Morgunblaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íbúar Rangárþings ytra hafa ekki
áhuga á að sameinast Skaftárhreppi,
Mýrdalshreppi og Rangárþingi
eystra. Þetta kemur fram í könnun
sem sveitarstjórn lét gera. Hins veg-
ar má lesa út úr könnuninni að
meirihluti þátttakenda hafi áhuga á
sameiningu, þar sem nágrannasveit-
arfélagið Rangárþing eystra er með.
Eftir að sameining fimm sveitar-
félaga á Suðurlandi féll á því að íbú-
ar Ásahrepps vildu ekki sameiningu
óskaði Skaftárhreppur eftir afstöðu
sveitarstjórna til þess að taka upp
viðræður um sameiningu sveitar-
félaganna fjögurra þar sem samein-
ing var samþykkt.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra
var jákvæð til erindisins, sveitar-
stjórn Rangárþings ytra ákvað að
kanna hug íbúanna áður en afstaða
yrði tekin en sveitarstjórn Mýrdals-
hrepps hafnaði málaleitaninni.
43% vilja engar viðræður
Niðurstöður skoðanakönnunar
meðal íbúa Rangárþings ytra voru
þær að 21,2% þátttakenda vildu
hefja viðræður um sameiningu við
Skaftárhrepp og Rangárþing eystra,
35,3% töldu rétt að hefja viðræður
einungis við Rangárþing eystra og
43,4% þátttakenda vildu hætta frek-
ari viðræðum að sinni.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra
leit svo á að niðurstöðurnar gæfu til
kynna að ekki væri mikill áhugi fyrir
því að taka þátt í þeim viðræðum
sem Skaftárhreppur lagði til og var
erindinu því hafnað.
Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
segir að túlka megi niðurstöður
könnunarinnar þannig að fleiri séu
meðmæltir því að skoða sameiningu,
fremur en að hafa kyrrstöðu í þess-
um málum. Sömuleiðis megi túlka
niðurstöðurnar þannig að 57% þátt-
takenda séu tilbúin að skoða samein-
ingu þar sem Rangárþing eystra sé
með. Hann tekur fram að framhaldið
hafi ekki verið rætt en samsinnir því
að ef eitthvað eigi að gera hljóti
þrengri sameining, til dæmis Rang-
árþings ytra og eystra, að koma til
greina.
Áhugi er á
sameiningu í
Rangárþingi
- Umleitanir um stóra sameiningu á
Suðurlandi eru alveg úr sögunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá Hellu Íbúar Rangárþings ytra
eru opnir fyrir þrengri sameiningu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikill fjöldi barna er með virkt kór-
ónuveirusmit og í einangrun af
þeim sökum. Langflest þeirra smita
eru meðal barna á aldrinum 6-12
ára eða 289 talsins. Þá eru 86 börn
fimm ára og yngri með virkt smit
samkvæmt tölum á covid.is í gær.
Einna fæst smit eru meðal ung-
menna á aldrinum 13-17 ára eða 62
talsins. Næstflest eru smitin í ald-
urshópnum 30-39 ára, 264 talsins.
Ef horft er til landsins alls eru
1.373 í einangrun og fækkaði þeim
um 30 á milli daga. Aftur á móti
fjölgaði þeim sem eru í sóttkví um-
talsvert á milli daga eða um 185.
Þeir eru nú 1.859.
Enn eru mörg virk smit á Aust-
urlandi en þar hafa nýlega komið
upp hópsmit. Nú eru 53 virk smit í
fjórðungnum en 203 í sóttkví. Á
Suðurnesjum eru 145 með virkt
smit og í einangrun og 157 í sóttkví.
Sem fyrr eru flest virk smit á höf-
uðborgarsvæðinu, 983 alls. Þar eru
1.288 í sóttkví.
Fjórir í öndunarvél
Á fimmtudag greindist 101 nýtt
kórónuveirusmit innanlands. Þar af
voru 54 einstaklingar í sóttkví.
Fimm smit greindust að auki á
landamærunum. Í gær lá 21 á
sjúkrahúsi af völdum kórónuveir-
unnar, þar af fimm á gjörgæslu og
fjórir þeirra í öndunarvél. Á Land-
spítalanum lágu 17 sjúklingar í gær
vegna kórónuveirunnar. Frá upp-
hafi fjórðu bylgju, 30. júní síðastlið-
inn, hafa 219 verið lagðir inn vegna
Covid-19 á Landspítala.
86
289
62
221
264
214
124
79
33
175
150
125
100
75
50
25
0
Heimild: covid.is
kl. 13.00 í gær
106 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
1.373 erumeð virkt smit
og í einangrun
1.859 einstaklingar
eru í sóttkví
17 einstaklingar eruásjúkrahúsi,
þaraffimmágjörgæslu
Staðfest smit
7 daga meðaltal
Fjöldi innlagðra á LSH
með Covid-19 smit
154
32
17
112
júlí ágúst september október nóvember
106
Fjöldi í
einangrun
og sóttkví
eftir lands-
hlutum
Óstaðsett 27 25
Austurland 53 203
Höfuðborgarsvæði 983 1.288
Suðurnes 145 157
Norðurland vestra 2 3
Norðurland eystra 31 26
Suðurland 59 63
Vestfirðir 26 33
Vesturland 47 61
Með virkt
smit og í
einangrun
Fjöldi í
sóttkví
Fjöldi í
einangrun
1,28 milljón sýni hafa verið tekin
frá 28. febrúar 2020
Fjöldi með virkt smit og í einangrun eftir aldri
Innanlandssýni 60%
Landamærasýni 1 31%
Landamærasýni 2 9%
0-5 ára 6-12 13-17 18-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70+
des.
