Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 20

Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Norðurál er umbótasinnað fyrir- tæki og við erum alltaf að leita leiða til að gera betur. Á það jafnt við um öryggis-, umhverfis- og gæðamál, framleiðslu eða aðra þætti í rekstr- inum,“ segir Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls á Grundartanga. Fyrirtækið er hið stærsta á Vesturlandi, starfsmenn eru um 600 talsins, veltan á árinu 2020 var 77,2 milljarðar króna og framleiðslan á ári er um 320 þúsund tonn af áli. Sigrún hóf störf hjá Norðuráli árið 2012 og tók við stöðu framkvæmdastjóra álversins í febr- úar á þessu ári. Auka virði framleiðslunnar Áliðnaðurinn í landinu stendur vel um þessar mundir; afkoman er ágæt og eftirspurn eftir framleiðsl- unni mikil. „Við erum í sterkri stöðu og höfum forskot í samkeppn- inni. Fólk og fyrirtæki hafa miklar og vaxandi áhyggjur af loftslags- málum og horfa í auknum mæli á kolefniáhrif framleiðsluþátta. Stærsti einstaki þátturinn í kolefn- isspori álframleiðslu á heimsvísu er raforkan. Á Íslandi er orkan end- urnýjanleg og þegar það helst í hendur við stöðugan rekstur og öruggan tækjabúnað getum við framleitt ál sem er það grænasta í heimi,“ segir Sigrún. Starfsemi Norðuráls hófst árið 1998 og til að byrja með var fram- leiðslugeta um 60 þúsund tonn. Smám saman var verksmiðjan stækkuð og stóð sú vegferð allt til ársins 2007. Auk framleiðsluaukn- ingar, hefur í seinni tíð verið lögð aukin áhersla á að styrkja og efla innviði og auka virði framleiðsl- unnar. Viðskiptavinir Norðuráls eru að stórum hluta evrópsk fyrirtæki sem framleiða hluti í bíla. Framkvæmdir eru nú hafnar við nýja fram- leiðslulínu þaðan sem álið fer til áframvinnslu í álsívalninga, verð- mætari afurð, sem nýtist beint til framleiðslu á vörum eins og bílum, byggingum og tæknibúnaði. „Munurinn er sá að það ál sem við framleiðum nú þarf að end- urbræða og vinna frekar áður en það nýtist í þessa framleiðslu,“ seg- ir Sigrún. „Þar sem við munum nota fljótandi ál til framleiðslunnar og ekki þarf að endurbræða það til frekari vinnslu ytra verður kolefn- issporið minna og verðmætaaukn- ingin verður eftir hér heima á Ís- landi.“ Fá græna fjármögnun Framkvæmdir við nýju fram- leiðslulínuna eru hafnar og er gert ráð fyrir að framleiðsla þar hefjist á fyrri hluta ársins 2024. Þetta er fjárfesting upp á um 16 milljarða króna og er ætlunin að um helm- ingur af framleiðslu álversins fari þar í gegn. „Þetta eru háar fjár- hæðir, en vegna þess hve umhverf- isáhrif framkvæmdarinnar eru já- kvæð hefur verkefnið fengið græna fjármögnun frá Arion banka. Þá munu útflutningstekjur álversins aukast um 3 til 4 milljarða á ári, án þess að við aukum álframleiðsluna, segir framkvæmdastjórinn og enn- fremur: „Með því erum við í raun að halda áfram á vegferð, sem staðið hefur yfir um nokkurra ára skeið, en árið 2014 hóf Norðurál að fram- leiða álblöndur, ál blandað efnum eins og kísli og magnesíum, eftir séróskum viðskiptavina. Markmiðið hjá okkur er að auka verðmæta- sköpun, auka framlegð og búa svo um hnútana að meira af ágóðanum verði til hér á landi.