Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021
L
íftæknifyrirtækið Ísteka ætlar
að gera mikla bragarbót á eft-
irliti með blóðtöku hryssa,
sem kosta mun tugmilljónir króna.
Áður hafði fyrirtækið rift samningi
við tvo bændur á grundvelli
dýraverndunarsjónarmiða.
Íbúasamtök Bústaða- og Fossvogs-
hverfis skoruðu á Dag B. Eggerts-
son borgarstjóra að framlengja frest
til þess að gera athugasemdir við
skipulagsbreytingu á Bústaðavegi,
en áður hafði borgarstjóri sagt að
það væru aðeins vinnuhugmyndir.
Friðlýsing Dranga í Árneshreppi tók
gildi, en hún var eitt síðasta embætt-
isverk Guðmundar Inga Guð-
brandssonar, fv. umhverfisráðherra,
áður en hann lét lyklana af hendi til
Guðlaugar Þórs Þórðarsonar.
Við lestur á fjárlagafrumvarpinu
kom í ljós að gerð er aðhaldskrafa á
styrkveitingar til einkarekinna fjöl-
miðla vegna ágengni Ríkisútvarps-
ins. Hins vegar fær það 430 millj-
ónum króna meira en árið á undan.
Bólusetning verður flutt úr Laugar-
dalshöll eftir áramót vegna endur-
bóta þar á bæ. Guð mun ráða hvar
við sprautum næstu jól.
Unglingar í ÍR urðu fyrir því að ein-
hver hreinsaði út síma þeirra úr
búningsklefa í Laugardalshöll, en að
sögn lögreglu hefur sú aðferð færst í
vöxt að undanförnu.
Fjölnir Bragason, listamaður og
húðflúrari, lést 56 ára að aldri.
. . .
Dóra Ólafsdóttir varð langlífust
allra Íslendinga, svo vitað sé, þegar
hún hafði lifað í 109 ár og 160 daga.
Norska fyrirtækið Icy Fish Farm
hefur gleypt fiskeldisfyrirtækið
Laxa, en samruninn hefur legið í loft-
inu frá liðnu ári. Forsvarsmenn fyrir-
tækisins boða frekari sókn og upp-
byggingu.
Lýst var yfir óvissustigi almanna-
varna vegna netöryggishættu, en
upp komst um afar útbreiddan galla í
nethugbúnaði, sem má misnota til
alls kyns óknytta.
Forstjóri Landspítalans segir að sig
vanti 1,8 milljarða króna til viðbótar
til að standa undir óbreyttum
rekstri. Sem er athyglisvert í ljósi
þess að fáir tala fyrir óbreyttum
rekstri spítalans.
Því ekki ótengt var greint frá því að
Björn Zoëga, forstjóri Karolinska
sjúkrahússins í Svíþjóð, hefði verið
munstraður til þess að vera Willum
Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra til
ráðgjafar. Hann þekkir vel til breytts
reksturs spítala.
Eigendur ökutækja í Hrísey hafa
fengið undanþágu frá skoðunar-
skyldu og þurfa því ekki að fara með
þau reglulega upp á fastaland þeirra
erinda.
Reykjavíkurborg keypti húsnæði
Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu, en
þar er fyrirhugað að nýtt safn Nínu
Tryggvadóttur verði hýst.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, greindi frá því að hann
hygðist ekki leita endurkjörs næsta
vor og láta af störfum sem bæjar-
stjóri eftir liðlega 40 ára starf í þjón-
ustu við bæjarbúa.
Viðskiptabönkunum þremur voru
birtar sex stefnur í vaxtamálinu svo-
nefnda, en Neytendasamtökin
standa straum af málarekstrinum.
Stefnendur telja að bankarnir hafi
oftekið vexti af lánum.
Fjarskiptastofa hyggst gera meiri
kröfur til fjarskiptafyrirtækja, en
þar á meðal er að á stofnvegum skuli
hvarvetna vera háhraðasamband
og útbreiðslu 5G-tækninnar verði
hraðað.
Sverrir Garðarsson, tónlistarmaður
og fyrrverandi formaður FÍH, lést
86 ára að aldri.
. . .
Meðan landsmenn bíða eftir því að
bylgja Ómíkron-afbrigðis kórónu-
veirunnar rísi bentu niðurstöður
fyrstu stóru rannsóknarinnar á því
til þess að þrátt fyrir að það væri
miklu smitgjarnara, sérstaklega í
börnum, þá væru einkenni þess
miklu vægari og skammvinnari.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir sagði breytta afstöðu sína til bólu-
setningar barna skýrast annars veg-
ar af Ómíkron-afbrigðinu og hins
vegar af því að ávinningurinn væri
meiri en áhættan. Til stendur að
hefja bólusetningu barna 5-11 ára
undir lok janúar.
Samkvæmt frumvarpi til fjárauka-
laga hækka framlög til heilbrigðis-
mála um 22 milljarða króna á kom-
andi ári.
Flugeldar eru seint á ferð til lands-
ins í ár, en Landsbjörg deyr ekki
ráðalaus og hyggst einnig selja sjálf-
lýsandi svissnesk úr til fjáröflunar
fyrir þessi áramót.
Siglingaáhugamenn hafa áhyggjur
af brúarsmíði yfir Fossvog, en brúin
verður svo lág að aðeins smæstu
segljaktir komast undir hana á fjöru.
