Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 46

Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Raðaðu saman þínum skáp Framleitt í eik nat, hvítaðri eik og svertuð eik S elma Rut er um þessar mundir í endurhæfingu vegna langvinnra veikinda. Eins og heimilið hennar ber með sér er hún með brennandi áhuga á öllu innanhúss, hvort sem það er hönnun, stílisering eða fallegir hlutir með sál. „Ég elska líka að gefa gömlum hlutum nýtt líf og má segja að það sé sameiginlegt áhuga- mál okkar hjóna að taka hluti í gegn; breyta og bæta.“ Þegar yngsta barn þeirra hjóna fæddist ár- ið 2016 ákváðu þau að stækka við sig. „Við tókum þá ákvörðun að henda okkur út í djúpu laugina og byggja okkur hús frá grunni. Það hefur þó tekið töluvert lengri tíma en við lögðum upp með. Við bjuggum hjá for- eldrum mínum í 17 mánuði og svo í bíl- skúrnum í að verða ár á meðan húsið var klárað að innan. Við erum þó ekki búin enn þá og erum að leggja lokahönd á pall í kringum húsið áður en það verður ráðist í að gera þakkant.“ Barnaherbergin eru ástríðan Selma Rut er mikið fyrir ljósa tóna og liti og vil hafa bjarta í kringum sig. „Ég myndi segja að besta ákvörðunin í eldhúsinu væri stór og rúmgóð eyja í opnu rými og tveir bakaraofnar,“ segir hún. Þeg- ar hún er spurð út í fallegu barnaherbergin í húsinu játar hún að henni finnist mjög gam- an að gera fallegt í kringum börnin sín. „Við ákváðum inni hjá syni okkar að smíða í kringum rúmið og lakka í sama lit og veggirnir þannig að við gætum komið í veg fyrir að Legókubbar og annað smádót væri alltaf að detta upp fyrir. Gaflarnir eru renningar sagaðir úr kross- við, pússaðir og bæsaðir. Hjá yngstu dótturinni er bleikt alls- ráðandi enda er það uppáhaldslitur döm- unar. Við notuðum gamlan sjónvarpsskáp „Ég elska falleg barna- herbergi“ Selma Rut Ingvarsdóttir býr í Mosfellsbænum í fallegu húsi sem þau fjölskyldan eru að gera upp. Barnaherbergin eru einstaklega vel heppnuð, enda veit Selma Rut fátt skemmtilegra en að gera fallegt í kringum börnin sín. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Svarthvítu fjölskyldumyndirnar setja svip sinn á sjónvarps- herbergið. Selma Rut er gift þriggja barna móðir sem býr í fal- legu húsi sem er stöðugt að taka breytingum. Ljósir tónar eru ríkjandi á heimilinu. Hér má sjá skáp úr IKEA í góðum félagsskap eldri stóls.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.