Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Blaðsíða 13

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Blaðsíða 13
Klifur Afmæliskveðja til Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra n Um aldir bjuggu sjúkir og slasaðir og þeir sem báru af- leiðingar sjúkdóma eða slysa við hörmuleg kjör hér á landi eins og víðast hvar annars staðar í heiminum. Þeir sem þannig voru á sig komnir, skertir á einn hátt eða annan til líkama eða sálar eða hvoru tveggja, voru almennt í hópi svokall- aðra niðursetninga. Niðursetningar voru boðnir upp og afhentir þeim sem buðu lægstu meðgjöfina. Þetta raunalega kerfi var við lýði hér á Is- landi eins og víðar allt fram á fyrri hluta þessarar aldar. Ástandið lagað- ist vissulega umtalsvert með tilkomu almannatrygg- ---------------------- inga og nútíma- legrar sveita- stjórnarlöggjaf- ar. En eftir sem áður var margur öryrkinn eins- konar niðursetn- ingur, sviptur sjálfstæði og sjálfsvirðingu, háður duttlung- um húsbænda sinna. Þegar leið á öldina, öldina okkar sem senn er á enda, fóru hópar öryrkja að taka sig saman um stofnun félaga til hagsbóta fyrir öryrkja og einnig voru stofnuð styrktarfélög. Dæmi um félagsskap af þessu tagi hér á landi voru Sjálfsbjargarfélögin. í framhaldi af stofnun þeirra seint á sjötta áratugnum var Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra stofnað og hefur nú náð þeim huggulega aldri að vera orðið 40 ára. Um það leyti sem landssambandið var stofnað voru til a.m.k. tvö önnur öryrkjafé- lög hér á landi, Blindrafélagið og SIBS, en auk þess þrjú styrktarfélög; Á ferli sínum hefur Sjálfsbjörg landssam- bandið komið að fjölda mála sem varða hag og lífskjör fatlaðra og hefur án efa unnið að uppbygg- ingu á öllum sviðum mál- efna fatlaðra. Fyrir það á landssambandið heiður skilið og þakkir allra ör- yrkja í landinu.“ Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Styrktarfélag vangefinna og Blindravinafélagið. Umræða var í gangi um samvinnu þessara félaga á ákveðnum sviðum og við tiltekin verkefni. Þessi umræða leiddi til þess að komið var á fót samvinnu- nefnd þriggja þessara félaga sem voru Sjálfsbjörg landssambandið, SÍBS og Blindrafélagið. Fyrir tilvilj- un hef ég undir höndum afrit af fundargerðum þessarar samvinnu- nefndar. Fyrsti fundurinn var hald- inn 26. nóvember 1959 að tilhlutan Sjálfsbjargar landssambandsins og það var Ólöf Ríkarðsdóttir sem boð- ________________ aði til þessa fyrsta fundar. í samvinnunefnd- inni voru rædd ýmis mál, m.a. var skipuð und- irnefnd til að gera tillögur að stofnun öryrkja- bandalags. Síð- asti fundur sam- vinnunefndar öryrkjafélag- anna var haldinn 22. febrúar 1961 þar sem sam- þykkt var að boða til stofnfundar Öryrkjabanda- lags Islands sem var svo haldinn 5. maí það ár. Þessir sögulegu punktar Haukur Þórðarson, formaður Öryrkjabandalags Islands. sýna að Sjálfsbjörg landssambandið hefur verið einn af aðal drifkröftum fyrir stofnun Öryrkjabandalagsins. Á ferli sínum hefur Sjálfsbjörg landssambandið komið að fjölda mála sem varða hag og lífskjör fatl- aðra og hefur án efa unnið að upp- byggingu á öllum sviðum málefna fatlaðra. Fyrir það á landssambandið heiður skilið og þakkir allra öryrkja í landinu. Öryrkjabandalag íslands óskar Sjálfsbjörg landssambandinu til hamingju með 40 ára afmælið og biður því velfarnaðar í starfi um ókomin ár. 13

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.