Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Blaðsíða 7

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Blaðsíða 7
Klifur reiðslu og bakstur. En allt þetta jók á samheldni og áhuga félaganna. En það voru sköpuð fleiri tæki- færi til kynningar og samveru. Efnt var til sumarferða, sem fljótlega hlutu nafnið Ágústnætur. Oftast var reynt að finna staði sem voru í svip- aðri fjarlægð fyrir alla. Ágústnætur voru til dæmis aldrei haldnar á Suð- urlandi. Einu sinni hittist hópurinn á Hveravöllum. Raunin varð þó sú að Vestfirðingarnir áttu jafnan lengstu leiðina á mótsstað. Ágústnætur eru mörgum enn í fersku minni vegna þeirrar miklu gleði sem þar ríkti jafnan. Fastur lið- ur í þessum ferðum var kvöldvaka, sem skipulögð var fyrirfram og þar komu oft í ljós fjölbreyttir hæfileik- ar félagsmanna. Þá var kynslóðabil- ið ekki fyrir hendi. Auk þessara ferða þá efndu félög- in innbyrðis til sumarferða fyrir fé- laga sína. Heimsóknir til annarra fé- laga voru tíðar og þá mest milli þeirra félaga sem næst lágu hvert öðru. Það var til dæmis árlegur við- burður um nokkurra ára skeið að Reykvíkingar færu í heimsókn til fé- lagsins á Akranesi. Þá var oft glatt á hjalla í Rein. Því miður hefur dregið mikið úr þessum þætti í starfsemi félaganna. Margt kemur til. Það eru ólíkt fleiri tækifæri sem Sjálfsbjargarfélagar hafa til almennrar félagsþátttöku og ferðalaga nú og síðan er það trúlega hin almenna félagsdeyfð sem ríkir. Það er brýnt verkefni Sjálfsbjargar að endurvekja þá samstöðu, sem all- ar framfarir byggja á. Félagsheimili og vinnustofur Alls staðar ríkti mikill áhugi á því að koma upp félagsheimilum og vinnu- stofum, því mikið atvinnuleysi var meðal hreyfihamlaðs fólks. Akur- eyri reið á vaðið og reisti félags- heimili og vinnustofu á undra- skömmum tíma, eða tíu mánuðum. Það hlaut nafnið Bjarg. Þarna var annað ársþing samtakanna haldið dagana 8.-10. júní 1960. Þetta lýsti vel þeim kjarki og dugnaði sem ein- kenndi allt frumherjastarfið. Isa- fjörður fylgdi í kjölfarið og kom á fót prjónaframleiðslu, Siglufjörður Árið 1973 varfyrsti áfangi Sjálfsbjargarhússins tekinn í notkun, Vinnu- og dval- arheimili Sjálfsbjargar, eins og það nefndist lengi vel. Þetta varfyrsta heimili sinn- ar tegundar á Islandi og langþráð. Arið 1981, á ári fatlaðra, var sundlaugin í Sjálfsbjargarhúsinu vígð. Þetta var mikill hátíðisdagur enda síðasti áfangi Sjálfsbjargarhússins. Nú var loksins komin sundlaug sem sniðin var að þörfum hreyfihamlaðra. framleiddi vinnuvettlinga, í Reykja- vík voru það kvenundirföt og síðan plastframleiðsla og á Húsavík myndaðist einnig vísir að vinnu- stofu. Sjálfsbjörg í Vestmannaeyjum átti þátt í undirbúningi að stofnun verndaðs vinnustaðar, kertaverk- smiðjunnar Heimaeyjar sem enn er starfrækt þar. Sjálfsbjörg átti lengi fulltrúa í stjórn verksmiðjunnar. Meirihluti þessara vinnustaða var stofnaður löngu áður en lög um end- urhæfingu tóku gildi sem var árið 1970. Reksturinn reyndist yfirleitt erfiður vegna lítils stuðnings opin- berra aðila og erfiðrar samkeppnis- aðstöðu, eins og áður segir. Sá eini sem haldið hefur velli er Plastiðjan Bjarg á Akureyri. 7

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.