Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 38

Morgunblaðið - 11.12.2021, Side 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2021 40 ÁRA Elísabet ólst upp í Reykjavík og Gautaborg og býr í Úlfarsárdal í Reykja- vík. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur lokið dipl- ómunámi í gjörgæsluhjúkrun og jákvæðri sálfræði. Elísabet vinnur á vökudeild Barnaspítala Hringsins. „Áhugamálin eru útivist, fjallganga og ferðalög. Ég fór t.d. Laugaveginn í sumar.“ FJÖLSKYLDA Elísabet er í sambúð með Bergsveini Jóhannessyni, f. 1971, blikksmið. Sonur þeirra er Kolbeinn Gauti, f. 2013. Elísabet á einnig dótturina Matthildi Thalíu, f. 2008, og börn Berg- sveins eru Auður Agla, f. 1992, og Jóhann- es Tumi, f. 1999. Auður Agla á tvö börn. Foreldrar Elísabetar eru Sigríður Ólafsdóttir, f. 1965, hönnuður og framhaldsskólakennari, bús. í Reykjavík, og Ellert Gíslason, f. 1962, bifvélavirki, bús. í Kjós. Elísabet Ellertsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þér hefur sjaldan vegnað jafnvel og þessa dagana og ert að uppskera árangur erfiðis þíns. Notaðu daginn til þess að vera í félagsskap annarra. 20. apríl - 20. maí + Naut Gerðu sjálfum þér eitthvað til góða í dag því það er fyrir öllu að þú sért glaður. Gerðu ráð fyrir löngum samræðum um erf- iðleika fortíðarinnar. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut- unum sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess að skila vel unnu verki. Þú verður að nýta tímann vel og halda þig við efnið. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert svo vinsæll að þér finnst þú ekki þurfa að ganga í augun á neinum. Reyndu að forðast árekstra og láttu mik- ilvægar samræður bíða betri tíma. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Hafðu auga með öllum smáatriðum, hvort sem þér finnst þau skipta einhverju máli eða ekki. Ekki sniðganga þarfir þinna nánustu núna. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Nú fer að sjá fyrir endann á því álagi sem þú hefur búið við og þá máttu búast við umbun erfiðis þíns. Gættu þess að ganga ekki á hlut annarra. 23. sept. - 22. okt. k Vog Nú er rétti tíminn til að hrinda í fram- kvæmd þeim áætlunum sem þú hefur svo lengi unnið að af kostgæfni. Eitthvað óvænt gerist og veitir þér mikla ánægju. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Nýtt fólk hefur eitthvað fram að færa – hugsanlega ást. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Líttu í kringum þig og leyfðu þér að njóta þess sem heimurinn hefur upp á að bjóða. Stundum gerast hlutirnir þegar maður á síst von á þeim. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú hefur nóg að gera í fé- lagslífinu og nýtur þess að eiga góða vini. Reyndu að skipuleggja þig þannig að þú getir nýtt tíma þinn sem best. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú átt ekki í neinum vandræð- um með að inna af hendi þau verkefni sem þér hafa verið falin. Láttu slag standa. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú færð uppörvandi fréttir, sem jafnframt leiða til þess að þú þarft að gera skynsamlegar áætlanir. Einbeittu þér að heimili og fjölskyldu. og saumaði föt m.a. fyrir verslunina Fríðu og dýrið. Árið 2000 fór ég svo líka út í stíliseringu.“ Alda er sögð einn fremsti stílisti landsins, en stílisti sér um að velja föt og fleira á fólk sem kemur fram í auglýsingum eða kvikmyndum, og „Það átti nú ekki vel við mig, próf- aði það í eitt ár. En eftir það fór ég að sauma, rak saumastofu ásamt tveimur vinkonum mínum, sá um viðgerðir fyrir búðir á Laugaveg- inum og saumaði og hannaði eigin línu, sem hét Bleikur, en ég hannaði A lda Björg Guðjónsdóttir fæddist 11. desember 1971 í Reykjavík og ólst þar upp fyrstu fimm ár ævinnar. Frá fimm til átta ára bjó hún í Kópavogi. „Ég fór samt í Langholtsskóla því mamma mín vann á Langholtsveg- inum á saumastofu ömmu minnar og afa svo ég dvaldi þar öllum stundum eftir skóla að hjálpa til. Ég pakkaði ullarpeysum sem voru að fara utan í sölu og hjálpaði til á saumastofunni. Ég fæ algjöra endurupplifun til þessara góðu tíma þegar ég finn lykt af blautri ull því á saumastofunni var ullin unnin frá þræði; ofin, þvegin, þurrkuð, kembd og svo sniðin og saumuð. Þarna lærði ég að sauma.“ Alda fór ekki í sveit, en foreldrar hennar fóru um hverja helgi á tíma- bili í Kvíslhöfða á Mýrum þar sem systir föðurafa hennar bjó. „Við vor- um í hjólhýsi og þetta voru skemmti- legar ferðir í sveitina þó svo að ég hafi verið skíthrædd og hlaupið inn þegar beljurnar komu heim. Er enn smá hrædd við beljur.“ Þegar Alda var átta ára flutti fjöl- skyldan á Álftanes en Alda er Álft- nesingur aftur í ættir; langafi henn- ar og langamma bjuggu í Hákoti. „Foreldrar mínir búa á Álftanesi og systkini, og þegar foreldrar mínir byggðu hús fyrir langömmu mína eftir að langafi dó, þá bjó hún og systir hennar hjá okkur um tíma þegar ég var unglingur. Ég ólst því upp að hluta með þeim og spilaði við þær rommí og vist.“ Alda gekk í Álftanesskóla þangað til Garðaskóli tók við á unglings- árunum og þaðan fór hún í Fjöl- brautaskólann í Garðabæ. „Félags- lífið átti meira við mig en skólinn sjálfur svo ég kláraði ekki skólann. Ég fór þá að vinna á pítuveitingastað 17 ára. Á þessum tíma var ég líka ólétt að fyrsta barni mínu, Ágústi Ara. Eftir að hann fæddist vann ég í Hagkaup í Kringlunni, ásamt því að vera þjónn á Veitingastaðnum Tjörninni og á Skuggabarnum um helgar.“ Hún prófaði síðan að vera dagmamma eftir að hún eignaðist dótturina 1997 til að geta verið meira heima. vinnur þá náið með leikstjóra eða ljósmyndara við að finna rétta útlitið. „Vinnudagurinn hjá mér var þann- ig að ég byrjaði daginn á að bera út póst, vann svo á saumastofunni og síðan sem stílisti. En svo fannst mér svo skemmtilegt að vera stílisti að ég Alda B. Guðjónsdóttir stílisti – 50 ára Börnin Mikael, Jökull, Júlía, Tinna, Ágúst og Marína, en Jökull og Tinna eru tvö af þremur börnum bróður Öldu. Fór úr hönnun í stíliseringu Fjölskyldan Alda og börn stödd á Ibiza árið 2018. 50 ára Alda B. Guðjónsdóttir. Til hamingju með daginn Mosfellsbær Helena Ósk Trausta- dóttir fæddist 19. júlí 2020 í Reykja- vík. Hún vó 4.112 g og var 53,5 cm löng. Bróðir hennar er Ásgeir Jarl Traustason, f. 2014. Foreldrar hennar eru Sunna Karen Ingvarsdóttir og Trausti Sigurðsson. Nýr borgari STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is veg ey . . .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.