Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
R
únaristan á Tune-
steininum í Nor-
egi (um 400
e.Kr.) er á meðal
merkustu heimilda frá
frumnorrænum tíma.
Fræðimönnum hefur geng-
ið illa að fá botn í textann,
sérstaklega síðari hluta
hans. Rúnirnar eru ristar á
tvær gagnstæðar hliðar
steinsins, sem er rauðleitt
granít, 2 metrar á hæð og
æði tilkomumikill að sjá,
eins og ég hef sannreynt
nokkrum sinnum á menn-
ingarsögusafninu í Ósló.
Hliðar steinsins sem rún-
irnar eru ristar á eru
nefndar A- og B-hliðin.
Með tilliti til málbreyt-
inga væri textinn svona á
íslensku (orð sem vantar
eru innan hornklofa): A:
„Ég Vír eftir Óðríði vitand-
hleifa orti [rúnir].“ B: „[Ví]r
Óðríði stein [reisti]. Þrjár
dætur deildu arf, síastir
(nánastir) erfingja.“ Á A-
hliðinni segir maður að nafni
Vír frá því að hann hafi ort
(gert) rúnir eftir Óðríði vit-
andhleifa, höfðingja sem
deildi út brauðhleifum (sbr. ensku lord, úr fornensku hlafweard ‘hleif-
vörður’). Á B-hliðinni segist einhver (hugsanlega sami Vír sem talar á
A-hliðinni) hafa reist stein í minningu Óðríðar. Svo er bætt við að þrjár
dætur hafi deilt arfinum, nánustu erfingjarnir.
Helsta vafamálið á A-hliðinni er í lok setningarinnar þar sem mótar
fyrir rún sem af laginu að dæma hlýtur að vera r, en efsti hluti steins-
ins hefur brotnað af og glatast ásamt með afganginum af orðinu. Soph-
us Bugge las ‘rúnir’ og það hefur verið viðtekin skoðun síðan. Aftur á
móti er túlkun á B-hliðinni mjög vandasöm; nánast hvert einasta atriði
er óljóst nema ‘þrjár dætur’, erfingjar hins sálaða höfðinga Óðríðar
vitandhleifa. Svo virðist sem á B-hliðinni séu tvær setningar. Sögnina
vantar í þá fyrri en hún hlýtur að hafa merkt ‘reisa’ eða þ.u.l. þar sem
andlag hennar er ‘steinn’. Í síðari setningunni er ‘þrjár dætur’ frumlag
sagnarinnar ‘deildu’ en andlag hennar er ‘arfur’, ‘þrjár dætur deildu
arf’ (með þolfalli, en við myndum nota þágufall: ‘deildu arfi’).
Þar á eftir koma orðin ‘síastir erfingja’, sem virðist merkja „nánustu
erfingjarnir“. En hvað er ‘síastir’ (sijosteR)? Það er dularfyllsta orðið á
Tune-steininum enda hafa lærdómsmenn reytt hár sitt og skegg í ör-
væntingu út af því. Að mínum dómi er þetta eldfornt orð sem merkir
„náskyldur“ en ýmsar aðrar túlkanir hafa verið settar fram. Sá mikli
fræðaþulur Wolfgang Krause var ungur maður á uppleið í Þýskalandi
nasismans. Honum datt það „snjallræði“ í hug að þarna stæði arískur,
þ.e. „arískustu erfingjarnir“ (arjosteR; það vantaði bara a í upphafi
orðsins og sí væri illa skrifað r). Fáir trúa röksemdum Krauses lengur
en lesháttur hans hefur orðið furðu lífseigur í handbókum um rúna-
fræði. Þetta litla dæmi sýnir að galin hugmyndafræði og pólitísk henti-
stefna geta leitt jafnvel grandvörustu fræðimenn út í fáránlegar
ógöngur – og þegar einu sinni er búið að færa slíkar delluhugmyndir til
bókar getur reynst þrautin þyngri að uppræta þær.
Arískustu
erfingjarnir?
Tungutak
Þórhallur Eyþórsson
tolli@hi.is
Rúnir: Tune-steinninn í Noregi.
Þ
ess er nú minnst að 30 ár eru frá því að Sov-
étríkin urðu að engu. Upplausn ríkisins hófst
árið 1988 þegar stjórnvöld í Eistlandi lýstu lýð-
veldið sjálfstætt innan sovéska sambandsrík-
isins. Litháar urðu hins vegar fyrstir til að segja skilið við
Sovétríkin og lýsa yfir sjálfstæði 11. mars 1990.
Aðskilnaður Eystrasaltsríkjanna frá Sovétríkjunum
hlaut viðurkenningu í september 1991. Síðan kom Belo-
vezha-samningurinn 6. desember 1991. Með honum sam-
þykktu Boris Jeltsin, forseti SFSR, Sovéska sósíalíska
sambandsríkisins Rússlands, Leonid Kravtsjuk, forseti
Úkraínu, og Stanislav Shushkevitsj, flokksformaður í
Hvíta-Rússlandi, að koma á fót Samveldi sjálfstæðra ríkja
(CIS) í stað Sovétríkjanna.
