Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Vallarbraut 6, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 3ja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í húsi fyrir 55 ára og eldri í Njarðvík Reykjanesbæ, í göngufæri við þjónustumiðstöð Nesvalla. Nánari upplýsingar á skrifstofu eða á eignasala@eignsala.is Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 41.500.000 Birt stærð eignar 85,7 m2 M agnús Carlsen vann auð- veldan sigur yfir Jan Nepomniacthchi í 11. einvígisskák þeirra í Dúbaí í gær og með því lauk einvíg- inu með yfirburðasigri Norðmanns- ins, 7½:3½. Hann varð heimsmeist- ari árið 2013 og hefur varið titilinn fjórum sinnum, gegn Anand árið 2014, Karjakin, 2016, Caruana 2018 og nú Nepomniachtchi. Frammi- staða Rússans eftir að hann tapaði sjöttu skákinni veldur vonbrigðum og undrun og er vart hægt að kalla hann verðugan áskoranda ef horft til þeirra furðulega mistaka sem honum urðu á. Taflmennskan í gær var ótrú- lega slök, hann tefldi allt of hratt og ónákvæmt og eftir aðeins 26 leiki gat Magnús gert út um skákina en valdi tiltölulega létt unnið hróksendatafl. Nepo átti samt enga möguleika og gafst upp efir 46 leiki. Heimsmeistaraeinvígin kalla alltaf á samanburð við önnur og ef þau eru tekin sem farið hafa fram síðustu 100 ár þá Kúbumaðurinn José Raoul Ca- pabanca vann Emanuel Lasker á heimavelli í Havana minnist ég ekki jafn slakrar taflmennsku og í raun algerrar uppgjafar hjá nokkrum þátttakanda, en játa þó að nokkur einvígi sem Alexander Aljékín háði við óverðuga andstæðinga á milli- stríðsárunum gætu fallið í þann flokk. Nepo verðskuldar harða gagn- rýni fyrir frammistöðuna. Skákin í gær gekk þannig fyrir sig: HM-einvígi í Dúbaí 2021; 11. skák: Jan Nepomniachtchi – Magnús Carlsen Ítalskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 Það hefði mátt búast við hvassasta leiknum, 4. Rg5, en Nepo vissi að Magnús þekkir alla refilstigu þeirrar leiðar. 4. … Bc5 5. c3 d6 6. O-O a5 7. He1 Ba7 8. Ra3 h6 9. Rc2 O-O 10. Be3 Bxe3 11. Rxe3 He8 12. a4 Be6 13. Bxe6 Hxe6 14. Db3 b6 15. Had1 Re7 16. h3 Dd7 17. Rh2 Hd8 18. Rhg4 Rxg4 19. hxg4 d5 20. d4 20. .. exd4 21. exd5 He4! Vitaskuld ekki 21. … Rxd5 22. Hxd4 og hvítur stendur til vinnings. 22. Dc2 Hf4 23. g3?? Ótrúlega slakur leikur. Eftir 23. Hxd4 er staðan í jafnvægi. 23. … dxe3 24. gxf4 Dxg4+ 25. Kf1 Dh3+ 26. Kg1 26. … Rf5? Það vakti furðu að Magnús sá ekki einfalda leið til vinnings, 26. ..exf2+! 27. Dxf2 (ekki 27. Kxf2 Dh2+ og drottningin fellur) Hd6! ásamt –Hg6. 27. d6 Rh4 28. fxe3 Dg3+ Eftir 28. … Rf3+ 29. Kf2 Dh2+ 30. Kxf3 Dxc2 31. dxc7! Á hvítur möguleika á því að bjarga stöðunni. 29. Kf1 Rf3 Öruggasta leiðin. Hótunin 30. … Dg1+ 30. Ke2 Dg2+ neyðir hvítan til að fara út í vonlítið hróksendatafl. 30. Df2 Dh3 31. Dg2 Dxg2 32. Kxg2 Rxe1 33. Hxe1 Hxd6 34. Kf3 Hd2 35. Hb1 g6 36. b4 axb4 37. Hxb4 Ha2 38. Ke4 h5 39. Kd5 Hc2 40. Hb3 h4 41. Kc6 h3 42. Kxc7 h2 43. Hb1 Hxc3 44. Kxb6 44. … Hb3+! 45. Hxb3 h1(D) 46. a5 Einhverjir töldu að frípeðið gæfi Nepo einhverja von en staðan er létt- unnin á svart. 46. … De4! 47. Ka7 De7+ 48. Ka8 Kg7 49. Hb6 Dc5 - og Nepo gafst upp. Það verður að tekjast líklegt að Magnús haldi titlinum næstu árin. Einbeitni hans við skákborðið var frábær og þó að Nepo næði stundum miklu tímaforskoti raskaði það aldrei ró hans. Í dag er talið að honum stafi mest hætt af hinum unga Írana Al- ireza Firouzjka. Þá hefur Filippsey- ingurinn Wesley So oft reynst hon- um erfiður. Gallinn er hins vegar sá að So hefur enn ekki unnið sér sæti í áskorendakeppninni 2022 en fær tækifæri til þess í byrjun næsta árs. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Föstudaginn 26. nóv- ember birtist frétt í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni „ Segir þýska verslun græða á sinni hönnun“. Þar kem- ur m.a. fram að Hugrún Ívarsdóttir hönnuður hafi í byrjun árs leitað til Myndstefs vegna eftirlík- inga af hönnun sinni, þar á meðal vegna fram- leiðslu fyrirtækis míns, Glófa ehf./VARMA, fyrir þýskt fyrir- tæki. Mér barst póstur frá Myndstefi 23. febrúar sem ég svaraði daginn eft- ir. Mér barst svo svar frá Myndstefi 21. maí þar sem fram kemur að svar hafi borist frá þýska fyrirtækinu þar sem líkindum með hönnun þeirra og Hugrúnar sé hafnað. Þá kemur fram í bréfi Myndstefs að málinu sé lokið af þeirra hálfu, án málaloka eða sátta. Fyrirtækið