Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 14
S igrún er líf- og umhverfisfræð- ingur sem hefur lengst af unnið við kennslu, náttúruvernd og um- hverfismennt. Síðustu 13 árin hafa þó nær eingöngu farið í rit- störf. „Ég var að ljúka við ævisögu Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings og söngva- skálds; „Sigurður Þórarinsson. Mynd af manni.“ Hann fæddist árið 1912 og lést árið 1983. Á meðan hann lifði vissi öll þjóðin hver hann var en hann er mörgum gleymdur nú. Ævisagan er tveggja binda verk, 800 síður með 700 myndum og kemur von- andi út í næstu eða þar- næstu viku.“ Byggðu húsið fyrir 35 árum Sigrún býr í fallegu húsi sem þau fjölskyldan byggðu fyrir 35 árum. „Húsið var á mörkum Reykjavíkur í Selásnum og úr gluggum þess útsýni í allar áttir. Nú hefur mikið verið byggt hér í kring en við erum engu að síður á mörkum borgar og heiða- landa sem er dýrmætt og reyndar ákaflega óvenjulegt í veröldinni. Flest- ar borgir eru umluktar landbún- aðarlandi. En ef ég ætti að lýsa heimilinu mínu þá er það fyrst og fremst notalegt.“ Alin upp af fólki sem féll aldrei verk úr hendi Hvað getur þú sagt mér um áhuga þinn á íslensku handverki? „Ég er alin upp hjá fólki sem aldrei féll verk úr hendi. Fóstra mín saumaði og prjón- aði, ekki bara föt og hagnýta hluti heldur líka alls kyns veggteppi, púða, áklæði á stóla og margt fleira. Karólína Guðmundsdóttir vefnaðarkona var systir fóstra míns en hún útbjó og seldi alls kyns munstur og óf java til útsaums og gaukaði oft að mér efni til slíks. Hún var mikil listakona og brautryðj- andi eins og sjá má á sýningunni um hana sem nú hefur verið sett upp á Árbæj- arsafni.“ Hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands hefur orðið vart mikils áhuga fólks á útsaumi eins 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Rafhitun Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element), hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar og flest annað til rafhitunar. Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki sem hafa sannað sig með áralangri reynslu. Rafhitarar fyrir heita potta Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is íslensk framleiðsla í 25 ár Hiti í bústaðinn og krosssaumi sem var mjög vinsæll um miðja síðustu öld. Inni á heimili Sigrúnar eru tveir fallegir púðar frá þeim. „Það er lítið að hafa í búðum af munstrum og efnum í púða. Sú hugmynd kviknaði í sambandi við sýninguna á Árbæjarsafni um Karólínu vefara að velja nokkur af hennar munstrum og útbúa pakkningar með efni og garni í ákveðið munstur. Fólk gæti þá auð- veldlega saumað litla mynd sem síðan mætti ramma inn eða setja í púða eða tösku. Þetta er sýnishorn af tveim slíkum púð- um. Hægt er að fá miklu fleiri munstur og liti en pakkningarnar eru til sölu hjá Heim- ilisiðnaðarfélaginu í Nethyl 2, á Árbæj- arsafni og víðar.“ Heimilið er griðastaður Áttu þér uppáhaldsstað heima? „Húsið mitt er ákaflega opið, lítið um af- markaða staði. Hvaða staður er í uppáhaldi fer eftir því hvað ég er að gera hverju sinni.“ Sigrún segir gott að vera í umhverfi sem vekur virðingu fyrir náttúrunni. „Það er líka gott að vera innan um hluti sem lög hefur verið hugsun í og vinna, vand- virkni og natni. Þess vegna er gott að hafa í kringum sig góðar bækur, listmuni og fal- legt handverk og að borða vel útbúinn mat.“ Tvö af þeim krosssaumsmunstrum sem unnin hafa verið eftir göml- um munstrum frá Vefstofu Karólínu Guðmundsdóttur og sett í sér- stakar sölupakkningar. Hér hafa myndirnar verið settar í púða. „Húsiðmitt er ákaflega opið“ Sigrún Helgadóttir býr í fal- legu húsi sem er fullt af fegurð og spennandi hand- verki. Sjálf er hún alin upp af fólki sem féll aldrei verk úr hendi og þar sem handverk spilaði stórt hlutverk. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ýmiss konar kross- saumur, áklæði á stóla, púðar og dúkar. Gluggatjöld hekluð úr hör. Sigrún Helgadóttir. Á bak við hana er veggteppi unnið með góbelín- saumi í ullarjava frá Vefstofu Karól- ínu Guðmundsdóttur. Svipuð teppi voru oft hengd ofan við legubekki. Morgunblaðið/Eggert Krosssaumuð stól- seta. Munstrið er úr Sjónabókinni, bók með gömlum íslensk- um munstrum sem kom út fyrir nokkrum árum. Setan er saum- uð úr garnafgöngum. Seta á antíkstól handofin af Karólínu Guðmundsdóttur. Útsaumaður bekk- ur í gluggatjöldum úr ullarjava. Sigrún útskýrir þá ná- kvæmnisvinnu að vefa ullarjava svo jafnt að hægt sé að sauma í hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.