Öll fráfarandi lýðveldi Sovétríkjanna gengu í samveldið
nema Eystrasaltsríkin og Georgía. Var Samveldi sjálf-
stæðra ríkja formlega stofnað með Alma-Ata-skjalinu 21.
desember 1990. Í því voru Armenía, Azerbaijan, Hvíta-
Rússland, Kazakhstan, Kirghizstan, Moldavía, Rússland,
Tajikistan, Turkmenistan, Ukraína og Uzbekistan.
Georgia gekk í samveldið 1993.
Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, sagði af sér 25. desem-
ber 1991 og fól Boris Jeltsín for-
setavaldið ásamt lyklum að
sovéskum kjarnorkuvopnum.
Jeltsín varð þá forseti Rússneska
sambandsríkisins. Að kvöldi sama
dags var rauður fáni Sovétríkj-
anna dreginn niður á Kreml-
arkastala og að húni var dreginn
þrílitur fáni Rússlands. Sovéska
þingið staðfesti 26. desember 1991
sjálfstæði fyrrverandi sovésku
lýðveldanna og Sovétríkin voru formlega úr sögunni.
Kalda stríðinu var endanlega lokið.
Úkraína sagði skilið við stofnanir Samveldis sjálf-
stæðra ríkja árið 2018. Eystrasaltsríkin þrjú eru nú í
NATO og Evrópusambandinu (ESB). Stjórnvöld Úkra-
ínu, Georgíu og Moldavíu hafa lýst áhuga á að sigla í kjöl-
far Eystrasaltsríkjanna við mikla reiði ráðamanna í
Moskvu.
Vladimir Pútin Rússlandsforseti réðst inn í Georgíu ár-
ið 2008, lagði undir sig hluta Úkraínu árið 2014 og mikil
togstreita er í Moldavíu vegna ítaka Rússa þar. Pútin og
félagar eru í nánum samskiptum við ráðamenn Serbíu og
stunda undirróður og óvinafagnað í ríkjum á Balkanskaga
sem áður lutu stjórn Títós einræðisherra í Júgóslavíu.
Nágrannaþjóðir Rússa og Hvítrússa óttast valdabrölt
og ögranir stjórnvalda landanna. Vegna NATO- og ESB-
aðildar eiga Eystrasaltsþjóðirnar staðfasta bandamenn
sem hafa skuldbundið sig með samningum og herafla til
að leggja þeim lið á hættustund. Sama verður ekki sagt
um Úkraínumenn sem sjá allt að 175.000 rússneska her-
menn við landamæri sín og grunar að Pútin sendi þá gegn
sér í upphafi næsta árs eða jafnvel fyrr. Frosin jörð auð-
veldar þungum vígdrekum að sækja fram á sléttunum.
Í byrjun vikunnar birtist hér í blaðinu grein eftir Carl
Bildt, fyrrv. ráðherra í Svíþjóð. Þar dregur hann upp þá
skuggalegu mynd að samtímis eða um svipað leyti gefi
þeir fyrirmæli um hernað, Valdimir Pútin gegn Úkraínu
og Xi Jinping Kínaforseti gegn Taívan. Báðir telja sig
hafa ástæðu til valdbeitingar, Pútin til að halda Úkraínu á
áhrifasvæði sínu og Xi til að tryggja framgang stefnunnar
um eitt ríki – tvö kerfi.
Þegar Pútin komst til valda árið 2000 var óttinn við
NATO ekki efstur á blaði í áróðri hans eins og nú. Stofnað
hafði verið til samstarfs Rússa og NATO. Því var ekki
slitið fyrr en nú fyrir skömmu.
Við brottför bandaríska varnarliðsins héðan árið 2006
svöruðu Bandaríkjamenn ábendingum um að viðbúnaður
hér hefði gildi vegna Rússa á Norður-Atlantshafi á þann
veg að kvíði af þessum sökum væri ástæðulaus: Rússar
væru bandamenn NATO-þjóðanna og floti þeirra í rúst
eins og ríkið sjálft.
Leiðtogar NATO-ríkjanna gáfu
árið 2008 grænt ljós á aðild
Georgíu og Úkraínu að bandalag-
inu án nokkurra tímasetninga.
Pútin telur sig eiga að ákveða hvar
ríkin skipa sér en hvorki stjórn-
endur þeirra né NATO. Rússar
hafa þó ekkert neitunarvald um
þetta efni.
Pútin hefur hvað eftir annað lát-
ið reyna á hve langt hann kemst.
Honum líðst að herða tök á eigin
þjóð með fangelsun andstæðinga
sinna og takmörkunum á skoðana- og tjáningarfrelsi.
Hann lætur nú reyna á staðfestu nýrrar ríkisstjórnar í
Þýskalandi samhliða áreiti í garð Bandaríkjastjórnar og
NATO.
Evrópuþjóðir eru háðar jarðgasi frá Rússlandi. Þegar
utanríkisráðherrarnir Antony Blinken og Seigeij Lavror
hittust hér í Hörpu í maí 2021 féll Blinken frá andstöðu
við nýja rússneska gasleiðslu til Þýskalands, Nord
Stream 2.
