Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.03.2004, Side 10

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.03.2004, Side 10
Klifur og er í borðtennis tvisvar í viku. Ég þarf að halda mér í góðu formi til að missa ekki kraftinn. Um leið og ég slaka á þá verð ég máttlaus." Fljót að læra á stólinn Jón Heiðar segir að þrátt fyrir að hann og Bjarney Guðrún séu með sama sjúkdóminn þá virðist hún vera heldur máttlausari og vöðvarnir slakari. „Það er ekki vitað hvað veldur því, e.t.v. er það kynbundið. Enn er ekki ljóst hvort Bjarney Guð- rún komi til með að geta gengið. Hún er í mikilli þjálfun,. Hún fer í sjúkraþjálfun þrisvar í viku og síðan þjálfum við hana heilmikið heima. Hún skríður um allt, en er eiginlega ekkert farin að stíga í fæturna. Eins og hálfs árs fór hún í hjólastól og var þar með langyngsta barnið til að fara í hjólastól hér á landi. Aldrei áður hefur svo lítill hjólastóll verið fluttur til landsins. Um var að ræða sýnis- eintak sem við fengum lánað. Það var strax mikill kraftur í Bjarneyju Guðrúnu. Hún lék sér mikið og var viljug að prófa nýja hluti en það var auðvitað takmarkað sem hún komst. Þess vegna ákváðum við að láta hana prófa stólinn og það gekk ljóm- andi vel. Henni tókst að læra á hann á 2-3 vikum, svo við ákváðum að senda inn umsókn til Hjálpartækja- miðstöðvarinnar. Við tókum myndir af henni í stólnum, sendum með um- sókninni og fengum samþykkt. Hún þarf hins vegar að fá nýjan stól fljót- lega vegna þess að hún hefur stækk- að mikið. Fyrir skömmu fékk hún svo rafmagnshjólastól til að nota ut- andyra, vegna þess að það er erfitt fyrir hana að nota litla stólinn ut- andyra, sérstaklega í mölinni í leik- skólanum. Henni hefur gengið vel með rafmagnshjólastólinn og stefn- an er að hún geti farið að nota hann í leikskólanum með vorinu. Þá erum við búin að sækja um gönguspelkur fyrir hana, vegna þess að markmiðið er auðvitað að koma henni á fætur. Það væri frábært ef hún næði þeirri getu að ganga við hækjur, það er svo mikill munur að geta bjargað sér á hækjum. Gönguspelkurnar munu halda henni uppi og taka af henni þyngdina, það er svona fyrsta skref- Bjamey Guðrún er mjög sterk félags- lega, sem er einmitt talið mjög mikil- vœgtjyrir þá sem eiga við fötlun að stríða, “ segir faðir hennar. Mynd/úr einkasafni. „Enn er ekki Ijóst hvort Bjarney Guðrún komi til með að geta gengið. Hún er í mikilli þjálfun, fer í sjúkraþjálfun þrisvar í viku og síðan þjálfum við hana heilmikið heima. Hún skríður um allt, en er eiginlega ekkert farin að stíga í fæturna." ið í að kenna henni og þjálfa hana í gönguhreyfingum. Ef það gengur vel fær hún léttari spelkur síðar meir og hækjur eða göngugrind til að byrja með. En í raun er ekkert hægt að segja hvað hún kemur til með að geta. Við erum að vinna í því að gera hana eins sjálfbjarga og hægt er og síðan verður tíminn að leiða í ljós hvað hún kemur til með að geta, t.d. í sambandi við göngu og annað. Ef hún nær ekki göngugetu þá aðlagar maður sig öðruvísi.“ Fengu góðar móttökur á Akur- eyri Jón Heiðar og Nanna fluttu ásamt Bjarneyju Guðrúnu til Akureyrar fyrir ári síðan. Nanna, sem er fædd og uppalin á Akureyri, hóf nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akur- eyri og Bjamey Guðrún byrjaði á leikskóla. Síðustu þrjú árin sem fjölskyldan var búsett í Reykjavrk starfaði Jón Heiðar sem þjálfari hjá íþróttafélagi fatlaðra, þjálfaði m.a. sund, frjálsar og lyftingar. „Núna er ég heimavinnandi og sé m.a. um að þjálfa mig og dóttur mína. Ég hef alltaf haft að leiðarljósi að ég er með þennan sjúkdóm og verð að miða líf mitt við það. Mér er það lífsnauð- synlegt að vera í góðu formi og það fer heilmikill tími í það. Það er ljóst að ef ég væri í skrifstofuvinnu alla daga frá kl. 9-5 þá myndi heilsu minni hraka til muna. En ég hef svo sem nóg að gera, er t.d. kominn í stjóm Sjálfsbjargar á Akureyri. Síð- an er konan á fullu í skólanum, þannig að ég sé mikið um heimilið sem er töluverð vinna.“ Jón Heiðar segir að fjölskyldunni hafi verið afar vel tekið fyrir norðan. „Við höfum fengið mjög góðar mót- tökur af bænum, t.d. í sambandi við liðveislu, stuðning o.fl. Þegar kom t.d. að því að velja leikskóla fyrir Bjarneyju Guðrúnu vom starfsmenn hjá bænum sem unnu í því fyrir okk- ur að finna hvaða leikskóli myndi henta henni best hvað aðgengi o.fl. varðar. Síðan voru gerðar breytingar á aðkomu að leikskólanum okkur í hag og einnig er verið að reyna að gera leikskólalóðina sem aðgengi- legasta fyrir hana sem er mjög gott. Hjá bænum er starfandi fjölskyldu- deild sem sá um þessi mál og við höfum mjög góða reynslu af henni. Ég hef einmitt heyrt misjafnar sögur af því hvernig hin og þessi bæjaryf- irvöld taka á málum er varða fötlun. Hjá sumu fólki er þetta mikil barátta við kerfið, en eins og ég segi þá höf- um við mætt miklum skilningi hjá bæjaryfirvöldum á Akureyri." Að Iaga sig að aðstæðum Að sögn Jóns Heiðars hefur gengið afar vel hjá Bjameyju Guðrúnu í 10

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.