Morgunblaðið - 24.09.2021, Page 2
Þ
egar við fjölskyldan fluttum í vor hringsnerist hraðlest í hausn-
um á mér. Í eldhúsinu hafði verið tveggja metra hár vínkælir,
sem ég veit að marga dreymir um að eignast, en ég gat ekki
hugsað mér að hafa slíkan grip sem eldhússtáss.
Ætli það hafi ekki verið óttinn við að lenda á meðferð-
arstofnun ef ég hefði tveggja metra hátt búbblu-altari fyrir augunum alla
daga. Fyrir mig er alveg nógu mikil áskorun að eiga ísskáp.
Mitt fyrsta verk var að hafa samband við arkitektinn sem hannaði eld-
húsið fyrir nokkrum árum og biðja hann um að hanna endurbætur án
vínkælis. Ekki stóð á viðbrögðunum. Á örfáum dögum var hann búinn að
teikna þetta líka fína eldhús og það eina sem vantaði upp á var að fá tré-
smiðjuna sem smíðaði innréttinguna til þess að smíða viðbæturnar. Eftir
nokkrar tilraunir svaraði trésmiðjan póstinum mínum og gaf okkur tilboð.
Manninum mínum ofbauð reyndar verðmiðinn á sérsmíðinni en ég
benti honum á að hann ætti bara að vera þakklátur fyrir að einhver vildi
smíða þetta fyrir okkur og það á tilsettum tíma.
Björt og brosandi var ég farin að raða inn í skápa í huganum. Svo
kom að því að mennirnir frá trésmiðjunni vildu endilega mæla upp teikn-
ingarnar svo þetta yrði allt upp á tíu þegar innréttingin mætti á svæðið
um miðjan júní. Sælan varði þó ekki lengi.
Tveimur dögum áður en innréttingin átti að koma í hús barst tölvu-
póstur um að innréttingin væri ekki tilbúin en þær gætu hugsanlega byrj-
að að smíða hana eftir tvo mánuði.
Ég hef alltaf svo mikla trú á fólki og er svo góðu vön að það hvarflaði
ekki að mér að innréttingafyrirtækið myndi svíkja mig. Í stað þess að
halda áfram að svekkja mig á þessu ákvað ég að slaufa pöntuninni og
finna aðra lausn.
Næstu kvöld lá ég andvaka að hugsa hvað við gætum gert í staðinn.
Skyndilega mundi ég eftir því að í bílskúrnum ættum við forláta pales-
ander-skáp sem hugsanlega gæti komið í staðinn fyrir sérsmíðuðu hill-
urnar. Fyrrnefndur skápur er handsmíðaður í Danmörku og mikil völd-
unarsmíði.
Næsta skref var að hringja í smiði sem ég þekki og svíkja mig aldrei.
Stuttu síðar voru litlu meistararnir mættir á svæðið og um hálftíma síðar
var skápurinn kominn upp á vegg. Einhvern veginn smellpassaði hann
og var í raun miklu betri lausn en sú sem ég hafði séð fyrir mér áður. Í
skápinn má raða bollum og diskum, skrautmun-
um eða nota sem bókahillur.
Á hverjum morgni hugsa ég hlýlega til
tengdaföður míns sem erfði skápinn eftir
móður sína. Á meðan efri hlutinn af þess-
um palesander-skáp lifir góðu lífi í eldhús-
inu er neðri hlutinn á ganginum þar sem
hann gegnir lykilhlutverki sem hirsla og
hleðslustöð fyrir raftækin sem trufla til-
veru nútímafólks eins og okkar.
Það sem ég lærði af þessu er að
það þarf ekki alltaf að sækja vatn-
ið yfir lækinn því stundum blasir
lausnin við þegar við neyðumst til að
hugsa!
Svikin loforð
MartaMaría
Jónasdóttir
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima?
„Það er við eldhúsborðið heima með kaffibolla, sér-
staklega um helgar.“
Áttu þér uppáhaldshúsgagn?
„Við eigum lítinn hægindastól sem við keyptum þegar við
bjuggum í London og vorum með pínulitla stofu.
Þar var mjög lítið pláss og umfang stólsins
í samræmi við það. Í dag er stóllinn
inni í herbergi dóttur minnar og nýt-
ist í kvöldlesturinn fyrir hana.“
Hvers virði er að eiga sína eign
sjálfur?
„Aðalmálið er húsnæðisöryggi og
viðráðanlegur húsnæðiskostn-
aður. Á Íslandi er mjög erfiður
leigumarkaður, þar sem erfitt hef-
ur verið fyrir fólk að treysta á lang-
tímaleigu á hóflegu verði. Því er
ekki skrítið að mjög margir vilji
eiga sína eigin eign. En það
þarf ekki að vera þannig. Víða,
sem dæmi í Þýskalandi, er um
helmingur af markaðnum leigu-
húsnæði. Þar skiptir mestu
máli öryggið og heilbrigður
rammi í kringum mark-
aðinn.“
Ættu allir Íslendingar að
geta keypt sér íbúð?
„Allir Íslendingar ættu
að geta treyst á öruggt
húsnæði á viðráðanlegu
verði. Það eru mannrétt-
indi að hafa þak yfir höfuð
sér, og það getur verið í
formi leigu eða eignar. Það er
mjög mikilvægt að stutt sé betur
við uppbyggingu leigumarkaðs
sem býður upp á hóflega leigu og
öryggi. Það getur hentað fólki á
mismunandi tímum í lífinu, sumir
myndu alltaf vilja leigja, en fyrir
ungt fólk er það líka lykilatriði að geta verið í leigu-
húsnæði á fyrstu árunum sínum sem gerir því kleift að
spara meira fyrir innborgun í eign.“
Hvernig lýsir þú þínum persónulega stíl?
„Við erum með talsvert af einfaldri skandinavískri hönnun
heima, en höfum frekar lagt upp með að vera með áhrifa-
rík listaverk, nær allt ungt fólk sem hefur verið að stíga
sín fyrstu skref á listasviðinu. Bæði eru þetta áhugaverð-
ari verk að mínu mati, en eins finnst mér mikilvægt að
styðja við unga og núlifandi listamenn.“
Býrðu í draumahúsinu þínu?
„Já, vonandi þarf ég aldrei að flytja aftur. Við fluttum mjög
oft milli leiguíbúða þegar við bjuggum erlendis. Við flutt-
um í parhús í fyrra, þar sem fyrri eigendur höfðu haldið
upphaflegri hönnun mjög vel við. Húsið er byggt árið 1967
og er mjög hlýlegt. Þar er stór stofa og stórt alrými en lítil
herbergi sem er nákvæmlega það sem hentar okkur. Við
fjölskyldan erum svo lítið í herbergjunum okkar.“
Hver er uppáhaldslistamálarinn þinn?
„Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir er einstaklega hæfi-
leikaríkur listamaður að mínu mati.“
Hvaða snjallforrit notar þú mest?
„Það er dagatalið mitt. Áður en ég fór í kosn-
ingabaráttu var ég aldrei á samfélagsmiðlum
og lagði alltaf frá mér símann eftir níu á
kvöldin. Þetta hefur breyst tímabundið við-
urkenni ég.“
Hvort ertu meira fyrir bað eða sturtu?
„Ég fer alltaf í sturtu, en er mjög ánægð að
við erum með baðkarið á meðan dótt-
ir okkar er lítil. Það er notað á
hverju kvöldi.“
Ef þú réðir öllu í landinu,
hverju myndirðu breyta
þegar kemur að heim-
ilum Íslendinga?
„Ég myndi vilja fjölga
litríkum húsum á land-
inu – og panelleggja
fleiri loft og veggi.“
Hver er tilgangur lífsins?
„Samverustundir með fjöl-
skyldu.“
Hver er uppáhaldsliturinn þinn á
veggjum á heimilinu?
„Við erum bara með hvíta málaða veggi heima.
Það er líka viðarpanell í loftinu hjá okkur og á
þó nokkrum veggjum í stofunum sem þýðir að
það er ekki mikið pláss fyrir litagleði. Síðan er nóg
af litum í listaverkunum.“
Hvernig dekrar þú við þig heima?
„Með því að hangsa um helgar. Bestu helgarnar eru þær
sem eru algjörlega óskipulagðar, morgunmaturinn tekinn
á þremur klukkutímum, göngutúr og afslöppun með fjöl-
skyldunni.“
Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn?
„Ég er mjög hrifin af danskri húsgagnahönnun. Finn Juhl
hannaði ótrúlega falleg húsgögn á sínum tíma, einföld og
tímalaus. Ótrúlegt handverk og húsgögn sem eiga að ganga
á milli kynslóða enda rándýr – líftíminn skiptir þó máli.“
Hvort er betra að elda eða ganga frá?
„Elda, það er klárt mál.“
Hvers hlakkar þú til?
„Ég er bara full tilhlökkunar að fá að taka þátt í sam-
félagsþjónustu í auknum mæli í gegnum þingstörf! Það
hefur verið ótrúlega gefandi að stíga inn á hið pólitíska
svið á síðustu mánuðum. Ég ætla þó að gera mitt allra
besta að raska heimilislífinu mínu ekki um of. Fjölskyldan
mín er í fyrsta sæti – ég vinn í kringum þau. Ég er mjög
meðvituð um það núna þegar ég breyti um gír.“
„Vonandi þarf ég
aldrei að flytja aftur“
Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, er hagfræðingur að
mennt sem hefur unnið við efnahagsgreiningar undanfarin ár í Bandaríkjunum og Lond-
on. Hún fékk nóg af því að flytja á milli leiguíbúða þegar hún bjó erlendis á sínum tíma.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Kristrún er hrifin af
danskri húsgagna-
hönnun, þá sér í
lagi húsgögnum
eftir Finn Juhl.
Kristrún Frostadóttir
flutti mikið þegar hún
bjó erlendis. Hún býr
nú á góðum stað og á
notalegt heimili sem
hún vonar að geta
búið í lengi.
Ljósmynd/
Finn Juhl.com
Bestu helgarnar eru
þegar morgunmaturinn
er tekinn á þremur
klukkustundum.
Jóhanna Kristbjörg Sigurðar-
dóttir er í uppáhaldi hjá henni.
Hún fer oftast í
sturtu sjálf en er
ánægð með
baðið líka.
Ljósmynd/
Colourbox
Ef Kristrún réði
öllu í landinu þá
væri hún til í að
fjölga litríkum
húsum í landinu.
Ljósmynd/
Colourbox
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal
elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndin
er frá Minarc.