Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Qupperneq 15

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Qupperneq 15
Klifur aðila. Hvað varðar aðrar mikilvægar breytingar á aðstöðu fatlaðra nem- enda má nefna að sérstök stofa hefur verið tekin undir próftöku nemenda sem þurfa að þreyta próf á tölvu en hún er einnig hugsuð sem lítið tölvu- ver utan hefðbundinna próftíma- bila.“ Að sögn Magnúsar starfa fjórir námsráðgjafar á NHÍ í 3,75 stöðu- gildum. „Þessir ráðgjafar þurfa að sinna skyldum sínum gagnvart 5.000 nemendum við HÍ auk þess sem vel á annað þúsund nemenda í síðari bekkjum framhaldsskólanna leita til Námsráðgjafar háskólans á ári hverju. Enginn ráðgjafanna er sérstaklega menntaður til þess að sinna málefnum fatlaðra enda má segja að sá stuðningur sem þeir fá í gegnum ráðgjöf sé í eðli sínu ekkert öðruvísi en hjá öðrum nemendum. Tveir námsráðgjafar eru hins vegar með sálfræðimenntun sem er nauð- synleg til að takast á við erfið sálræn og félagsleg vandamál sem rekur á fjörur Námsráðgjafar. Síðan má ekki gleyma að sú reynsla sem verður til við starfsemi af þessu tagi er oft lyk- illinn að lausn erfiðra úrlausnarefna sem ráðgjafar standa frammi fyrir.“ Brýnt að halda vöku sinni Aðspurður um stöðuna í málefnum fatlaðra námsmanna hér á landi mið- að við hin Norðurlöndin, segir Magnús ljóst að margt megi betur fara hvað varðar aðstöðu fatlaðra stúdenta við HI. „Kjarni málsins er hins vegar sá að þetta gildir ekki bara um fatlaða stúdenta heldur alla stúdenta, fatlaða sem ófatlaða. Eftir að Alþingi bauð Háskóla íslands að framfylgja alþjóðlegum samþykkt- um af vettvangi Sameinuðu þjóð- anna og Evrópusambandsríkja með breytingum á lögum um málefni fatlaðra 1992, og háskólinn staðfesti síðan með samþykkt Háskólaráðs 1995, var tekið mikilvægt skref í þá átt að fullnægja þeirri sjálfsögðu kröfu sem kveður á um jafnan rétt til náms. Þessum lögum fylgdi þó ekki fjármagn frá fjárveitingavaldi Al- þingis þótt augljóst sé að fram- kvæmd þeirra hafi umtalsverðan kostnað í för með sér. Engu að síður hefur rektor Háskóla íslands og framkvæmdastjóri kennslusviðs með fulltingi Háskólaráðs séð til þess að nauðsynlegu fé er veitt sér- staklega til þessa málaflokks. Það sem einna helst skortir á er eyrna- merkt fé til að sinna þróunarverkefn- um og til að fylgjast með og kynna sér þær lausnir sem þróunarverkefni annars staðar í heiminum hafa skilað til þessa málaflokks. Hvað varðar aðstöðu og aðgengi fatlaðra við HI samanborið við ann- ars staðar er erfitt að segja til um að nokkru viti með allsherjaryfirlýsing- um þar sem aðstaða getur verið mjög misjöfn milli skóla í sömu löndum og kannski hafa ekki gefist næg tækifæri til að skoða þetta í þaula. Hitt er ljóst að þessi málefni eru hvarvetna mjög í deiglunni um þessar mundir við evrópska háskóla og því brýnt að halda vöku sinni.“ Erfitt aðgengi í aðalbyggingu háskólans Fatlaðir nemendur við Háskóla ís- lands hafa kvartað undan slæmu að- gengi fyrir fatlaða og þá sérstaklega við aðalbyggingu háskólans. Hvað vill Magnús segja um þá gagnrýni? „Það er alveg ljóst að Aðalbygging HI verður seint fær þeim nemendum sem eru mjög mikið fatlaðir og ferð- ast um í stórum rafknúnum hjóla- stólum nema miklu sé kostað til. En það er líka stór spurning hvort eitt- hvert vit væri í að eyða miklum fjár- munum í slíkar framkvæmdir í stað þess að leggja þá í önnur skynsam- legri verkefni. Aðalatriðið er að í seinni tíð fer tiltölulega lítil kennsla fram í Aðalbyggingu HÍ og þau vandamál sem tengjast aðgengi þar, sem og annars staðar í byggingum háskólans, eru leyst með því að flytja námskeiðin á aðgengilega staði. En vissulega eru enn til stað- ar ákveðin aðgengisvandamál að þjónustustofnunum háskólans og stuðningstofnunum sem þörf er á að leysa í náinni framtíð." Tilraunaverkefni fyrír nemend- ur með lesblindu Aðspurður hvort einhverjar breyt- ingar séu á döfinni í málefnum fatl- aðra við HÍ, segir Magnús þau mál- efni vera í sífelldri deiglu innan há- skólans. „Meðal þess sem er á döf- inni er að í haust verður lagt upp með tilraunaverkefni í námstækni fyrir nemendur með lesblindu. Þetta er mjög spennandi verkefni og áreiðanlega mjög gagnlegt þar sem nemendum með lesblindu hefur fjölgað stórlega á síðustu árum. Lík- lega verður það þó ekki keyrt áfram af æskilegum krafti þar sem ekki hefur enn tekist að afla þeirra fjár- muna sem til þarf til að koma verk- efni af þessu tagi á laggirnar. Þess ber þó að geta með þakklæti að verkefnið hlaut 100 þúsund króna styrk úr sjóði Odds Ólafssonar sem Öryrkjabandalagið hefur umsjón með.“ Magnús segir allt skipulag er varð- ar málefni fatlaða vera með þeim hætti að nú sé nánast óhugsandi að nemandi með sérþarfir fái ekki sann- gjarna lausn sinna mála. „Vissulega geta komið fram óskir sem háskól- anum er ekki kleift að uppfylla vegna fjárskorts eða af einhverjum öðrum ástæðum. En þar með er ekki sagt að ekki sé hægt að ná sátt um niðurstöðu. Það verður að horfa til þess að háskólinn þarf að gæta hags- muna 5.000 nemenda sem allir gera sérstakar kröfur um úrræði ef út í það er farið. Og á endanum eru það hin persónulegu samskipti og víð- feðm samvinna allra þeirra sem mál- ið varðar sem leiða vandamálin til farsælla lykta. I lokin vil ég geta þess sérstaklega að margir aðilar sem tengjast há- skólanum hafa lagt málefnum fatl- aðra ríkulegt lið á liðnum árum með fjárframlögum og tækjagjöfum. Þar vil ég sérstaklega nefna Stúdentaráð, Rannsóknaþjónustu HÍ, skrifstofu hjúkrunarskorar, Reiknistofnun HÍ og nú nýlega Öryrkjabandalag ís- lands, en auk þessara hafa margir aðrir lagt gott til málanna.“ Viðtal: Kristrún M. Heiðberg. 15

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.