sem þau spila á. Klarinettuleikarinn Doug Wieselmann mætti heim til mín viku- lega í kóvitinu, til að spila „Kvartet fyrir endalok tímans“ eftir Messiaen og stundum eftir æfingar fékk ég hann til að spila litlar útsetningar fyrir Ox. Ég vissi að ég ætti að vinna plötuna með Úlfi, við höfum oft unnið saman áður og það er alltaf svo mikið flæði. Mér fannst hann skilja svo vel hvað ég væri að gera og leitast eftir. Svo smíðaði pabbi hans líka sellóið mitt. En já, ég vinn yfirleitt með fólki sem ég finn sterka tengingu við og þá ekki bara tónlistarlega tengingu heldur á margvíslegan hátt.“ Textar Gyðu eru athyglisverðir – líkamlegir og innilegir; verða þeir til á undan lögunum? „Yfirleitt á sama tíma, nema text- arnir „Black Swan“ og „Heavenly Pi- racy“,“ svarar hún. „Ég samdi textann fyrir „Black Swan í algjöru“ „stream of con- sciousness“ á meðan ég var fárveik, þar þakka ég líkama mínum fyrir að neyða mig til að staldra við. „Hea- venly Piracy“ byrjaði sem tölvu- póstur, ég skrifaði hann fyrir sjö ár- um og hef flutt hann á mismunandi vegu en þetta er alveg ný útgáfa á plötunni. Ég samdi textann rétt eftir að eldgosið í Holuhrauni byrjaði, svo ég byrjaði á því að vinna með upp- tökur af Fagradalsfjalli. Ég sé það út um svefnherbergisgluggann minn. Við bjuggum til rytma úr upptök- unum frá eldgosinu og svo fékk ég fólk til að senda mér parta sem við púsluðum saman.“ Sellóið er hljóðfæri Gyðu en semur hún tónlistina á það? „Ég byrja yfirleitt ekki að semja á sellóið. En það er þó draumur, einn daginn mun ég gera sóló-sellóplötu, bara ein rödd – helst allt spunnið. Það verður hápunktur feril míns. En ég er ekki komin þangað. Lögin á Ox urðu flest til við píanóið. Annars er ég ekki með neinn ákveðinn hátt við að semja, reyni yfirleitt að breyta til og finna nýjar leiðir til að koma sjálfri mér á óvart. En ég nota sellóið svo mikið við útsetningu laganna.“ Þegar Gyða er spurð að því hvort Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs hafi breytt einhverju, hvort þau hafi aukið einhverja pressu á hana, þá kemur spurningin henni á óvart. „Heyrðu nei, ég fann ekki fyrir neinu. Nema kannski inni í mér, ég þurfti að útskýra fyrir sjálfri mér hvernig það gat staðið að ég hafi hlotið þessi verðlaun. Þurfti að sjá og sætta mig við að ég væri búin að gera fullt. Ég ætla mér bara svo miklu meir. En í raun byrjaði kóvid stuttu síðar og allt staðnaði.“ Mosa-tónlist og myndbönd En hvað er fram undan – mun Gyða fylgja plötunni eftir með tón- leikum? Og bíða önnur verkefni? „Ég vonast til að geta byrjað að spila aftur næsta vor. Þangað til er ég að semja tónlist fyrir heimildar- mynd um mosa. Ég finn svo mikinn innblástur frá mosanum að ég held að þetta verði bara næsta plata, mosa-tónlist. Svo er ég að gera tón- listarmyndbönd fyrir Ox, ég var að taka upp þriðja myndbandið í síðustu viku og er með hugmyndir fyrir þrjú í viðbót. En núna í janúar fer ég upp í fjöll í Perú með gamalli seiðkonu og verð þar í þrjár vikur að læra á plöntur, vefnað, söng og heilun.“ Gyða sem sagt vinnur þessa dag- ana að gerð margra tónlistarmynd- banda við lögin á plötunni nýju. Blaðamaður hitti hana á dögunum í stúdíói þar sem hún var að vinna að einu þeirra ásamt ballerínunni Juliet Burnett. Um vídeóin sagði Gyða þá að hugmyndirnar hafi leitað á sig. „Eitt þeirra kom til dæmis þegar ég var að mixa plötuna og sá þá fyrir mér ballerínudúett í einu laginu. Ég hef svo sem engan sérstakan áhuga á ballett en var samt að fylgja Juliet á Instagram og hafði samband við hana. Svo skrifaði hún mér um dag- inn, sagðist vera laus í næstu viku og hvort hún ætti ekki að koma til Ís- lands. Hún mætti og við höfðum þrjá daga til að búa til dansinn og taka upp vídeó. Ég var þá allt í einu komin í ballerínubúning,“ segir Gyða og hlær. „Þessa dagana þarf ég að passa mig á því hvers ég óska mér, því ósk- irnar rætast mjög hratt.“ Nú um helgina kemur út annað vídeó við lag á plötunni, „Miracle“. „Ég sá það fyrir mér á laugardegi og gerði það á mánudegi. Vídeóin eru enn þá frekar heimagerð, ég hef ekki mikið fjármagn til að vinna með, en það gerir þau kannski enn persónu- legri,“ segir Gyða. „Þegar ég fæ svona ákveðna sýn á útfærslu þá reyni ég að láta það fæð- ast. Eins og ballerínuvídeóið – aldrei hefur mig dreymt um að dansa ball- ett en var svo allt í einu komin í tutu. Í þessu er skemmtilegur leikur sem ég leyfði mér ekki þegar ég var yngri því ég tók mig þá svo alvarlega. Áður var ég mun gagnrýnni á hugmynd- irnar mínar en nú finnst mér skemmtilegt að leyfa þeim að koma mér á óvart. Mér finnst vídeó ekki alltaf bæta einhverju við tónlistina en það er samt alltaf markmiðið að ýta undir orkuna í henni. Ég hef mjög gaman af því að gera plötur sem heild og allt sem tengist þeim, hvaða lög eiga heima saman og hvaða saga verður til þegar þau eru þrædd í eina heild. En líka hönnun umslagsins og ein- mitt gerð myndbanda. Það er allt hluti af sköpuninni og því að vera listamaður. Þegar maður er með skapandi hug þá stoppar það ekki endilega í einu formi,“ segir Gyða. Morgunblaðið/Einar Falur Ballerína „Þegar maður er með skapandi hug þá stoppar það ekki endilega í einu formi,“ segir Gyða Valtýsdóttir. Hún er hér við tökur á einu af þeim tónlistarmyndböndum sem eru gerð við lög á nýrri plötu hennar, Ox. „Í djúpsjó undirmeðvitundarinnar“ - Ox er ný plata Gyðu Valtýsdóttur - Eftir að hafa samið hluta laganna í Brooklyn innilokuð í heimsfaraldrinum kláraði hún plötuna í bústað við Þingvallavatn - Sex ný tónlistarmyndbönd Leikur Stilla úr splunkunýju myndbandi við lagið Miracle á Ox.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.