Víkurfréttir - 01.09.2021, Blaðsíða 8
Kjartan Már Kjartansson er með góða tilfinningu fyrir hausti og komandi vetri en hann
átti góðar stundir í sumarfríinu á landinu fagra en fór einnig til Tenerife í vor þar sem hann
fagnaði 60 ára afmæli sínu – og eins og við er að búast er mikið að gera hjá bæjarstjóranum
í Reykjanesbæ.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
„Undanfarin ár hef ég tekið
sumarfríið í nokkrum hlutum og
jafnvel tekið hluta að vetri. Í tilefni
af sextugsafmæli mínu í maí fórum
við hjónin til Tenerife eftir að hafa
verið bólusett og áttum þar frábæra
daga í golfi og sól. Þangað höfðum
við ekki komið áður. Í júlí áttum við
yndislega samveru með börnum,
tengdabörnum og barnabörnum í
sumarhúsi í Stykkishólmi. Eftir þá
dvöl héldum við hjónin svo í blíðuna
norður og spiluðum golf á Akureyri,
Dalvík og Sauðárkróki. Allt frábærir
vellir en ólíkir. Golfvöllur Dalvíkinga
er í Svarfaðardal og þangað hafði ég
ekki komið áður en á örugglega eftir
að koma aftur. Þvílík náttúrufegurð!
Auk þess fór ég í árlega veiði með
góðum vinum og hef mjög gaman af
því.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Það sem kom skemmtilega á
óvart var hvað okkur gekk vel að
ferðast um á bíl sem gengur eingöngu
fyrir rafmagni. Þar munar mikið um
afkastamiklar 150kw rafhleðslu-
stöðvar sem verið er að koma upp
á víða, m.a. á hringveginum í Víði-
gerði í Vestur-Húnavatnssýslu. Svo
eru 50kw hleðslustöðvar að finna
víða, m.a. á Akureyri, Geysi, á Vega-
mótum á Snæfellsnesi, á nokkrum
stöðum á Suðurlandi og víðar. Upp-
bygging innviða fyrir rafmagnsbíla
gengur vel sem er afar ánægjulegt að
mínu mati.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Já, mér finnst mjög gaman að
heimsækja Snæfellsnesið. Náttúru-
fegurðin þar er engu lík. Þar búa
mágkona mín og svili og við heim-
sækjum þau af og til. Fyrir nokkrum
árum gekk ég á topp Snæfellsjökuls
og útsýnið þaðan er stórfenglegt. Þá
finnst okkur hjónum Akureyri og ná-
grenni smá „erlendis“ í góðu veðri.“
Hver er tilfinningin fyrir haustinu
og komandi vetri?
„Hún er bara fín. Það er margt
gott að gerast og bjartara yfir öllu
en t.d. fyrir ári síðan. Núna er unnið
að gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2022
og þriggja ára áætlunar fyrir 2023–
2025 og í tengslum við þá vinnu
öðlast maður góða yfirsýn yfir það
sem er að gerast og reynir að spá í
spilin eftir bestu getu. Það verður
vissulega áskorun að koma saman
raunhæfri áætlun með jákvæðri nið-
urstöðu því tekjur sveitarfélagsins
hafa dregist saman, í kjölfar mikils
atvinnuleysis, og margir útgjaldaliðir,
ekki síst laun, hækkað mikið. Íbúa-
fjölgunin heldur áfram þrátt fyrir
mesta atvinnuleysi Íslandssögunnar
og það kallar á margs konar upp-
byggingu. Samfélagið okkar er yngra
en mörg önnur og það kallar m.a. á
fjölgun leik- og grunnskóla. Það eru
því nokkrar stórar framkvæmdir í
gangi eða undirbúningi, s.s. áfram-
haldandi bygging Stapaskóla, þ.e.
íþróttahús og svo leikskóli. Fram-
kvæmdir við nýja heilsugæslustöð
í Innri-Njarðvík hefjast á næsta ári
sem og bygging nýs hjúkrunarheim-
ilis við Nesvelli og hugsanlega fleiri
verkefni. Þá eru ótalin fjölmörg verk-
efni á tengd flugvellinu, bæði NATO
og ISAVIA. Ég trúi því að ferðaþjón-
ustan og flugið haldi áfram að eflast
og að við verðum komin á gott ról
atvinnulega séð næsta sumar. Það
stendur til að halda framkvæmda-
þing í haust þar sem farið verður
nánar yfir þetta allt saman.“
Hver eru stærstu málin í þínu sveit-
arfélagi um þessar mundir?
