Morgunblaðið - 24.09.2021, Side 32

Morgunblaðið - 24.09.2021, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Það er eitthvað við dökka svefn- herbergisveggi sem heillar. Rúmteppi og púðar voru keypt í New York. Ragna Sif segir að hún sé smá draslari og að hún elski að gramsa í gömlum hlutum. „Borðstofustólarnir eru IKEA, en ég hef ekki fundið aðra sem ég elska nógu mikið til að safna fyrir eða splæsa í. Ég er smá draslari og elska að gramsa í gömlu og gefa nýjan tilgang. Sófaborðið er til dæmis gömul marmaraplata sem ég fann upp við vegg bak við einhverja skápa í Samhjálp fyrir tíu til tólf ár- um. Hún hafði auðsjáanlega verið úti lengstan tíma af sínu lífi en ég elskaði það. Undir henni eru svo bara tveir beykikubbar úr Bauhaus sem ég málaði svarta. Eins er gamalt borðstofu- borð frá ömmu minni í föðurætt svo með nýtt hlutverk sem skrifborð inni í stofu en ég vinn mikið þar og maðurinn minn líka og þá sérstaklega í þessu kórónuveiru-ástandi.“ Listaverkin á veggjum heimilisins eru alls konar. „Listin á veggjunum eru bara allskonar bland. Sumt er gamalt sem við höfum erft, annað er bara eitthvað sem mér finnst fallegt og skemmtilegt úr sem dæmi Góða hirðinum. Við erum einnig með ljósmyndir eftir mig sjálfa upp á vegg og sitthvað sem við keyptum á sínum tíma í New York. Við höld- um mikið upp á verk sem við keyptum einmitt þar eftir Nik- olai Makarov. Við keyptum það á frekar stórum tímamótum þar sem við vorum aðeins að uppskera eftir þrotlausa vinnu- törn í nokkur ár.“ Fossvogurinn hefur verið framhald af heimilinu í faraldr- inum Ragna Sif er einnig mjög hrifin af gömlum ljósum sem hún hefur ferðast með víða að úr heiminum. „Ég hef burðast með alls konar krónur og lampa heim við mismiklar vinsældir, en sumt fæst samþykkt á endanum þótt ég þurfi nú stundum aðeins að selja hugmyndina. Ég hef oft sagt að allt ljótt sé fallegt, maður þurfi bara að sjá það. Ég hef þessa þörf fyrir að blanda alls kyns efnum og lögum en fæ svo líka þörf fyrir að hreinsa eitt og annað smálegt út inn á milli. Það er alveg eitthvað til í þessu „less is more“ þótt það sjáist kannski ekki alltaf hjá mér.“ Ertu mikið heima hjá þér? „Já við erum mikið heima, enda finnst mér við bara svaka- lega lánsöm að eiga gott heimili þar sem við njótum þess að elda góðan mat og hafa huggulegt. Ég elska samt líka að fara út og hitta vini og fjölskyldu. Að ferðast og njóta náttúrunnar en þá er líka alltaf gott að koma heim aftur.“ Hvað gerir hús að góðu heimili? „Persónulegt og frjálslegt innbú og bara það sem hentar hverjum og einum að hafa í kringum sig er málið að mínu áliti. Það sem höfðar til manns og eitthvað sem tekur utan um mann, sem er ekki of stíft og að heimilið þoli venjulegan um- gang og ágang. Hlutir verða að mega rispast og að það sjái á einhverju er bara skemmtilegt. Samt reynir maður alltaf að ganga um af virðingu og fara vel með. Svo er það svo dýrmætt að geta lok- að að sér og að slaka á eftir daginn og geta notið þess líka að bjóða gestum í mat og að öllum líði þá vel.“ Hvað hefur kórónuveirutíminn kennt þér þegar kemur að heimilinu? „Aðallega að það er gott að geta unnið heima og haft pláss til þess í góðu umhverfi. Ég kann svo vel að meta nálægð heimilisins við sjóinn, en hér á Kársnesinu er frábært að búa og Fossvogurinn sem við erum svo nálægt er síbreytilegur og hefur verið framhald af heimilinu í faraldrinum.“ Á stigaganginum má sjá stóra ljós- mynd eftir Rögnu Sif. Verk eftir hana ná finna á vefnum ragnasif.is. Bleikur veggur gerir mikið fyrir stofuna. Það geta fundist miklar ger- semar á mörkuðum ef marka má það sem Ragna Sif finnur víða. Þetta lista- verk er keypt á Bland. „Ég hef burðast með alls konar krónur og lampa heim við mismiklar vin- sældir, en sumt fæst sam- þykkt á endanum þótt ég þurfi nú stundum aðeins að selja hugmyndina“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.