Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
Endurvinnslan hf. óskar eftir
500 – 800 m2 atvinnuhúsnæði
Endurvinnslan hf. óskar eftir húsnæði til kaups eða leigu,
ca 500 – 700 m2með góðri lofthæð og innkeyrsluhurð/ar kostur.
Nánar tiltekið er óskað eftir húsnæði fyrir flöskumóttöku
miðsvæðis í Reykjavík til að þjónusta Reykjavík vestan Elliðaár.
Húsnæðið þarf að hafa bílastæði fyrir um 15+ bifreiðar.
Athugið að rekstri fylgir eitthvert ónæði og hávaði.
Skrifstofur eða íbúðir á efri hæðum húsnæðis því óæskilegar.
Tekið við ábendingum í tölvupósti - helgi@evhf.is eða
símleiðis í S: 8605103
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Heildarsamtök launafólks gagnrýna
fjölmarga þætti fjárlagafrumvarps
næsta árs í umsögnum til Alþingis. Í
umsögn ASÍ segir að hætta sé á að
stefna í ríkisfjármálum skapi ekki
grundvöll fyrir stöðugleika á vinnu-
markaði. Brýnt sé að ráðist verði í
stórátak í húsnæðismálum og að vel-
ferð og félagslegur stöðugleiki verði
ekki notuð sem hagstjórnartæki.
„Boðaðar breytingar á barnabóta-
kerfi munu að óbreyttu lækka
barnabætur meirihluta barna sem
skýrist af þeirri stefnu að kerfið sé
eingöngu stuðningur til hinna allra
tekjulægstu,“ segir í umsögninni,
sem hagfræðingar ASÍ hafa sent
þinginu.
Þá er sagt ásættanlegt að skera
niður nauðsynlegar fjárfestingar til
að mæta tímabundnum sveiflum í
hagkerfinu og fjallað er ítarlega um
það nýmæli að persónuafsláttur og
þrepamörk tekjuskatts séu hækkuð
með tilliti til verðbólgu að viðbættri
langtímaaukningu á framleiðni.
Bendir ASÍ á að persónuafsláttur og
þrepamörk tekjuskatts þurfi að
hækka til jafns við laun. Að öðrum
kosti þyngist skattbyrði. Skattbyrð-
in aukist hlutfallslega mest hjá þeim
sem eru nálægt tilteknum þrepa-
mörkum, t.d. nálægt skattleysis-
mörkum.
Þá er sérstaklega gagnrýnt að ef
boðaðar breytingar á barnabótum
nái fram að ganga verði þær til þess
að barnabætur með flestum börnum
rýrna. Vegna hækkunar á skerðing-
arhlutföllum verði tekjuhærri for-
eldrar fyrir raunlækkun barnabóta.
Einnig megi sjá að ef breytingar eru
skoðaðar miðað við ólíkan fjölda
barna komi í ljós að barnabætur ein-
stæðra foreldra með tekjur yfir 600-
750 þúsund kr. rýrni og sama gerist
hjá sambýlisfólki með tekjur yfir
1.125-1.275 þúsund kr.
„Mikilvægt er að skoða breyting-
ar með það í huga hvar börn búa
m.t.t. tekjudreifingar. Um 60-70%
barna einstæðra foreldra búa á
heimilum með tekjur innan við 600-
750 þúsund. Hjá sambúðarfólki búa
30-40% barna á heimilum með tekjur
innan við 1.125-1.275 þúsund kr. […].
Það gefur sterklega til kynna að
barnabætur með flestum börnum
muni rýrna á næsta ári.“ ASÍ gagn-
rýnir einnig að bætur almanna- og
atvinnuleysistrygginga haldi ekki í
við launaþróun.
Stöðnun í stað sóknar
Í ítarlegri umsögn BSRB er lýst
áhyggjum af því að fjárlagfrumvarp-
ið boði stöðnun í stað kraftmikillar
sóknar til að vaxa út úr vandanum.