„Atvinnumálin vega þungt. Einnig
er sagt um svona heimsfaraldra,
eins og við erum að upplifa núna, að
þeir skiptist í þrjár bylgjur. Fyrsta
bylgjan er faraldurinn sjálfur, önnur
bylgja eru efnahagslegar afleiðingar,
og þetta hvort tveggja höfum við
þegar fengið að reyna, en þriðja
og kannski alvarlegasta bylgjan
eru samfélagslegar afleiðingar sem
enginn veit hversu alvarlegar verða
eða vara lengi. Þar á ég við margs
konar áskoranir í félagsþjónustunni,
sálræna erfiðleika, heimilisofbeldi,
barnaverndarmál o.fl. Að búa okkur
undir þau verkefni er að mínu mati
mikilvægasta verkefnið um þessar
mundir.“
Ertu búinn að fara að gosinu í
Fagradalsfjalli nýlega og hvernig
meturðu stöðuna?
„Já, ég gekk að því ásamt vini
mínum fljótlega eftir að það hófst.
Ég hef ekki farið að því í sumar en
fékk þyrluflug yfir gosstöðvarnar í
afmælisgjöf frá börnum og barna-
börnum í maí og hver veit nema að
sú ferð verði farin fljótlega og þá
helst í ljósaskiptunum ef hægt er.
Það er mjög erfitt að meta stöðuna
þegar um náttúruhamfarir er að
ræða. Á meðan gosið ógnar ekki lífi
og heilsu erum við heppin. Ef fer
að gjósa víðar á Reykjanesinu gæti
staðan versnað.“
Hvernig myndir þú skipuleggja
góða dagsferð með gesti á Suður-
nesjum?
„Ég myndi fyrst taka rúnt um
Reykjanesbæ, heimsækja Rokksafnið
og DUUS Safnahús og fara þaðan í
Garð og Sandgerði. Síðan myndi ég
halda áfram um Hvalsnes og Stafnes
út í Hafnir, að Reykjanesvita og Vala-
hnúk, fara út á útsýnispallinn við
Brimketil og enda í Grindavík. Þaðan
lægi svo leiðin aftur til Reykjanes-
bæjar, hugsanlega með stoppi og
göngutúr í kringum Seltjörn. Að
loknum góðum degi myndi ég bjóða
gestunum að njóta kvöldverðar á
einhverjum af þeim góðu veitinga-
stöðum sem hér er að finna. Að
lokum myndi ég hvetja þau til að
gista hóteli og koma við í Vogum á
heimleiðinni daginn eftir og aka sem
leið liggur um Vatnsleysuströnd.“
Ef þú fengir tækifæri á að koma
með góð ráð til verðandi þing-
manna kjördæmisins, hver væru
þau?
„Að lofa ekki meiru en þeir geta
staðið við, eiga góð samskipti við
íbúa allt kjörtímabilið og leggjast á
árarnar með okkur, óháð stjórmála-
flokkum, í að efla margvíslega opin-
bera þjónustu ríkisins hér á Suður-
nesjum. Má þar nefna málaflokka
eins og atvinnumál, heilbrigðismál,
öldrunarmál, menntamál, löggæslu,
samgöngur og margt fleira.“
Nú er Ljósanótt ekki haldin, annað
árið í röð. Hvað viltu segja um það?
Ljósanótt hefur nú verið aflýst
tvö ár í röð vegna heimsfaraldurs
Covid19. Það var hvorki einföld né
skemmtileg ákvörðun að taka. Ljósa-
nótt hefur mismunandi þýðingu fyrir
fólk. Fyrir suma er hún fjölskyldu-
hátíð, fyrir aðra listahátíð og enn
aðrir bíða spenntir eftir tilboði versl-
anna, leiktækjum eða fornbílaakstri.
Allt er þetta rétt. Niðurstaðan varð
hins vegar sú að Ljósanótt stæði ekki
undir nafni nema með fjölmennum
viðburðum eins og Heimatónleikum,
Árgangagöngu, útitónleikum á stóra
sviðinu og flugeldasýningu. Án
þeirra væri þetta orðin önnur hátíð
og það var fólk ekki tilbúið að fallast
á. Það var búið að semja við hljóm-
sveitir og listamenn með fyrirvara
um að hætta þyrfti við innan ákveð-
inna tímamarka og því varð að taka
þessa óþægilegu ákvörðun á þessum
tímapunkti. Við vonum svo sannar-
lega að við náum að halda Ljósanótt
í fullri stærð árið 2022 en megum
ekki tapa gleðinni þangað til.
Listamenn munu í haust og á
komandi vetri standa fyrir alls konar
viðburðum, sýningum og tónleikum
sem ég vil hvetja bæjarbúa til að
sækja vel.“
Gekk vel að ferðast um
landið á rafmagnsbílnum
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ
er bjartsýnn og segir bjartara
yfir öllu en í fyrra
Kjartan Már og Jóna kona hans í
fríinu á Tenerife í vor. Á efri myndinni
eru þau með börnum sínum og
fjölskyldum á góðri stundu.
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár