Morgunblaðið - 18.12.2021, Qupperneq 49
DÆGRADVÖL 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
„HVAR ER PYLSAN MÍN?!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að horfa saman á
hryllingsmyndir.
Í STAÐ ÞESS AÐ LESA
FRÉTTIR SKULUM VIÐ SKOÐA
MYNDIR FRÁ FRÍINU MÍNU
HÉR ERU MÁVAR AÐ
RÁÐAST Á MIG
OG FLEIRI
MÁVAR … OG
FLEIRI MÁVAR!
LÁTTU ÞÁ
BARA FÁ
SAMLOKUNA!
HRÓLFUR, ÞAÐ RIGNIR ENN! HVAÐ EF
ÁIN FLÆÐIR YFIR BAKKA SÍNA OG
DALURINN FER Á KAF?
ÉG ER
TILBÚINN!
„ÞETTA ER MINN KVIÐUR. ÞAÐ KLAPPAR
MÉR ENGINN Á KVIÐINN GEGN VILJA
MÍNUM.“
frændi vorum mjög góðir vinir og
gott samband á milli okkar.“
Hestar eru aðaláhugamálið hjá
Ásrúnu. „Góður reiðtúr í góðu veðri
er það besta sem hægt er að hugsa
sér og ég tala nú ekki um reiðtúr á
Löngufjörum á Snæfellsnesi. Ef
himnaríki er til þá trúi ég að himna-
ríki sé eins og Löngufjörur. Ég
elska sundlaugar og syndi töluvert.
Nýjasta ástríðan er að spila brids,
ég er búin að fara á tvö námskeið, 1
og 2. Svo er bara að æfa sig að spila
og spila, æfingin skapar meistarann.
Ég ætla að fagna deginum með
afmælisveislu, þar sem þennan
stóra dag ber upp á laugardag, með
fjölskyldu og nánustu vinum.“
Fjölskylda
Maki Ásrúnar er Örlygur V.
Árnason, f. 12.7. 1958, húsasmíða-
meistari.
Synir Ásrúnar eru 1) Viktor Ari,
f. 4.3. 1988, iðnaðarverkfræðingur,
búsettur í Reykjavík; 2) Þorbergur,
f. 2.1. 1995, sjómaður, búsettur í
Reykjavík.
Systkini Ásrúnar eru 1) Mál-
fríður, f. 1.2. 1957, sjúkraliði, fótaað-
gerðafræðingur og bóndi á Hríshóli
í Reykhólasveit; 2) Anna, f. 6.9.
1958, gjörgæsluhjúkrunarfræð-
ingur, búsett í Garðabæ; 3) Sigrún,
f. 27.12. 1959, bankastarfsmaður,
búsett í Kópavogi; 4) Sigurjón, f.
18.3. 1967, meltingarlæknir, búsett-
ur í Kópavogi.
Foreldrar Ásrúnar voru hjónin
Vilberg Sigurjónsson, f. 13.4. 1931,
d. 27.1. 1991, útvarpsvirki og kaup-
maður. Hann rak verslun sem hét
Radiostofa Vilbergs og Þorsteins,
og var á Laugavegi 80, lengst af, og
Sólveig S. Ellertsdóttir, f. 13.7.
1932, d. 10.1. 1979, húsmóðir.
Ásrún
Vilbergsdóttir
Skúli Gíslason
kennari í Reykhólasveit
Rósamunda Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja í Reykhólasveit,
síðar vinnukona í Rvík
Sigurjón Skúlason
vélvirki í Reykjavík
Málfríður Anna Margrét Ásmundsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Vilberg Sigurjónsson
útvarpsvirki og kaupmaður, rak
Radiostofu Vilbergs og Þorsteins
á Laugavegi, Rvík, bjó í Kópavogi
Ásmundur Ásmundsson
smiður í Reykjavík, síðar bóndi og
smiður í Geysisbyggð
í Manitoba, Kanada
Vilborg Rögnvaldsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Þórður Þórðarson
kaupmaður í Reykjavík
Þórný Þórðardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Axel Hafsteinn Þórðarson
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Anna Ársælsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ársæll Brynjólfsson
sjómaður í Reykjavík
Arndís Helgadóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ætt Ásrúnar Vilbergsdóttur
Sólveig S. Ellertsdóttir
húsmóðir í Kópavogi,
kjörfaðir hennar var Ellert
Ágúst Magnússon
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Þann á bæjarburst ég sá.
Bunan vellur honum frá.
Montinn er hann ekkert smá.
Einatt má á byssu sjá.
Þetta er lausnin frá Hörpu á
Hjarðarfelli:
Á burst þar haninn hreykir sér.
Úr hananum vatnið lekur.
Monthaninn hann mikinn fer.
Maður í hanann tekur.
Eysteinn Pétursson svarar:
Vindhana á bæjarburst ég sá.
Buna vellur hana frá.
Spígspora haninn mikið má.
Megum svo hana á byssu sjá.
„Lausnin vill vera svona“ hjá
Helga R. Einarssyni:
Vindhaninn er húsum á.
Hana kemur bunan frá.
Hænugreyin hanann þrá.
Hanann má á byssum sjá.
Guðrún B. leysir gátuna svona:
Vindhani á bæjarburst.
Úr brunahana vellur,
en monthaninn oft gefur gust
og Glock, án hana, smellur.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Hana á bæjarburst ég sá.
Bunar vatnið hana frá.
Hani montinn maður þá.
Má á byssu hana sjá.
Þá er limra:
Heilluð af Halli var Svana,
henni var illa við Grana
Fellsmúla frá,
en fanturinn sá
hallur var undir hana.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Hríðarbylur úti er,
ekki milli húsa sér,
samt er andinn yfir mér
og enn til reiðu gáta hér:
Vegur þetta virðist mér.
Vafalaust á fæti þér.
Langt og mjótt á landi hér.
Líka fremst á skeifu er.
Sigrún Haraldsdóttir orti á
fimmtudag:
Vælir hátt með vonskuhvin
vindur austan kemur,
reiðilega rigningin
ræðst á mig og lemur.
Kristján H. Theódórsson yrkir:
Sjúkan margan seðja kann,
sýndur veislukostur.
Grautarslettan gleður mann,
og gatasexuostur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hani og hananú!