Morgunblaðið - 24.09.2021, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
E
ldhúsið er hannað í lok 2019 í nánu
samstarfi við eiganda hússins sem
ég þekkti fyrir. Eldhúsið sem var í
húsinu var komið til ára sinna, úr
dökkum við í lokuðu rými og ekki
endilega hentugt fyrir núverandi eiganda.
Við vorum samt ekki alveg sammála í upp-
hafi hvort eða hvernig eldhúsið ætti að vera.
Ég vildi opna eldhúsið inn í borðstofu og
stofu og tengja þannig rýmið betur við önnur
rými hússins en eigandinn var ekki alveg viss
með það. Í mínum augum er húsið ein-
staklega vel hannað hús frá áttunda áratugn-
um með opnum rýmum, stórum gluggum og
bjart. Þáverandi eldhús var ekki í tengslum
við önnur rými eins og títt var í hönnun húsa
áður fyrr, þar sem húsmóðirin átti sér sama-
stað í eldhúsinu. Í nútímasamfélagi er eld-
húsið samverustaður fjölskyldu og vina, enda
algengt að fólk vinni mikið og tími samver-
stunda sé af skornum skammti. Því er að
mínu mati mikilvægt að geta safnast saman
yfir matargerðinni, farið yfir daginn, gert
heimalærdóminn og svo framvegis meðan á
matargerð stendur,“ segir Sigríður.
Sigríður segir að eigandi hússins hafi ekki
viljað hvítt nýtískulegt eldhús.
„Eigandinn var mjög opinn fyrir að gera
eitthvað skemmtilegt en á sama tíma með
skýra sýn á hvað hún vildi og vildi ekki. Við
fórum í gegnum alls kyns hugmyndir og
margar ansi skemmtilegar og litríkar, en
módern hvítt eldhús var ekki á óskalistanum.
Morgunblaðið/Eggert
Arkitektinn Sigríður Arngrímsdóttir á heiðurinn af eldhúsi nokkru á höf-
uðborgarsvæðinu. Hún og eigandi eldhússins tókust svolítið á áður en
hönnunarferlið byrjaði. Eigandinn vildi alls ekki hvítt nýtískulegt eldhús.
MartaMaría | mm@mbl.is
Skipulagið á eldhúsinu er
gott. Stór eyja gegnir lyk-
ilhlutverki. Stólarnir voru
keyptir í Willamia. Þeir eru
með brass-fótum eins og
bakið á eyjunni.
Vildi alls ekki
hvítt nýtísku-
legt eldhús
5 SJÁ SÍÐU 8
Sigríður Arngríms-
dóttir arkitekt hann-
aði eldhúsið fyrir
viðskiptavin sinn.
Innréttingin er úr
IKEA en borðplatan
er í rauninni stór flís
úr Álfaborg. Takið
eftir brasskantinum
í kringum innrétt-
inguna? Hann setur
mikinn svip.