Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Blaðsíða 17
hans. Kamala Harris á sinn hlut í því og fleira kemur
til. Brösótt og misheppnuð framganga demókrata í
þinginu og kúvending flokksins til vinstri sýnist lík-
leg til að tryggja repúblikönum góða útkomu í nóv-
ember á næsta ári, gangi sláandi viðhorfskannanir
eftir. Auðvitað ber þeim að hafa fyrirvara á bjartsýni
sinni, þótt hún virðist í góðum takt við hörmungartíð
Bidens og sérlega þess tilkomulitla liðs sem fylgdi
honum inn í Hvíta húsið og eins út í ráðuneytin stór
og smá.
Það væru stórbrotin öfugmæli að fullyrða að þar sé
valinn maður í hverju rúmi. Það er að vísu rétt að
nær allir í þeim hópi eru valdir af ósýnilega liðinu,
sem stýrir og höndlar Biden og tryggir að forsetinn
svari helst ekki nokkurri spurningu nema hún sé les-
in upp af blaði. Nema þeirri einu sem fréttamenn
CNN, ABC, MSNBC og hinir í klíkunni, sem á dálít-
ið bágt um þessar mundir, fá einatt að fjalla um,
hvaða ístegund sé í uppáhaldi hjá forsetanum. Biden
fer orðið létt með þá spurningu.
Hvert sem litið er
En allt eru þetta aukaatriði hjá miklum alvöru-
málum. Biden vék frá andstöðu fyrirrennarans í
embætti við það að Þjóðverjar gerðu sjálfa sig háða
Rússum í orkumálum, með víðtækum viðskiptum um
gasleiðslu á milli landanna. Hann tók upp að nýju
ótrúlegan undirlægjuhátt Obama forseta við klerka-
stjórnina í Tehran, sem tryggði henni í senn beina
braut til framleiðslu kjarnorkuvopna og belgdi hana
út af fé í órekjanlegum erlendum alþjóðlegum gjald-
miðlum að kröfu Ayatollah Ali Khamenei, æðstráð-
anda þjóðarinnar. Hann hefur ríkt í rúm 30 ár.
Frá valdatöku Bidens hafa suðurlandamæri ríkis-
ins verið gjörsamlega stjórnlaus og innflutningur á
sífellt hættulegri eiturlyfjum þar í gegn lýtur sömu
lögmálum.
Yfirgengilegt klúður forsetans við brottför herja
frá Afganistan dró mjög úr trausti og virðingu hans.
Þegar hann var að fullvissa þjóð sína og bandamenn
um að öllu yrði óhætt í landinu, þrátt fyrir brottför
Bandaríkjamanna og annarra, tíundaði hann hversu
öflugur her stjórnarinnar í Kabúl væri og gæti hann
þess vegna auðveldlega varið stöðu sína í landinu ár-
um saman. Vísaði Biden þar glaðbeittur í hergögnin
sem Kabúlstjórnin hefði fengið í kveðjuskyni. Utan
örfárra hervelda væri stjórnin í Kabúl best búin af
hergögnum af öllum. Fáum dögum síðar féll höfuð-
borgin og hermdarverkamenn tóku öll völd og hefur
slíkur hópur aldrei í veraldarsögunni fengið annað
eins vopnabúr í heimanmund.
Þegar Kínastjórn brýndi röddina gagnvart Taívan
sagði Biden að ekkert væri að óttast því að Banda-
ríkjastjórn myndi auka við vopnabúnað landsins. Það
þóttu sérkennileg viðbrögð þegar myndin frá Afgan-
istan blasti við öllum heiminum.
Ekki er skárra að horfa inn á við
Í innanlandsmálum tekur lítið betra við. Efnahags-
mál þjóðarinnar eru komin í hreinar ógöngur. Skort-
ur segir víða til sín og vöruverð hækkar óðum enda
er verðbólgan nú komin í 10 prósent og hefur það
ekki gerst síðan í tíð Jimmys Carters fyrir réttum 40
árum.
Staða efnahagsmála réð miklu um úrslit í kosning-
unum 1980 á milli Carters og Reagans. Þar kom, að
Reagan lýsti því opinberlega yfir að kreppuástand
væri skollið á í Bandaríkjunum (depression). Sama
dag brást Carter forseti hart við og sagði að þessi
yfirlýsing sýndi hversu dapurlega illa að sér mót-
frambjóðandi sinn væri. Fráleitt væri að tala um
kreppu í þessu sambandi. Frekar ætti að tala um
afturkipp (recession).
Reagan svaraði strax: „Vilji forsetinn fá ljósa og
glögga skilgreiningu frá mér um efnið þá er hún
þessi: Afturkippur (recession) er þegar nágranni
þinn missir vinnuna. Kreppa (depression) er þegar
þú sjálfur missir vinnuna og afturbati (recovery)
verður það þegar Jimmy Carter loks missir vinn-
una.“
Þetta fór eins og eldur í sinu um Bandaríkin.
Það varð ekki við Reagan ráðið og 12 ára valda-
skeið repúblikana blasti við.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’
En reynslan af Biden, sem vel má ímynda
sér að gleðji Trump, mun líklega hafa öfug
áhrif fyrir Trump, þegar sá tími nálgast að
velja þarf forsetaefni fyrir haustið 2024. Þá
verður Trump á svipuðum aldri og Biden var
þegar hann fór í framboð.
19.12. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17