Morgunblaðið - 18.12.2021, Page 50

Morgunblaðið - 18.12.2021, Page 50
50 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 Olísdeild karla Víkingur – KA....................................... 22:31 ÍBV – Stjarnan ..................................... 20:31 HK – Valur............................................ 29:31 Haukar – Afturelding .......................... 30:29 Grótta – FH .......................................... 21:25 Staðan: FH 13 9 2 2 365:326 20 Haukar 13 9 2 2 388:353 20 Stjarnan 13 8 2 3 387:369 18 Valur 12 8 2 2 343:309 18 ÍBV 13 8 1 4 387:386 17 Selfoss 13 7 1 5 342:335 15 Afturelding 13 4 4 5 371:365 12 KA 13 6 0 7 367:375 12 Fram 12 4 2 6 339:343 10 Grótta 12 3 1 8 314:326 7 Víkingur 13 1 0 12 293:369 2 HK 12 0 1 11 318:358 1 Grill 66-deild kvenna Grótta – Víkingur ................................. 20:16 Fram U – ÍR ......................................... 22:24 Staða efstu liða: ÍR 10 8 1 1 252:208 17 Selfoss 9 6 1 2 254:226 13 FH 9 5 2 2 226:190 12 Fram U 10 5 0 5 276:274 10 Grótta 9 5 0 4 223:209 10 Valur U 9 4 1 4 237:240 9 HM kvenna Undanúrslit: Noregur – Spánn ................................. 27:21 - Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Frakkland – Danmörk ......................... 23:22 Danmörk SönderjyskE – Mors............................ 24:30 - Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir SönderjyskE. E(;R&:=/D Subway-deild karla Vestri – Stjarnan .................................. 65:71 Grindavík – Keflavík ............................ 76:90 Staðan: Keflavík 10 9 1 897:814 18 Þór Þ. 10 8 2 972:869 16 Tindastóll 10 6 4 852:868 12 Grindavík 10 6 4 820:808 12 Njarðvík 9 6 3 860:759 12 Valur 10 6 4 800:792 12 KR 10 5 5 907:920 10 Breiðablik 10 4 6 1049:1031 8 Stjarnan 9 4 5 779:766 8 ÍR 10 3 7 869:931 6 Vestri 10 2 8 796:871 4 Þór Ak. 10 0 10 738:910 0 1. deild karla ÍA – Álftanes......................................... 72:98 Sindri – Selfoss ..................................... 93:74 Fjölnir – Hrunamenn......................... 100:90 Haukar – Skallagrímur...................... 109:71 Staða efstu liða: Haukar 13 11 2 1332:990 22 Álftanes 13 10 3 1231:1057 20 Höttur 11 9 2 1086:929 18 Sindri 13 8 5 1187:1119 16 Selfoss 13 7 6 1114:1114 14 1. deild kvenna Stjarnan – Hamar/Þór ......................... 49:79 Staða efstu liða: ÍR 9 8 1 697:527 16 Ármann 9 7 2 745:582 14 Þór Ak. 9 6 3 655:571 12 KR 9 6 3 681:629 12 Aþena/UMFK 10 5 5 699:725 10 Hamar/Þór 10 5 5 724:707 10 Spánn B-deild: Melilla – Gipuzkoa .............................. 71:79 - Ægir Már Steinarsson skoraði 6 stig fyr- ir Gipuzkoa, tók eitt frákast og gaf sjö stoð- sendingar á 26 mínútum. NBA-deildin Indiana – Detroit .............................. 122:113 Brooklyn – Philadelphia .................. 114:105 Houston – New York........................ 103:116 Phoenix – Washington ....................... 118:98 >73G,&:=/D HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Höllin Ak.: Þór – Hörður ....................... L14 Varmá: Afturelding U – ÍR ................... L15 Origo-höll: Valur U – Vængir J............. L17 Dalhús: Fjölnir – Haukar U .................. L17 Digranes: Kórdrengir – Berserkir........ S15 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Eyjar: ÍBV U – FH............................ L13.30 Sethöllin: Selfoss – Valur U .............. S19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Stykkishólmur: Snæfell – ÍR................. L14 Ísafjörður: Vestri – Ármann.................. L16 Sauðárkrókur: Tindastóll – Fjölnir b ... L18 Meistaravellir: KR – Þór Ak ................. L18 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Egilshöll: Fjölnir – SA ...................... L16.45 UM HELGINA! hálfleik en FH komst 21:20 yfir þeg- ar fimm mínútur voru til leiksloka og leit aldrei um öxl eftir það. Phil Döhler átti mjög góðan leik í marki FH, varði 14 skot og var með 41% markvörslu, og Einar Baldvin Baldvinsson átti stórleik í marki Gróttu og varði 16 skot. FH er í efsta sæti deildarinnar með 20 stig en Grótta er í tíunda sætinu með 7 stig. _ Þá átti Björgvin Páll Gúst- avsson stórleik í marki Vals þegar liðið vann tveggja marka sigur gegn HK í Kórnum í Kópavogi en leiknum lauk með 31:29-sigri Vals. HK-ingar byrjuðu leikinn betur en Valsmenn unnu sig vel inn í leik- inn og náðu mest fjögurra marka forskoti í síðari hálfleik. Björgvin Páll varði 18 skot í mark- inu en þeir Tumi Steinn Rúnarsson og Finnur Ingi Stefánsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Valsmenn. Valur er með 18 stig í fjórða sæt- inu en HK er með 1 stig í neðsta sætinu. _ Leó Snær Pétursson var markahæstur Stjörnunnar þegar liðið vann ellefu marka stórsigur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum en leiknum lauk með 31:20-sigri Garðbæinga. Leó Snær skoraði níu mörk í leiknum, þar af fjögur af víta- línunni. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Stjarnan tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik. Björgvin Hólmgeirsson skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna og þá átti Brynjar Darri Baldursson stórleik í markinu og varði 20 skot. Stjarnan fer með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar í 18 stig en ÍBV er í því fimmta með 17 stig. _ Allan Nordberg fór á kostum í liði KA þegar liðið vann öruggan níu marka sigur gegn Víkingum í Vík- inni í Fossvogi. Nordberg gerð sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk í leiknum sem lauk með 31:22-sigri Akureyringa. Staðan var 3:3 eftir sjö mínútna leik en þá tóku Akureyringar öll völd á vellinum og unnu sannfærandi sig- ur. Einar Rafn Eiðsson skoraði sex mörk fyrir KA og Nicolas Satchwell varði átta skot í markinu. Þetta var þriðji sigur KA í röð en liðið er með 12 stig í áttunda sætinu á meðan Víkingar eru með 2 stig í ellefta og næstneðsta sætinu. Toppliðin unnu með herkjum - Stórsigur Stjörnunnar í Eyjum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 7 Adam Haukur Baumruk fór mikinn fyrir Hauka gegn Aftureldingu á Ás- völlum í gær og var annar markahæsti leikmaður liðsins með sjö mörk. HANDBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Adam Haukur Baumruk og Brynj- ólfur Snær Brynjólfsson voru at- kvæðamestir Hauka þegar liðið vann nauman sigur gegn Aftureld- ingu í úrvalsdeild karla í handknatt- leik, Olísdeildinni, á Ásvöllum í Hafnarfirði í þrettándu umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 30:29-sigri Hauka en Adam Haukur og Brynj- ólfur Snær skoruðu sjö mörk hvor. Afturelding fékk tækifæri til að jafna metin í lokasókn leiksins en skot Birkis Benediktssonar fór framhjá markinu. Haukar eru í öðru sæti deild- arinnar með 20 stig en Afturelding er í sjöunda sætinu með 12 stig. _ Ásbjörn Friðriksson átti frá- bæran leik fyrir FH þegar liðið vann þriggja marka sigur gegn Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi en Ásbjörn skoraði átta mörk í leiknum sem lauk með 25:21-sigri Hafnfirð- inga. Grótta var stekari aðilinn í fyrri Srdjan Tufegdzic hefur verið ráð- inn þjálfari sænska knattspyrnu- félagsins Öster. Tufegdzic, sem er 41 árs gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við B- deildarfélagið með möguleika á eins árs framlengingu. Hann mun taka formlega við liðinu um ára- mótin en hann hefur verið aðstoð- arþjálfari karlaliðs Vals undanfarin tvö ár. Þá hefur hann einnig stýrt Grindavík og KA á ferlinum. Öster endaði í fimmta sæti B-deildarinnar á nýliðinni leiktíð en Alex Þór Hauksson er leikmaður Öster. Frá Hlíðarenda til Svíþjóðar Morgunblaðið/Eggert Öster Srdjan Tufegezic skrifaði undir tveggja ára samning. Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu hefur keppni í B-deild Þjóðadeildar UEFA 2022 með úti- leik gegn Ísrael í Tel Aviv. Hann fer fram 2. júní en í kjölfarið spilar Ís- land þrjá leiki í viðbót í keppninni á tólf dögum. Albanía leikur á Laug- ardalsvelli 6. júní og Ísrael 13. júní, en á milli bregður íslenska liðið sér til Rússlands og spilar þar 10. júní. Tveir síðustu leikirnir fara síðan fram um haustið, heimaleikur við Rússa 24. september og að lokum er útileikurinn gegn Albaníu á dag- skrá þremur dögum síðar. Fyrsti leikurinn verður í Ísrael Morgunblaðið/Eggert Júní Íslenska karlalandsliðið leikur fjóra leiki í júnímánuði 2022. Jaka Brodnik skoraði 20 stig fyrir Keflavík þegar liðið vann þægileg- an 90:76-sigur gegn nágrönnum sínum í Grindavík í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway- deildinni, í HS Orku-höllinni í Grindavík í tíundu umferð deild- arinnar í gær. Calvin Burks skoraði 18 stig fyrir Keflavík og Hörður Axel Vilhjálms- son skoraði 17 stig og gaf tíu stoð- sendingar. Ivan Aurrecoechea og Elbert Matthews voru stigahæstir Grind- jána með 19 stig hvor en Aurreco- echea tók 10 fráköst í leiknum. Þá var David Gabrovsek stiga- hæstur Stjörnunnar þegar liðið vann 71:65-sigur gegn Vestra á Ísa- firði í hörkuleik. Shawn Hopkins og Robert Turner skoruðu 12 stig hvor fyrir Stjörnuna en Turner tók einnig níu fráköst. Rubiera Rapaso var stigahæstur Vestramanna með 19 stig og Nem- anja Knezevic skoraði 16 stig og tók sextán fráköst. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvenna Hörður Axel skoraði 17 stig og gaf tíu stoðsendingar í gær. Keflavík endurheimti toppsætið í Grindavík Þórir Hergeirsson er kominn í úr- slitaleik heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik með norska lands- liðið eftir öruggan 27:21-sigur gegn Spáni í undanúrslitum keppninnar í Granollers á Spáni í gær. Noregur byrjaði leikinn betur og náði mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik, 8:5. Spánverjar neit- uðu hins vegar að gefast upp og þeim tókst að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks og staðan því 11:11 í hálfleik. Norðmenn byrjuðu síðari hálf- leikinn af krafti, náðu snemma þriggja marka forskoti á nýjan leik, 15:12, en Spánverjum tókst að minnka muninn í 14:15. Þá hrökk norska liðið í gang og þær náðu fjögurra marka forskoti, 19:15, þeg- ar fimmtán mínútur voru til leiks- loka. Þá var allur vindur úr spænska liðinu, norska liðið gekk á lagið, og fagnaði öruggum sigri í leikslok. Nora Mörk var markahæst í norska liðinu með átta mörk og Kari Brattset Dale skoraði sjö mörk. Þá átti Katrine Lunde mjög góðan leik í marki norska liðsins, varði 13 skot og var með 38% markvörslu. Fyrr um daginn vann Frakkland nauman sigur gegn Danmörku í hinu undanúrslitaeinvíginu, 23:20. Danir leiddu nánast allan leikinn en þegar tíu mínútur voru til leiks- loka komust Frakkar yfir í fyrsta sinn, 21:20, og þeir létu forystuna ekki af hendi eftir það. Það verða því Frakkland og Nor- egur sem mætast í úrslitaleik á morgun í Granollers en þetta er í tí- unda sinn sem Noregur leikur til úr- slita á stórmóti undir stjórn Þóris sem tók við norska liðinu árið 2009. Tíundi úrslitaleikur Þóris á stórmóti AFP Gleði Leikmenn norska liðsins fögnuðu vel og innilega í leikslok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.