mitt, Glófi ehf./ VARMA, framleiðir alls kyns vél- prjónaðar ullarvörur fyrir 30 til 50 mismunandi aðila á hverju ári, undir þeirra vörumerkjum. Þar er um að ræða stór og smá fyrirtæki, sem og fjölda hönnuða. Auk þess framleiðum við fjölda vara undir okkar eigin vöru- merki, VARMA, sem seldar eru í um 120 verslunum um allt land. Við gæt- um þess ætíð, þegar við framleiðum VARMA-vörur, að við séum ekki að líkja eftir hönnun annarra og höfum aldrei verið staðin að broti á höf- undar- eða hönnunarrétti annarra. Þegar við framleiðum vörur fyrir aðra, eins og í fyrrgreindu tilviki, koma þeir aðilar með sína hönnun eða hugmyndir að hönnunarlegri út- færslu til okkar og selja vörurnar undir sínu vörumerki. Við brýnum fyrir þessum aðilum að gæta þess að nýta ekki hönnun annarra. Það er því alveg ljóst að þegar við framleiðum fyrir aðra, eftir hönnun sem þessir að- ilar koma með til okkar, er hönnunin á þeirra vegum en ekki okkar. Í fréttinni er haft eftir Hugrúnu að hún hafi fengið þær upplýsingar frá okkur að framleiðsla okkar fyrir þýska fyrirtækið hafi verið fá teppi, en svo hnýtir hún í okkur með því að gefa í skyn að það sé e.t.v. ekki rétt því þau séu alltaf í sölu og svo bætist fleiri vörur við. Það að vara sé í sölu segir ekkert um magnið sem framleitt hefur verið. Greinilega gengur salan ekkert allt- of vel miðað við þann fjölda teppa sem við höf- um framleitt fyrir þýska fyrirtækið, á rúmu ári. Umrætt teppi er fram- leitt eftir hönnun þýska fyrirtækisins, undir þeirra vörumerki, og er með mynd af hesti. Við höfum fundið fjölda ára- tuga gamalla mynda af teppum með hesta- mynstri, mörg hver ekki ósvipuð því sem er í teppi Hugrúnar og þýska fyrirtækisins. Hugrún nefnir líka lundateppi sem sé óheppilega líkt hennar teppi, sem hún geri ráð fyrir að sé líka framleitt af okkur. Það er rétt að við gerðum frumgerð af lundateppi fyrir þýska fyrirtækið, eftir þeirra hönnunarfor- skrift, en engin framleiðsla hefur átt sér stað á því hjá okkur. Mér hefði þótt eðlilegt að Morgun- blaðið leitaði viðbragða hjá okkur áður en fréttin með fyrrgreindum full- yrðingum í okkar garð birtist, því í því sem Hugrún segir felast ákveðin meið- yrði. Við erum eini aðilinn sem til- greindur er sem þátttakandi í að brjóta á meintum hönnunarrétti henn- ar. Ég virði viðhorf hennar sem hönn- uðar, en dreg hins vegar í efa að hönn- unarverndin sé svo víðtæk að það teljist brot á rétti hennar að vera með mynd af hesti á framleiðsluvöru sem þessari. Ég tel hins vegar mikilvægt að hönnuðir haldi rétti sínum á lofti. Styrkur hönnunarréttar í hverju tilviki fyrir sig ræðst hins vegar öðru fremur af frumleikastigi hönnunarinnar. Hönnunarvernd Eftir Pál Kr. Pálsson »Ég virði viðhorf hennar sem hönn- uðar, en dreg hins vegar í efa að hönnunarvernd- in sé svo víðtæk að það teljist brot á rétti henn- ar að vera með mynd af hesti á framleiðsluvöru sem þessari. Páll Kr. Pálsson Höfundur er framkvæmdastjóri og eigandi Varma/Glófa ehf. Jón Gunnar Tómasson fæddist 7. desember 1931 í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Tómas Jónsson borgarritari, f. 1900, d. 1964, og Sigríður Thor- oddsen, f. 1903, d. 1996. Jón útskrifaðist úr lagadeild HÍ 1957 og lauk meistaranámi frá Columbia-háskólanum í New York 1958. Jón hafði m.a. verið lög- reglustjóri í Bolungarvík þegar hann tók við starfi skrifstofu- stjóra borgarstjórnar Reykja- víkur árið 1966. Hann tók við embætti borgarlögmanns 1979, var borgarritari 1982 og ríkis- lögmaður 1994-1999. Um langt skeið sat Jón í kjaradómi og síðar kjaranefnd, hann var formaður stjórnar SPRON 1976-2004 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir ríkið, sveitarfélög, félaga- samtök og íþróttahreyfinguna. Hann var um langt skeið for- maður yfirkjörstjórnar Reykjavíkur og formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Jón hlaut fálkaorðuna og var handhafi gullmerkis KSÍ, Golf- klúbbs Reykjavíkur og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Eiginkona Jóns var Sigur- laug Erla Jóhannesdóttir, f. 1933, d. 2014, hjúkrunarfræð- ingur. Börn þeirra eru þrjú. Jón lést 23. apríl 2016. Merkir Íslendingar Jón G. Tómasson Morgunblaðið/AFP Í sérflokki Magnús Carlsen við taflið í gær. Hann var gríðarlega einbeittur. Magnús Carlsen varði heimsmeistara- titilinn í fjórða sinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.