Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Blaðsíða 18

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Blaðsíða 18
Klifur Nýtt Bosníuverkefni utanríkisráðuneytisins og Össurar hf. Sprengja grandaði báðum fótleggjum Senad Terovics. Utanríkisráðherra undir- ritar samning við Össur hf, um nýja stoðtækjagjöf til Bosníu að verðmæti 30 milljónir króna. Halldór Ásgrímsson, utanrík- isráðherra, undirritaði 8. mars sl. fyrir hönd ríkis- stjórnar Islands samning við Össur hf, um kaup á 400 gervifótum sem gefa á fólki í Bosníu-Hersegóvínu. Með samningi þessum er gjöf Is- lendinga til íbúa þessa stríðshrjáða lands alls orðin 1.000 gervifætur af fullkomnustu gerð, en áður hafði verið gerður samningur um 600 ein- tök. Upphæð samningsins nú er tæp- ar 30 milljónir íslenskra króna og nemur því heildarverðmæti þessarar aðstoðar Islendinga um 70 milljón- um. Hluti af fyrri samningi var þjálf- un starfsmanna stoðtækjaverkstæða í borgunum Sarajevo, Mostar og Tuzla og nú bætast við borgirnar Zenica og Livno. íslendingar þykja sýna skilning á aðstœðum Að sögn Halldórs Ásgrímssonar er ástæða áframhaldandi stuðnings á þessu sviði almenn ánægja með fyrra framlag íslendinga sem þótt hefur skila góðum árangri. „Ég hef heyrt það frá ýmsum sem til þekkja að það sé einkar vel til fundið hjá Is- lendingum að bjóða stærstan hluta aðstoðar sinnar til fatlaðra. Við þykj- um með öðrum orðum sýna skilning á mannlegum og samfélagslegum aðstæðum þarna. Auk þess er tryggt að aðstoð íslendinga nýtist beint og með afdráttarlausum hætti.“ Áætlað er að fjöldi þeirra sem þurfa gervifætur í landinu sé um 4.500 manns. Að sögn Halldórs hafa um 70% af þeim, eða rösklega 3.100, misst fót fyrir neðan hné og það er einmitt þessi hópur sem hjálp Is- lendinga beinist að. Verkefnið er í sam- vinnu við Alþjóða- bankann að frumkvæði ráðuneytis- ins. Nefnir Halldór þetta sem dæmi um gott samstarf ráðuneytisins við bankann, íslenskt atvinnulíf og er- lend stjórnvöld. Hágœðalausnir í stað skamm- tímalausna Margir eiga um sárt að binda í Bosn- íu-Hersegóvínu. Fátækt er mikil og þörfin fyrir aðstoð gífurleg. Beinist aðstoðin mest að aldurshópnum frá 20-40 ára, þ.e. fólki í blóma lífsins. Þorri þeirra sem missti fætur í stríðinu er ungt fólk, sérstaklega ungir karlar á aldr- inum 18-35 ára. Þetta unga fólk, sem misst hefur fót fyrir neðan hné, er yfirleitt vel á sig komið líkamlega að öðru leyti. Því er ljóst að fullkomnasta stoð- tækni sem völ er á gerbreytir lífi þess og afkomumöguleikum. í stað þess að þurfa að lifa við mjög tak- markaða hreyfigetu, kemst það allra sinna ferða. Það hefur að sjálfsögðu einnig áhrif á andlega líðan þess og gefur þeim tækifæri til að snúa aftur Þorri þeirra sem missti fætur í stríðinu er ungt fólk, sérstak- lega ungir karlar á aldrinum 18-35 ára. 18

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.