Þrátt fyrir vaxandi eignaójöfnuð sé
ekki gert ráð fyrir skattlagningu
fjármagns og eigna eða frekari gjald-
töku vegna auðlindanotkunar, hvorki
í fjárlagafrumvarpinu né fjármála-
stefnunni. „Engin breyting er boðuð
á framlögum til almenna íbúðakerf-
isins þrátt fyrir að leigjendur séu sá
hópur sem er líklegastur til að vera
með íþyngjandi húsnæðiskostnað,
sérstaklega einstæðir foreldrar,“
segir m.a. í umsögn BSRB, sem segir
einnig að hækkun elli- og örorkulíf-
eyris dragi ekki úr þeirri kjaragliðn-
un sem átt hafi sér stað á kjörtíma-
bilinu. Lengja þurfi bótatímabil
atvinnuleysisbóta, hækka atvinnu-
leysisbætur og framlengja tíma-
bundnu hækkunina á bótum vegna
barna á framfæri atvinnuleitenda og
vinnumarkaðsúrræði á borð við
Hefjum störf.
Auka þarf verulega framlög
til heilbrigðiskerfisins
Framlög til heilbrigðiskerfisins
voru marktækt lægri á Íslandi en
annars staðar á Norðurlöndum á
áratugnum 2010 til 2019 að því er
segir í umsögn BHM, sem kallar eft-
ir því að stjórnvöld auki verulega
þessi framlög. „Barnabætur geta
enn varla talist annað en fátæktar-
styrkur. Sé miðað við hjón á með-
altekjum aðildarfélaga BHM, annað
í fullu starfi og hitt í hálfu starfi, má
sjá að réttur þeirra til barnabóta er
enginn,“ segir m.a. í ítarlegri um-
sögn BHM.
Segja barna-
bætur flestra
muni rýrna
- ASÍ, BSRB og BHM gagnrýna fjár-
lagafrumvarpið í umsögnum til þingsins
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Alþingi Umsagnir við fjárlagafrumvarp næsta árs, bandormsfrumvörp og
fjármálastefnu til ársins 2026 streyma inn til þingsins þessa dagana.
„Sóknargjaldið
skal með öðrum
orðum skert veru-
lega fjórtánda ár-
ið í röð og raunar
að þessu sinni
lækkað um 8,8%
milli ára eða úr
1.080 kr. á mán-
uði í 985 kr.,“ seg-
ir í gagnrýninni umsögn Bisk-
upsstofu við fjárlagafrumvarpið sem
send hefur verið til Alþingis.
Þar segir að áfram eigi að ganga í
sjóði trúfélaganna með því að
skerða með valdboði lögmæt fé-
lagsgjöld þeirra. Þau verði því enn
eitt árið fyrir fordæmalausu tekju-
falli þar sem tekjurnar verði nú að-
eins um 51% af því sem vera ætti
skv. lögum.
„Alls nemur uppsöfnuð skerðing
sóknargjaldsins á þessum 14 árum
19,05 milljörðum kr. ef fyrir-
liggjandi fjárlagatillaga fyrir árið
2022 verður samþykkt,“ segir í um-
sögn Biskupsstofu.
Fá varla lán í bönkum
Þá segir að margar sóknir séu
komnar að fótum fram fjárhagslega
og lítið eða ekkert viðhald verið á
mörgum kirkjum og safnaðar-
heimilum í rúman áratug, þannig að
víða séu komin upp gríðarleg vanda-
mál vegna leka, myglu o.fl.
„Og nú er jafnvel svo komið, að
sóknirnar fá varla lán eða aðra
fyrirgreiðslu, eins og t.d. skuld-
breytingar, í viðskiptabönkunum
þar sem söfnuðirnir teljast ekki
lengur traustir viðskiptamenn
vegna bágs fjárhags.“
Skil ríkisins á innheimtum sókn-
argjöldum hafi verið skorin þannig
niður, að ríkið standi trúfélögunum
aðeins skil á rétt rúmlega helmingi
þeirra sóknargjalda sem innheimt
eru.
