Morgunblaðið - 18.12.2021, Side 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ekki verður lengur undan því vikist
að færa Fossvallarétt, lögrétt Sel-
tjarnarneshrepps hins forna, norður
fyrir Suðurlandsveg. Flest leyfi
vegna nýrrar réttar liggja fyrir og
gerir Ólafur Dýrmundsson,
búvísindamaður og fjáreigandi í
Reykjavík, sér vonir um að hægt
verði að hefjast handa við jarðvinnu
í vetur.
Ólafur segir að það sé merkilegt
að Reykjavík sé sennilega eina
höfuðborgin í heiminum sem eigi að-
ild að afrétti og lögrétt sé á höfuð-
borgarsvæðinu. Sjálfur er Ólafur
fjallkóngur og markavörður og segir
að fornum venjum og siðum sé fylgt
við göngur og réttir. Hann vinnur
nú að því að skrifa sögu sauðfjár-
búskapar í Kópavogi, Reykjavík og
Seltjarnarnesi, sem nýta afrétt
Setltjarnaneshrepps hins forna.
Reyndar hefur verið fjárlaust á Sel-
tjarnarnesi í 55 ár.
Réttardagurinn vinsæll
Um 600 fjár koma til réttar í
Fossvallarétt á hverju hausti, en
auk fjáreigenda í Kópavogi og
Reykjavík kemur þangað fé úr Ölf-
usi, Grafningi og Þingvallasveit. Fé
af þessum slóðum kemur einnig til
réttar í Húsmúlarétt, norðaustur af
Kolviðarhóli, en hún er sundurdrátt-
arrétt og smala Ölfusingar til henn-
ar.
Það er þó ekki aðeins fé sem
kemur til Fossvallaréttar, því fjöldi
fólks hefur ævinlega fylgst með
réttarstörfum, ekki síst börn af leik-
skólum á höfuðborgarsvæðinu. Þá
nefnir Ólafur að það hafi verið vin-
sælt hjá fjölskyldum varnarliðs-
manna á Keflavíkurflugvelli að
heimsækja fjárbændur á réttardegi
á sínum tíma.
Aðstoð lögreglu og Vegagerðar
Fyrir um 20 árum var svæðið
sunnan Suðurlandsvegar friðað frá
Lögbergsbrekku og er beitarhólfið
því norðan vegarins með tilheyrandi
vörslugirðingum. „Eftir að Suður-
landsvegur var tvöfaldaður á þess-
um slóðum fyrir um áratug sköp-
uðust erfiðleikar við að reka fé til
réttar sunnan vegar. Að auki er
Fossvallarétt komin til ára sinna,
nánast að falli komin, og frá 2001
hefur hún verið á beitarfriðuðu
svæði.
Áður fyrr var Lækjarbotnarétt
inn undir Selfjalli, en fyrri Foss-
vallarétt var byggð í Lækjarbotna-
landi 1955 og ný rétt á sama stað
1973. Hún hefur oft verið kölluð
Lögbergsrétt og nú er komið að því
að finna henni nýjan stað.
Á réttardegi þurfum við að fá
Vegagerðina til að taka niður kapal
eða víravirki á milli akreina og
leggja þökur yfir til að koma fé og
hestum yfir veginn. Það gerist þó
ekki fyrr en við höfum fengið lög-
regluna til að loka báðum akreinum
vegarins þar sem oft er mikil um-
ferð. Þegar yfir er komið þá eru
gömlu girðingarnar orðnar lélegar
og töluverð fyrirhöfn að koma fénu
þennan spöl yfir í réttina. Þessi
staðsetning austan Lögbergsbrekk-
unnar hefur því ýmis óþægindi í för
með sér núorðið.“
Staðsetning væntanlegrar réttar
er við Fossvallaá nyrðri sem einnig
hefur heitið Heiðarbrúnarkvísl. Hún
mun standa á Mosum, neðst í
Fóelluvötnum neðri, í afrétti
Seltjarnarneshrepps hins forna. Allt
gangna- og réttahald annast Fjár-
eigendafélag Reykjavíkur og Sauð-
fjáreigendafélag Kópavogs í umboði
sveitarfélaganna.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs er
afrétturinn þjóðlenda með óskertum
rétti til sauðfjárbeitar allur innan
lögsagnarumdæmis Kópavogs, sem
fer því með skipulagsvaldið. Hann
er innan svokallaðs norðurhólfs,
ásamt heiðalöndum í Mosfellsbæ,
Þingvallasveit, Grafningi og Ölfusi.
Fossvallarétt hefur verið lögrétt
síðan 1986 en áður var Hafravatns-
rétt lögréttin.
Jákvæð svör í leyfisferli
Ný rétt og staðsetning hennar
hefur verið í ferli frá 2014 og var þá
sótt um ýmis leyfi, m.a. til forsætis-
ráðuneytis sem fer með mál þjóð-
lenda. Af fjárhagsástæðum meðal
annars lá málið síðan niðri þar til í
ár að sögn Ólafs. Sótt hefur verið
um nauðsynleg leyfi og segir hann
að svör hafi verið jákvæð, m.a. frá
Mosfellsbæ, Landsneti og
heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis.
Í umsögn nefndarinnar segir að
bæði Fossvallarétt og áformuð rétt
séu á fjarsvæði vatnsverndar.
Standi vilji til að gera nýja lögrétt
vegna sauðfjárhalds á höfuðborg-
arsvæðinu muni heilbrigðisnefndin
ekki leggjast gegn framkvæmdinni.
Nefndin telur þó að kanna hefði
mátt betur hvort finna mætti rétt-
inni annan stað. Að sögn Ólafs er
það torvelt vegna háspennulína og
framkvæmdaleyfið verði vonandi af-
greitt á næstunni.
Hófleg stærð á nýju réttinni
Nýja réttin á að vera hringlaga
samkvæmt grunnteikningu Ólafs,
líkt og Ölfusrétt sem hann teiknaði
2016. Gamla Fossvallaréttin er fer-
hyrnd eins og Húsmúlarétt sem
Ólafur teiknaði 2006. Hann teiknaði
einnig Krýsuvíkurrétt 2009 en þar
er almenningurinn sexstrendur.
Stærð nýju réttarinnar verður
sniðin eftir þörfum, en nú eru rúm-
lega 200 vetrarfóðraðar kindur í
upprekstrarfélaginu. Töluvert af fé
kemur einnig úr öðrum sveitar-
félögum sem eiga aðild að norður-
hólfi, einkum úr Ölfusi. Því er
reiknað með um 600 fjár komi í
fyrri rétt en fáeinir tugir í seinni
rétt.
Fjárrétt borgarbúa á nýjan stað
- Ný Fossvallarétt norðan við Suðurlandsveg - Er á beitarfriðuðu svæði - Verður á Mosum, neðst
í Fóelluvötnum neðri - Fornum venjum og siðum fylgt við göngur og réttir, segir fjallkóngurinn
Ljósmynd/Geir A. Guðsteinsson
Réttardagur Fólk og fé í Fossvallarétt, sennilega haustið 2005. Ólafur Dýrmundsson ræðir við einn fjölmargra réttargesta sem tóku þátt í störfunum.
Lo
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
Núverandi rétt
Sunnan við
Suðurlandsveg
Ný Fossvallarétt
Norðan við Suður-
landsveg
KÓPAVOGUR
ÖLFUS
MOSFELLSBÆR
Sandskeið
Suðurlandsvegur
Lyklafell
Ný Fossvallarétt