Hafnfirðingar íhuga uppbyggingu
jarðhitavirkjunar í Krýsuvík og vilja
einnig bæta ferðamannaaðstöðu þar.
. . .
Ríkisendurskoðandi varar við láni
með ríkisábyrgð til Betri sam-
gangna, en þær hafa m.a. með hönd-
um uppbyggingu borgarlínunnar.
Rendi bendir á að tekjur þeirra séu
óvissar.
Fámennur stjórnarfundur í Verði,
fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, samþykkti að breyta
ákvörðun um að leggja til að próf-
kjör yrði haldið fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar, en að þess í stað
yrði haldið leiðtogaprófkjör. Þar að
baki bjuggu borgarstjórnarfulltrúar,
sem seint munu blanda sér í leiðto-
gaslaginn og kæra sig síður um próf-
kjör.
N1 ákvað að hætta að flytja inn líf-
dísilblöndu frá Noregi, þar sem talið
er að efnið, sem blandað er í olíuna,
valdi skemmdum á dísilvélum, sem
hafa haft mikinn kostnað í för með
sér.
Bæjarstjórn Seltjarnarness hækk-
aði öllum að óvörum útsvarið í
skattaparadísinni þegar Bjarni Torfi
Álfþórsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sveik lit og
studdi tillögu minnihlutans þar að
lútandi. Það hækkar því úr 13,7% í
14,09%.
Bændasamtökin leggja til að græn-
metisverð lækki með því að stytta
tímabil tollverndar á útiræktuðu
grænmeti. Vegna tíðarfars í sumar
telja bændur óvíst að eftirspurn
verði fullnægt öðruvísi.
Útflutningur á bílum hefur vaxið
jafnt og þétt á síðustu árum, en þar
mun ekki síst vera um að ræða ódýra
eldri bíla og laskaða, sem fluttir eru
til Póllands og Litháen.
Í München var opnuð viðamikil sýn-
ing á kynngimögnuðum verkum
RAX, ljósmyndarans Ragnars Ax-
elssonar. Hún hefur hlotið mikla
umfjöllun í víðlesnum þýskum blöð-
um og afar góðar viðtökur.
Athafnamaðurinn Bogi Jónasson,
sem mettaði tugþúsundir með kína-
rúllum, vill byggja upp þaraböð við
Garðskaga, heilsulind sem höfða
myndi til ferðamanna.
Samið hefur verið um nýja byggingu
Miðgarðakirkju í Grímsey eftir að sú
gamla brann til grunna fyrr á árinu.
Enn er safnað fyrir byggingunni.
Fyrirhugað er að selja varðskipin
Ægi og Tý, sem ekki eru lengur í
notkun hjá Landhelgisgæslunni.
Ríkiskaup óska eftir hugmyndum
um nýtingu þeirra og verð.
Áslaug Hulda Jónsdóttir sækist eft-
ir oddvitasæti á lista sjálfstæðis-
manna í Garðabæ fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í maí, en það
er laust eftir að Gunnar Einarsson
bæjarstjóri kvaðst ekki leita endur-
kjörs.
. . .
Grænlenskt fiskiskip strandaði um
500 m úti fyrir Gerðistanga undan
Vatnsleysuströnd. 19 skipverjar
voru um borð en hvorki þeim né
skipinu var talin hætta búin. Varð-
skipið Freyja var þó sent á vettvang
til vonar og vara.
Héraðssaksóknari fékk húsleitar-
heimild til rannsóknar á starfs-
stöðvum Eimskipa, en markmiðið
var öflun gagna um sölu tveggja
skipa félagsins, sem Umhverfis-
stofnun kærði.
Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, við-
skipta- og menningarmálaráðherra,
segir að stóraukin framlög til Ríkis-
útvarpsins tengist ekki styrkjum til
einkarekinna miðla á nokkurn hátt,
heldur sé það tekjumódel Ríkis-
útvarpsins sem valdi.
Magnús Örn Guðmundsson, bæj-
arfulltrúi á Seltjarnarnesi vill leiða
flokk sinn í komandi kosningum, en
Ásgerður Halldórsdóttir bæjar-
stjóri hyggst ekki leita endurkjörs.
Leyfi til stækkunar sjókvíaeldis
Laxa í Reyðarfirði var fellt úr gildi
öðru sinni, þar sem stjórnvöld létu
undir höfuð leggjast að gera um-
hverfismat á þeim fyrirætlunum.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir lýsti yfir vonbrigðum með árangur
síðustu sóttvarnatakmarkana og
hugleiðir því að herða sig enn frekar.
Óljóst er enn með takmarkanir yfir
hátíðirnar en jólasveinninn Sóttólfur
er á leið til byggða.
Lífið er lotterí og því til sönnunar
voru dregin spil um 33 nýjar lóðir í
Grindavík, en alls sóttu 389 um lóðir
í bænum.
María Guðmundsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og leikkona, lést 86
ára að aldri.
Jólasveinar
koma af fjöllum
Pottaskefill skemmtir ungviðinu með glensi og skensi. Það var þó víðar í þjóð-
félaginu sem jólasveinar gerðu víðreist og ekki allir í viðeigandi búningum.
Morgunblaðið/Eggert
12.12.-17.12.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is