“ Sigrún segir áherslu á umhverfis- mál gegnumgangandi í öllum rekstri álversins. Markmiðið sé að geta framleitt ál án þess að losa kolefni, en tæknin er ekki komin þangað enn. „En við getum hins vegar minnkað önnur umhverfis- áhrif rekstursins og það höfum við gert með virkri þátttöku starfs- fólksins. Við höfum til dæmis sett okkur metnaðarfull markmið um að minnka sorp sem til fellur hjá okk- ur og erum nú þegar komin með allstóran flota rafmagnsbíla sem notaður er til samkeyrslu til og frá vinnu. Þetta eru bara tvö dæmi, en með svona skrefum, stórum og litlum, náum við árangri til lengri tíma. Til marks um hve alvarlega við tökum umhverfismál að bón- uskerfi starfsfólks er að hluta tengt árangri í þessum málaflokki. Starfs- fólk nýtur ábatans sem verður þeg- ar umhverfisáhrif minnka. Þannig á það líka að vera. Stóra markmiðið er kolefnishlutleysi þar sem því verður komið við og við náum því markmiði ekki nema með því að vinna saman.“ Konum í starfsliði fjölgi Eins og áður segir starfa um 600 manns hjá Norðuráli og búa um tveir þriðju hlutar þeirra á Vest- urlandi, t.d. á Akranesi, Borgarnesi og svæðinu þar í kring. Auk þeirra skapar starfsemi álversins líka mörg afleidd störf hjá ýmiss konar tækni- og þjónustufyrirtækjum og í flutningum. „Norðurál er eftirsóttur vinnu- staður og þannig viljum við líka vera. Síðasta vor sóttu um 800 manns um 200 sumarstörf og það segir líka sitt að eftir 23 ára starf- semi eru hér 40 starfsmenn sem hafa verið með okkur frá upphafi. Þessi geiri er því marki brenndur að kynjahlutföllin eru ekki jöfn, en konum í starfsliði okkar fjölgar stöðugt. Þær eru til dæmis um fimmtungur þeirra sem starfa í framleiðslunni og um þriðjungur stjórnenda og sérfræðinga eru kon- ur,“ segir Sigrún. Hún segir að við ráðningar sé unnið eftir því mark- miði að jafna kynjaskiptingu á öll- um sviðum og að í ár hafi konur verið um 43% þeirra sem ráðin voru í sumarstörf í framleiðslunni. Vinnustaður sé fjölskylduvænn „Jafnari kynjaskipting hefur haft veruleg jákvæð áhrif á starfsemi og starfsanda, sem er samræmi við reynslu annarra og niðurstöður rannsókna. Þá hefur okkur líka ver- ið kappsmál að gera Norðurál að fjölskylduvænni vinnustað og í því skyni meðal annars voru vaktir í ker- og steypuskála styttar úr 12 tímum í 8 og vinnutími dag- vinnufólks styttur umfram það sem verið er að gera á almennum vinnu- markaði. Þetta á eftir að skila sér í ánægðara starfsfólki og gera góðan vinnustað betri,“ segir Sigrún Helgadóttir. Nýjar áherslur hjá Norðuráli - Ný framleiðsla á verðmætari afurðum á Grundartanga - Sama magn - Séróskir viðskiptavina - Umhverfismálin eru alltaf nærri - Kynjaskipting verði jafnari, segir framkvæmdastjóri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stjórnandinn Markmiðið hjá okkur er að auka framlegð og búa svo um hnútana að meira af ágóðanum verði til hér, segir Sigrún í viðtalinu. Ljósmynd/Norðurál Steypuskáli Áliðnaðurinn stendur vel um þessar mundir; afkoman er ágæt og eftirspurn eftir framleiðslunni mikil. Ljósmynd/Norðurál Grundartangi Grænblá hús álversins setja sterkan svip á umhverfið í Hval- firði. Alls vinna um 600 manns í fyrirtækinu og þá eru afleidd störf ótalin. ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.