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði við Pútin á fjarfundi
7. desember 2021 að stjórn sín gæti enn stöðvað Nord
Stream 2. Þá mætti enn herða efnahagslegar refsiaðgerð-
ir. Rússum kann að verða bannað að nota staðlaða sam-
skiptakerfið SWIFT til alþjóðlegra færslna á milli banka.
Berlínarmúrin og Sovétríkin hrundu án þess að til
vopnaðra átaka kæmi eða mannskæðra uppþota. Nú á 30
ára afmæli sovéska hrunsins minnir ástandið á það sem
var í Kúbudeilunni fyrir tæpum 60 árum þegar spenna
magnaðist vegna sovéskra kjarnaflauga á Kúbu í óþökk
Bandaríkjastjórnar. Hvað gerist næst? spurðu menn með
öndina í hálsinum. Deilan leystist friðsamlega á ögur-
stund og til varð samskiptakerfi milli austurs og vesturs
sem stuðlaði að trausti og stöðugleika þrátt fyrir ágrein-
ing.
Hvað gerist næst? spyrja menn og líta til Pútins og liðs-
afla hans. Óvissan ein veldur kvíða og hættu – meiri en
nokkru sinni undanfarin 30 ár.
Vígreifir Rússar minnast hruns
Sovétríkin hrundu án þess að
til vopnaðra átaka kæmi eða
mannskæðra uppþota. Nú á
30 ára afmæli sovéska hruns-
ins minnir ástandið á það
sem var í Kúbudeilunni.
Björn Bjarnason
bjorn@bjorn.is
Í Úlfljóti 2007 birti Sigurður Lín-
dal lagaprófessor 80 bls. ritgerð,
í rauninni litla bók, um stjórnspeki
Snorra Sturlusonar, eins og hún
birtist í Heimskringlu, og hefur
þessi merkilega ritsmíð ekki hlotið
þá athygli, sem hún á skilið. Sig-
urður greinir þar á milli tveggja
hugmynda um lög og rétt: að hann
sé eðlisréttur (natural law) eða vild-
arréttur (legal positivism). Sam-
kvæmt eðlisrétti eru lögin til ofar
valdhöfum og óháð þeim. Heilagur
Tómas Akvínas fann uppsprettu eðl-
isréttarins í mannlegri skynsemi, en
Snorri Sturluson í venjum og for-
dæmi, hinum góðu, gömlu lögum,
eins og það er stundum orðað.
Samkvæmt vildarrétti eru lögin
hins vegar sett af valdhöfum og til
marks um vilja þeirra. Á norðlægum
slóðum kom vildarréttur til sögu,
þegar ríkisvald efldist á miðöldum.
Löggjafinn átti þá að vera konung-
urinn, einvaldurinn. Þessar tvær
hugmyndir um lög og rétt rákust
eftirminnilega á, þegar norskur
sendimaður, Loðinn Leppur, reidd-
ist því mjög á Alþingi 1281, „að bú-
karlar gerðu sig svo digra, að þeir
huguðu að skipa lögum í landi, þeim
sem kóngur einn saman átti að
ráða“. Í lýðræðisríkjum nútímans er
litið svo á, að lýðurinn sé löggjafinn,
þótt í reynd fari kjörnir fulltrúar
hans með löggjafarvaldið. En Sig-
urður benti á, að jafnbrýnt væri að
setja löggjafanum skorður, þótt að
baki hans stæði meiri hluti í kosn-
ingum, og að fornu, þegar hann ríkti
sem konungur af Guðs náð.
Kenningin um stjórnarskrárbund-
ið lýðræði hvílir í raun á hugmynd-
inni um eðlisrétt. Hún er, að til séu
almenn sannindi eða lögmál, sem
þurfi að vera óhult fyrir lýðræðinu,
vildarréttinum, ef svo má segja, svo
sem friðhelgi eignarréttarins, at-
vinnufrelsi, bann við ritskoðun og
bann við skattheimtu án lagaheim-
ildar. Þessi almennu sannindi geyma
í sér reynsluvit kynslóðanna.
.Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Eðlisréttur
og vildarréttur
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 07/2020, ekinn 11 þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid),
sjálfskiptur. Leðursæti, glerþak, Matrix LED ökuljós, sólargardínur afturí,
skynvæddur hraðastillir, stafrænt mælaborð, blindsvæðisvörn, bakkmynda-
vél, hiti í framrúðu og öllum sætum. Raðnúmer 253395
SKODA SUPERB IV STYLE+ M.BENZ A 250E AMG LINE EDITION
Nýskráður 04/2021, ekinn aðeins 3 Þ.km, bensín & rafmagn (69 km drægni),
sjálfskiptur (8 gíra). AMG innan og utan, Editionpakki og Næturpakki,
19“ álfelgur, leðurklætt mælaborð o.fl. Raðnúmer 2253477
000
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
VW GOLF GTE NEW
Nýskráður 09/2020, ekinn aðeins 8 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid),
sjálfskiptur (6 gíra). Stafrænt mælaborð, IQ LED ljós, sjónlínuskjá, 18“
álfelgur o.fl. Raðnúmer 253476