Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.12.2021, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.12. 2021
MATUR
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
TIL JÓLA
FÖS. 24. DES. 10–13
JÓLADAGUR 25. DES. LOKAÐ
2. Í JÓLUM 26. DES. LOKAÐ
LAU. 18. DES. 11–18
SUN. 19. DES. 13–18
MÁN. - MIÐ. 20. - 22. DES. 11–19
FIM. 23. DES. 11–20
LORD SLOPPUR
Nú 23.920 kr.
Verð: 29.900 kr.
AFSLÁTTUR AF
SLOPPUM
20% JOOP RÚMFÖT
CORNFLOWER
140x200 cm. 100% egypsk
bómull. Verð: 25.900 kr.
20.720 kr. JÓLAVERÐ
ELEGANTE RÚMFÖT
BRILLIANT
140x200 cm. 100% egypsk
bómull. Verð: 28.900 kr.
23.120 kr. JÓLAVERÐ
Ú
t er komin mat-
reiðslubókin Heima
hjá lækninum í eld-
húsinu, 373 blaðsíð-
ur af girnilegum
uppskriftum og fallegum ljós-
myndum. Þá er bara að hnýta á
sig svuntuna og hefjast handa við
að gera skemmtilegar tilraunir í
eldhúsinu, en allt sem Ragnar
býður upp á er unnið frá grunni
með ástríðuna að vopni. Lækn-
irinn í eldhúsinu var staddur í
Berlín þegar blaðamaður sló á
þráðinn til að spjalla um góðan
mat, jólahefðir og nýju bókina.
Atorkumikil afslöppun
„Ég er í Berlín að slaka aðeins á
fyrir jólin,“ segir Ragnar og byrj-
ar á því að segja frá hvernig hug-
myndin að bókinni kviknaði.
„Í nóvember í fyrra ákvað ég að
skrifa bók sem átti að vera „best
of“-bók, en þegar ég fór að taka
saman uppskriftir þá fannst mér
það bara drepleiðinlegt viðfangs-
efni. Þannig að ég settist niður
nokkur kvöld og bjó til beina-
grindina að þessari bók. Í árs-
byrjun var sú beinagrind klár og
ég tók mér svo leyfi frá störfum í
mars. Ég gaf mér það í verðlaun
fyrir nokkuð annasamt ár á undan
og eldaði þessa bók. Ég eldaði í 26
daga í mars 170 uppskriftir og það
er allt gert frá grunni. Það var
allt borðað, það er ekkert plat og
ekkert fótósjoppað,“ segir Ragnar
og blaðamaður mátti til með að
spyrja hvort ekki hefðu læðst á
hann aukakíló í þessum mat-
armikla marsmánuði.
„Það er fáránlegt að segja frá
því en ég missti fimm kíló! Það
var svo mikill atgangur. Bróðir
minn og sonur hjálpuðu mér og
allir morgnar hófust í ræktinni af
því að ég hélt ég myndi fitna við
að skrifa svona bók,“ segir hann.
„Eftir ræktina tókum við á móti
pöntunum eða sóttum, skema
dagsins var skoðað og svo var
bara byrjað. Daglega var eldað í
tólf klukkutíma án hvíldar. Ég
smakkaði alla rétti en held að ég
hafi aldrei klárað heilan disk,“
segir Ragnar og segir að mikill
gestagangur hafi verið allan mán-
uðinn, enda nógur matur fyrir
gesti og gangandi.
„Þetta var frábær mánuður! Það
má segja að þetta hafi verið mín
slökun. Að elda er eins frábrugðið
læknastarfinu og hugsast getur
þannig að þetta var atorkumikil
afslöppun.“
Oftast í banastuði
Ertu alltaf í stuði til að elda eftir
langan dag í vinnunni?
„Já, svona 80% af tímanum er
ég í banastuði. Ef ég er ekki að
stunda lækningar, þá er ég að
sýsla í þessu. Ég er með langan
lista af uppskriftum sem ég á eftir
að prófa eða betrumbæta,“ segir
Ragnar og segir matreiðslu vera
aðaláhugamálið. Aðspurður segist
hann þó ekki vilja vera kokkur í
fullu starfi.
„Að vera kokkur er ótrúlega
strembin og erfið vinna. Ég er
ekki viss um að ég hefði bein í
nefinu til að standa í eldhúsi allan
daginn eins og kokkar gera. Ég
ber ómælda virðingu fyrir þessu
starfi,“ segir Ragnar og er ánægð-
ur í læknastarfinu og að hafa mat-
argerðina á kantinum. Hann sér
að mestu um matseldina á heim-
ilinu en þar eru fleiri efnilegir
kokkar.
„Konan mín á sína rétti sem
hún tekur föstum tökum. Dætur
mínar baka oft og sonur minn sex-
tán ára er orðinn ansi liðtækur í
eldhúsinu og er að sækja í sig
veðrið.“
Vitleysan vatt upp á sig
Nú ertu búinn að blogga lengi um
mat, skrifa bækur og vera í sjón-
varpi að matreiða. Bjóstu ein-
hvern tímann við því að verða
þekkt andlit í matreiðslugeir-
anum?
„Nei, aldrei nokkru sinni, það
hvarflaði ekki að mér í eina mín-
útu. Það er auðvitað fáránlegt að
einhver gigtar- og lyflæknir sé
eitthvað að vilja upp á dekk í
þessu. Þetta var í raun þvílík til-
viljun og byrjaði með því að ég
sagði já og áttaði mig ekki á af-
leiðingunum. Ég var búinn að
blogga og það hafði einhvern tím-
ann hvarflað að mér að gefa út
bók, en einhver kona hjá bóka-
forlagi sagði að þar sem ég væri
hvorki kokkur né frægur gæti ég
bara gleymt því. Mér fannst það
alveg hárrétt hjá henni. En svo
höfðu Tómas Hermannsson og
Anna Margrét Marinósdóttir sam-
band við mig árið 2012 og spurðu
hvort ég hefði áhuga á að gefa út
bók,“ segir Ragnar og segist hafa
tekið vel í það, enda hafði hann þá
bloggað um mat í sex, sjö ár og
átti um fimm hundruð uppskriftir.
„Svo varð sú bók metsölubók
eins og reyndar hinar bækurnar
líka. Þetta var svo gaman. Ég var
síðan beðinn um að gera sjón-
varpsþátt og svona vatt þessi vit-
leysa upp á sig.“
Á 650 matreiðlsubækur
Hvað finnst þér skemmtilegast að
elda?
Ferðast heima á
bragðlaukunum
Heima hjá lækninum í eldhúsinu er oft indælis matarilmur en þó aldrei
eins og í mars síðastliðnum. Þá tók Ragnar Freyr Ingvarsson sér frí frá
spítalanum og eldaði tólf tíma á dag fyrir nýja bók sína.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ragnar Freyr Ingvarsson
er læknirinn í eldhúsinu
og í ár býður hann fólki
heim til sín í nýrri bók.