Víkurfréttir - 01.09.2021, Qupperneq 2
Óska samráðs vegna
framtíðarskipulags
í Helguvík
Nýjasta deiliskipulag fyrir iðn-
aðarsvæðið í Helguvík er frá
árinu 2015 og miðast við þá
iðnaðaruppbygginu sem fyrir-
huguð var á svæðin. Breyting
hefur orðið á fyrirhugaðri upp-
byggingu á iðnaðarsvæðinu í
Helguvík og það lóðaskipulag
sem er í núverandi deiliskipulagi
hentar misjafnlega því tengdu.
„Hluti iðnaðarsvæðisins í
Helguvík er á forræði Reykjanes-
hafnar og er lagt til að samráðs
verði óskað við Reykjanesbæ var-
andi framtíðarskipulag svæðisins.
Hafnarstjóra og formanni stjórnar
er falið að hafa samband við
skipulagsyfirvöld Reykjanesbæjar
og óska eftir viðræðum um fram-
tíðarskipulag svæðisins,“ segir í
samhljóða samþykkt stjórnar
Reykjaneshafnar.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Mundi
Gosævintýrið gerir menn sjúka,
í Grindavík gestirnir húka.
Komnir í keng,
kvíðnir í spreng
því í Kvikunni kostar að kúka.
Aðkoma frá þjóðvegi að athafnasvæði
við Njarðvíkurhöfn verði skoðuð
Stjórn Reykjaneshafnar segir að við
yfirferð á aðalskipulagi Reykjanes-
bæjar, sem nú er í endurskoðunar-
ferli, hafi vaknað spurningar um
aðkomu frá þjóðvegi að atvinnu- og
hafnarstarfsemi við Njarðvíkurhöfn.
„Stjórn Reykjaneshafnar hefur
yfirfarið vinnslutillögu aðalskipulags
er varða svæði sem tilheyra atvinnu-
og hafnarstarfsemi Reykjaneshafnar.
Við þá yfirferð hafa vaknað spurn-
ingar, sérstaklega er varðar aðkomu
frá þjóðveg að atvinnu- og hafnar-
starfsemi við Njarðvíkurhöfn. Stjórn
Reykjaneshafnar felur hafnarstjóra
og formanni stjórnar að koma við-
komandi athugasemdum á framfæri
við skipulagsyfirvöld Reykjanes-
bæjar,“ segir í afgreiðslu stjórnar-
innar sem var samþykkt samhljóða.
Vonandi aðeins upphafið að meiri
umferð slíkra skipa til Keflavíkurhafnar
Reykjaneshöfn hefur síðast-
liðið ár, í samstarfi við Markaðs-
stofu Reykjanes og Reykjanesbæ,
unnið að komu smærri skemmti-
ferðaskipa til Suðurnesja og lagt
þar áherslu á að Keflavíkurhöfn
hentaði vel til móttöku slíkra skipa.
„Stjórn Reykjaneshafnar fagnar
því að það starf sem hófst á árinu
2019 við markaðssetningu m.a. á
Keflavíkurhöfn sem viðkomustað
smærri skemmtiferðaskipa virðist
vera að skila sér. Í ár hafa fjögur
skemmtiferðaskip komið á ytri
höfnina og nýtt sér þá aðstöðu í
Keflavíkurhöfn sem þjónustar létta-
báta varðandi losun og lestun far-
þega eða vöru.
Eitt skemmtiferðaskip lagðist
að hafnarkanti í Keflavíkurhöfn
þar sem farþegar voru sóttir af
ferðaþjónustuaðilum til skoðunar-
ferðar á Suðurnesjum. Er það von
stjórnar Reykjaneshafnar að þetta
sé aðeins upphafið að meiri umferð
slíkra skipa til Keflavíkurhafnar á
komandi árum,“ segir í afgreiðslu
stjórnar hafnarinnar sem samþykkt
var samhljóða á fundi þann 26. ágúst
síðastliðinn.
Taka gjald af
ferðamönnum
vegna salerna
Bæjarráð Grindavíkur hefur sam-
þykkt að taka gjald af ferðamönnum
vegna salerna í Kvikunni ef einungis
er nýtt sú aðstaða. Þetta var sam-
þykkt á síðasta fundi bæjarráðs en
sviðsstjóri frístunda- og menning-
arsviðs sat fundinn undir þessum
dagskrárlið. Honum hefur jafnframt
verið falið að útfæra málið.
Skemmtiferðaskipið National Geographic Endurance í höfn í Keflavík á dögunum. VF-mynd: Hilmar Bragi
Frá Ljósanótt 2019.
gert verði ráð fyrir samkomutakmörkunum
á ljósanótt á næsta ári
„Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar hvetur til
þess að strax verði farið að huga að undirbúningi Ljós-
anæturhátíðarinnar á næsta ári þar sem unnið verði að
útfærslum sem taki mið af því að við búum enn við sam-
komutakmarkanir. Þá mælir ráðið með að farið verði
í sérstaka stefnumótun fyrir hátíðina,“ segir i fundar-
gögnum síðasta fundar menningar- og atvinnuráðs.
Menningar- og atvinnuráð tekur undir sjónarmið stýri-
hóps Ljósanætur og taldi ekki gerlegt að halda Ljósanótt
dagana 2. til 5. september næstkomandi í ljósi þeirra sam-
komutakmarkana sem nú eru í gildi og útbreiðslu kórón-
uveirusmita. Ráðið telur mikilvægt að sveitarfélagið sýni
ábyrgð og stuðli ekki að óþarfa samsöfnun fólks á óvissu-
tímum og því var hátíðinni í ár aflýst.
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár