Morgunblaðið - 24.09.2021, Page 20
mína til að velja liti fyrir mig. Hún er snillingur í að velja
liti og gaf mér líka ýmis góð ráð.“
Eldhúsið er hjartað í íbúðinni
Eldhúsið er opið og skemmtilegt og er borðkrókurinn
einn af hennar uppáhaldsstöðum.
„Bekkurinn í borðkróknum er eins og sérsmíðaður í
rýmið þrátt fyrir að þetta séu einingar sem er raðað
saman. Mér finnst mjög gott að sitja undir eldhúsglugg-
anum og fá mér kaffi og njóta þess að horfa á Hallgríms-
kirkju eða fallegt sólarlag. Svo er líka gott að nota borðið
til að vinna eða fyrir börnin til að læra við, því það er
hægt að breiða vel úr sér þarna. Það var búið að gera
eldhúsið upp þegar ég flutti en ég bætti við langri hillu
fyrir ofan innréttinguna sem mér finnst gefa hlýleika og
gera heimilislegt.“
Gluggarnir eru bjartir og draga umhverfið inn.
„Ég féll alveg fyrir stóra glugganum í stofunni og
hversu vel hann dregur fram lofthæðina og gefur
skemmtilega birtu. Mér finnst stundum eins og ég búi í
gróðurhúsi þar sem útsýnið úr gluggunum eru falleg
laufmikil tré og plönturnar inni eru eins framhald af
þeim. Birtan skiptir mig miklu máli og mér finnst lítil
þörf fyrir gardínur.“
Borðkrókurinn í eldhúsinu er uppáhaldsstaðurinn fyr-
ir kaffibollann á morgnana en brúni leðurstóllinn í stof-
unni keppir við krókinn þegar kemur að vinsældum, sér í
lagi þegar tími er fyrir lestur.
„Svo er sjónvarpskrókurinn mjög huggulegur með
góðri mynd.“
Listaverk í alls konar formum
Ertu mikið fyrir að vera heima og skipuleggja þar? Að
elda góðan mat og fleira í þeim dúr?
„Ég er mikið heima við núna þar sem ég vinn að hluta
til heima þegar ég er ekki að vinna fyrir Woman Political
Leaders sem eru með skrifstofu á Vinnustofu Kjarvals.
Ég hef mjög gaman að því að fá fólk í mat og elda mikið
fyrir fjölskyldu og vini. Ég elska að búa til góðar stundir
og íbúðin hentar svo sannarlega til þess. Auk þess elska
ég hvað er stutt í margt sem skiptir mig máli. Sem dæmi
útivist í Öskjuhlíð og sjósund í Nauthólsvík. Svo geng ég
með hundinn á Klambratúni og fæ mér kaffi á Kjarvals-
stöðum. Ég dýfi mér í sund í Sundhöllinni eða í Vest-
urbæjarlauginni og svo kann ég auðvitað að meta að geta
gengið eða hjólað í miðbæinn. Þar sem ég nýt þess að
fara út að borða eða að sækja menningarviðburði.“
Hvaðan eru húsgögnin þín og innréttingar?
„Húsgögnin eru héðan og þaðan og eru bæði gömul og
ný. Sófinn í stofunni er Erik Jörgensen EJ220 2 úr Epal
og sófaborðið er líka úr Epal. Ég er einnig með Wave-
stólana úr Casa í stofunni. Bekkurinn í borðkróknum er
nýr og var keyptur í þetta rými en hann er úr Fakó og
stólarnir í eldhúsinu eru Vitra Eames úr Pennanum.
Borðstofuborðið er úr Tekk/Habitat og hefur fylgt mér
lengi. Svo kemur IKEA líka sterkt inn með annað. Ég
hef gaman af fallegum ljósum og lömpum og er með Lou-
is Poulsen standlampa sem ég held mikið upp á auk þess
sem ég er meðal annars með lampa og nokkur ljós frá
Heimili og hugmyndum og Habitat.“
Bækur ramma inn heimaskrifstofuna
Hún segir brúna leðurstólinn í stofunni í sérstöku
uppáhaldi hjá Hentu sem er heimilishundurinn af wip-
pet-tegund.
Hvað með myndlistina á heimilinu?
„Ég hef mikinn áhuga á myndlist og á nokkur verk
sem mér þykir afar vænt um. Mér finnst falleg myndlist
gefa heimilinu persónuleika. Bækur eru líka ómissandi
hluti af heimilinu og ramma inn litlu heimaskrifstofuna
mína.“
Halldóra er að vinna í allskonar „giggum“ en það er
nýtt orð yfir verktaka og sjálfstætt starfandi sem Árelía
Eydís Guðmundsdóttir og Herdís Pála Pálsdóttir hafa
verið duglegar að kynna meðal annars í nýútkominni bók
sinni sem heitir Völundarhús tækifæranna.
„Þær lýsa „giggi“ sem afmörkuðu tímasettu verkefni
sem hefur verið skilgreint og hefur upphaf og endi.
Þannig að „giggari“ er kannski eitthvað sem hefur verið
til mjög lengi en við höfum kallað það annað. Þessa dag-
ana er ég með nokkur „gigg“ en ég hef verið að vinna
stefnumótun fyrir mjög áhugavert fyrirtæki ásamt því
að vera verkefnastjóri á Íslandi fyrir Heimsþing kven-
leiðtoga í Hörpu í nóvember fyrir Woman Political Lead-
ers. Svo kenni ég meistaranemum á Bifröst verk-
efnastjórnun.“
Halldóra Vífils-
dóttir hjálpaði
húsráðanda við
val á litum.
Hundurinn Hneta veit um alla bestu
staðina að hvíla sig á.
Bækurnar
ramma inn
skrifstofuna í
stofunni.
Bekkurinn í borð-
króknum er nýr og
var keyptur inn í rým-
ið. Hann er úr Fakó.
Kaffivélin í bland við ristina og
listmálaða bollana.
Það er eitthvað við að
hafa lampa í eldhúsinu sem
gerir það hlýlegt.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sófinn í stofunni er Erik Jörgensen
EJ220 2 úr Epal.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021