Farið ófrjálsri hendi um sjóði
„Sumir vildu jafnvel taka sér í
munn mun sterkari orð um þetta
framferði og halda því fram, að farið
hafi verið ófrjálsri hendi um sjóði
trúfélaganna. Núverandi fjármála-
ráðherra komst m.a. þannig að orði
í samtali við undirritaðan árið 2013,
að hér væri í raun um ígildi fjár-
dráttar eða þjófnaðar að ræða,“ seg-
ir í umsögninni til Alþingis, sem
Pétur G. Markan biskupsritari
skrifar undir.
Sóknir
komnar að
fótum fram
- Skerðing talin 19
milljarðar á 14 árum
SÁÁ þarf að fá 300 milljóna kr.
viðbótarframlag í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs fyrir innlagnir
á Vog og lyfjameðferð við ópíóða-
fíkn. Um þessar mundir eru um
600 manns á bið eftir að komast á
Vog.
Þetta kemur fram í umsögn SÁÁ
við fjárlagafrumvarp ársins 2022.
„Við höfum miklar áhyggjur af
fjárlagafrumvarpinu þar sem vant-
ar upp á framlög til SÁÁ. Fólki með
fíknsjúkdóm er ekki tryggð heil-
brigðisþjónusta sem það á rétt á
og nauðsynlega þarf og biður um.
SÁÁ veitir sjálfsagða heilbrigðis-
þjónustu af söfn-
unarfé, sem ríkið
ætti að greiða.
Það verður að
leiðrétta,“ segir
þar enn fremur.
Fram kemur að
vegna áhrifa far-
aldurs kórónu-
veirunnar gat
SÁÁ ekki treyst á fjáraflanir og á
árinu 2020 gat SÁÁ sinnt 455
færri innlögnum, hundruð ein-
staklinga hafi farið á mis við þá
lögbundnu heilbrigðisþjónustu
sem þeir eigi rétt á.
Vilja fá 300 milljóna kr. viðbót
SÁÁ SEGIR 600 MANNS Á BIÐ EFTIR AÐ KOMAST Á VOG
Forstjóri Sýnar segir „algjörlega
galið“ að framlög til Ríkisútvarpsins
verði aukin um 420 milljónir króna,
eins og kveðið er á um í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs. Blaðamanna-
félag Íslands gerir ekki athugasemd
við aukninguna en vill að styrkir til
einkarekinna miðla verði hækkaðir
um samtals 30 milljónir króna.
„Að sjálfsögðu er ekki hægt, líkt
og er að gerast núna, að það sé verið
að styrkja og búa til efnisveitu rík-
issins á sama tíma og það er verið að
bæta í fjárlög einhvers konar viðbót-
arstyrk til ríkisútvarps,“ segir Heið-
ar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.
„Það hlýtur hver maður að sjá að
það er ekki í anda nútímasam-
félags.“ Því halli augljóslega á einka-
rekna miðla. „Það er algjörlega frá-
leitt að ríkið sé í samkeppni við
einkaaðila á öll-
um sviðum og
neiti að taka á
augljósum sam-
keppnisyf-
irburðum sem er-
lendar efnisveitur
hafa, þar sem við
höfum, sem inn-
lend efnisveita og
fjölmiðill, ríka
skyldu gagnvart
íslenskri tungu,“ segir Heiðar,
skyldum sem erlendar efnisveitur á
borð við Netflix þurfa ekki að lúta.
Aukningin til Ríkisútvarpsins ein og
sér nemur hærri upphæð en allir
einkareknir miðlar fá í sinn hlut í
styrkjum frá ríkinu. Segist Heiðar
þeirrar skoðunar að enginn fjölmiðill
ætti að fá ríkisstyrk. ari@mbl.is
Ekki í anda
nútímasamfélags
- Gagnrýnir aukningu en BÍ ekki
Heiðar
Guðjónsson