Flest smitin eru nú í
aldurshópnum 6-12 ára
- 101 kórónuveirusmit á fimmtudag - 21 á sjúkrahúsi í gær
„Ef það verða strangar
samkomutakmarkanir í gildi þá
er kirkjan með plan b og plan c
tilbúið fyrir hátíðirnar,“ segir
Pétur Georg Markan biskupsrit-
ari. Núverandi samkomu-
takmarkanir vegna kórónuveir-
unnar fela í sér að aðeins mega
50 koma saman en allt að 500
ef fólk framvísar neikvæðu hrað-
prófi. Takmarkanir þessar gilda
til 21. desember og ekki er ljóst
hvort þær verða framlengdar
eða hvort slakað verði á þeim.
Pétur segir að eins og aðrir bíði
kirkjunnar menn og konur og
vonist til að ástandið skáni svo
hægt verði að koma saman yfir
jólahátíðina.
„En það sem Covid-tíminn
hefur kennt okkur og þróað og
þroskað í kirkjunni er nátt-
úrulega getan til að vera með
hátíðahaldið í
streymi. Við
erum með
plan klárt fyrir
það,“ segir
biskupsritari,
en sú var ein-
mitt raunin
fyrir ári.
Bryddað var
upp á þeirri
nýbreytni í
fyrra að hátíðarmessan á jóla-
dag var send út í ríkissjónvarp-
inu. Pétur segir að það hafi gef-
ist vel og verði endurtekið í ár.
„Hátíðarmessan verður í Lang-
holtskirkju þetta árið. Það er
sjálfsögð þjónusta að senda
hana út í sjónvarpinu og við
munum halda því áfram, óháð
samkomutakmörkunum. Sú hefð
er komin til að vera.“
Allt klárt fyrir streymi
VARAÁÆTLUN FYRIR HENDI HJÁ KIRKJUNNI UM JÓLIN
Pétur
Markan
Uppstillingarnefnd Eflingar hefur
ákveðið að auglýsa eftir tilnefn-
ingum til setu í stjórn Eflingar á A-
lista. Þetta er í fyrsta sinn í sögu fé-
lagsins sem þessi leið er farin, segir
í tilkynningu Eflingar frá í gær.
Þegar Sigurður Bessason hætti
sem formaður Eflingar kom trún-
aðarmannaráð með tillögu um að
auglýst yrði eftir tilnefningum um
formann en sú tillaga var ekki aug-
lýst opinberlega.
Segir Efling að með þessum
hætti sé lýðræðislegur réttur fé-
lagsmanna tryggður, til að taka
þátt í starfinu.
Allir fullgildir félagsmenn geta
tilnefnt sjálfa sig eða annan full-
gildan félagsmann. Uppstillingar-
nefnd metur hæfi þeirra sem til-
nefndir eru og horfir auk þess til
þess að stjórnin endurspegli fé-
lagsmenn með tilliti til uppruna,
kyns, starfsgreina, aldurs og ann-
arra þátta.
Áhugasamir geta sent tilnefn-
ingar á efling@efling.is eða til
skrifstofu Eflingar. Skilafrestur til-
nefninga er mánudagurinn 3. jan-
úar næstkomandi. Fylgja þarf nafn,
kennitala, vinnustaður, netfang og
sími viðkomandi.
Efling óskar eftir tilnefningum
bókasafn bæjarins fái þarna framtíðarstað. Það sé í dag í
óhentugu húsnæði á fjórum hæðum. „Það verður á einni
hæð í þessu nýja húsi og er hannað sem nokkurs konar
margmiðlunarsetur. Eðli bókasafna hefur verið að þróast
um heim allan og við tökum þarna myndarlegt skref.
Bókasafnið er ein af menningarstofnunum bæjarins og
verður nú gert enn hærra undir höfði,“ segir Rósa.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er mikil ásókn í verslunarrými við Strandgötuna og í
miðbænum. Þessi framkvæmd verður mikil lyftistöng fyr-
ir bæinn,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í
Hafnarfirði.
Mikil uppbygging er fyrirhuguð í miðbæ Hafnarfjarðar
á næstu misserum. Eitt af þeim verkefnum sem eru í bí-
gerð er við Strandgötu 26-30 og að verslunarmiðstöðinni
Firði. Áður stóð til að byggja 100 herbergja hótel við
Strandgötuna en áformin hafa breyst og nú er stefnt að
því að koma þarna fyrir matvöruverslun og þjónustu á
jarðhæð, nútímabókasafni, almenningsgarði og hót-
elíbúðum í smáhýsum við Strandgötuna.
Rósa segir í samtali við Morgunblaðið að tillögur þessa
efnis hafi þegar verið samþykktar og ekkert sé því til fyr-
irstöðu að framkvæmdir hefjist fyrir vorið.
„Fyrst og fremst verður gott að fá nýtt verslunarrými í
miðbæinn. Hér er hvert einasta pláss nýtt í dag svo ekki
veitir af. Kannski fáum við líka fleiri veitingastaði eða eitt-
hvað annað spennandi,“ segir Rósa, sem fagnar líka að
Auka framboð á verslanarými
- Uppbygging við Strandgötu
í Hafnarfirði á að hefjast í vor
Uppbygging Aðkoma að nýrri byggingu við Strandgötu.