Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Page 21

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.1999, Page 21
Klifur Skrifstofa landssambandsins: Nýr félags- málafulltrúi Bára Aðalsteinsdóttir. Nýr félagsmálafulltrúi, Bára Aðalsteinsdóttir, hefur hafið störf á skrifstofu landssambandsins og tók hún við af Lilju Þorgeirs- dóttur. Bára útskrifaðist frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti 1983 og frá Þroskaþjálfa- skóla íslands 1986. Hún hefur mikla reynslu af að vinna með fötluðum, en einnig hefur hún komið nálægt tímaritaútgáfu. Bára er boðin hjartanlega vel- komin til starfa. Kentucky Fri.f Hjallahrauni 15, Hafnarfiröi Ferðaklúbburinn Flækiufótur: Ævintýraferð um hálendið Hinn 16. júlí verður farin ævintýraferð um hálendið með Flækjufæti. Fyrsta daginn verður ekið í Hrauneyjar og gist þar. Síðan verður ekið norður Sprengisand að Rauðskrið- um í Þingeyjarsýslu. Þar verður dvalið í tvo daga og Mývatnssveit skoðuð. Ur Rauðskriðum verður farið í Herðubreiðarlindir, Öskju og Kverkfjöll. Haft hefur verið samband við Ómar Ragnarsson um möguleika á því að hann geti verið með hópnum í Kverkfjöllum og hefur hann málið til athugunar. Ur Kverkfjöllum verður farið til Akureyrar og gist rétt utan við bæinn. Þaðan verður ekið sem leið liggur að Löngumýri í Skaga- firði og gist þar eina nótt. Síðasti áfanginn í þessari hálendisferð Flækjufótar verður svo akstur suður Kjöl. Kostnaður við ferðina er 60 þúsund krónur og er allt innifalið í þeirri upphæð. Þátttakendur verða þó að taka með sér rúmföt eða svefnpoka. Leiðsögumaður verður Jón H. Sigurðsson. Ekið verður í langferðabíl sem er sérút- búinn fyrir hreyfihamlaða ferða- langa þannig að allir geta farið með. Til að skrá sig í ferðina eða fá upplýsingar um hana, skal hafa samband við Sigríði Kristinsdótt- ur í síma 557-2468. SJÓVÁ ALMENNAR Kringlunni 5 • Reykjavík OSTA OG W SMIÖRSALAN SH ÚTILÍF Glæsibæ Sími: 581 2922 VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS Pósthólf 514 - 121 Reykjavík 21

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.