Víkurfréttir - 01.09.2021, Qupperneq 13
Eysteinn Þór Kristinsson er nýráðinn skólastjóri Grunnskóla Grinda-
víkur en hann hefur alið manninn í Neskaupstað alla tíð. Er nú kominn
í „heitasta“ bæjarfélagið á landinu og segist hafa fengið mjög góðar
móttökur.
Hver er tilfinningin fyrir haustinu og
komandi vetri?
„Ég er bjartsýnsmaður að eðlisfari og vona
svo sannarlega að komandi skólaár verði
okkur gott. Ég hef fulla trú á að veturinn
verði mun uppbyggilegri og skemmtilegri
en sá síðasti og hvað þá vorönnin sem var
þar á undan.“
Hver eru stærstu málin í þínum skóla um
þessar mundir?
„Stærsta mál Grunnskóla Grindavíkur er
væntanlega nýbyggingarframkvæmdir þær
sem eiga sér stað við Hópsskóla. Við von-
umst til að taka nýtt húsnæði þar í notkun
fljótlega í byrjun nýs árs. Nýja húsnæðið
mun verða afar kærkomið fyrir aðstöðu
yngstu nemenda skólans og starfsfólk þess
stigs.“
Hilmar Egill Sveinbjörnsson, skólastjóri Stóru-Vogaskóla,
segir tilfinninguna fyrir haustinu og komandi vetri vera góða.
„Það eru mörg krefjandi verkefni framundan en ég held að
við öll sem komum að skólastarfi séum orðin meistarar í að
haga seglum eftir vindi hverju sinni. Ég hlakka til vetrarins
og veit að við tökumst á við hann af æðruleysi,“ segir Hilmar
í samtali við Víkurfréttir.
Hver eru stærstu málin í þínum
skóla um þessar mundir?
„Vellíðan nemenda og starfsmanna
sem eru búin að fara í gegnum tvo
erfiða Covid-vetur. Ég vona svo
hjartanlega að við getum haldið
skólastarfinu sem eðlilegustu þetta
skólaárið.“
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
„Eins og fleiri sem búa á SV-
horninu varði ég sumrinu á Aust-
urlandi. Átti indæla daga á tjald-
svæðinu í Atlavík og naut alls þess
besta sem þessi landshluti hefur
upp á að bjóða.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Þegar vinir mínir frá Costa Rica-
árunum boðuðu óvænt komu sína
til Íslands og við áttum frábærar
stundir eftir að hafa ekki sést í
sautján ár.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að
sækja heim innanlands?
„Mér finnst þetta land svo stórkost-
legt til ferðalaga að ég á erfitt með
að gera upp á milli – en ef ég á að
nefna einhvern uppáhaldslands-
hluta þá eru það Vestfirðir.“
Víkurfréttum lék forvitin á að vita
hvernig Hilmar Egill myndi skipu-
leggja góða dagsferð með gesti á
Suðurnesjum. Hann sagðist að
sjálfsögðu byrja á stuttu rölti í
Vogunum.
„Því næst færi ég á Garðskaga,
Stafnes, Hafnir, Reykjanestá og
Grindavík með öllum þeim flottu
stoppum sem eru á leiðinni. Ég
tæki með nesti fyrir hádegismatinn
og endaði svo í mat hjá honum
Þormari vini mínum á Papas í
Grindavík, enda frábær staður fyrir
svanga ferðalanga.“
„Sumarfrí skólastjóra er vanalega ekki langt né samfellt en
dögunum sem ég gat tekið frí var vel varið. Ég fór í maí í dá-
samlegum hópi kvenna að gosstöðvum sem var áhrifaríkt. Í
sumar útskrifaðist tengdasonur minn, Jón Ágúst, með tvær
BS gráður frá HR og sonur minn, Þröstur, ásamt kærustunni
sinni, Írisi Ósk, útskrifuðust frá bandarískum háskóla með BS
gráður. Það voru því veisluhöld í kringum það,“ segir Sigur-
björg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla í Reykjanesbæ,
þegar Víkurfréttir spurðu hana út í sumarfríið.
„Ég fór talsvert í golf í sumar og
dagsferð á völlinn í Öndverðar-
nesi með góðum æskuvinkonum á
besta degi sumarsins stóð klárlega
upp úr. Svo fékk ég að verja góðum
tíma með barnabarninu mínu, Baldri
Loga, þegar foreldrarnir, Sóley og
Jón, fóru til Hollands að undirbúa
flutning þangað.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Ég held að fertugafmælisveisla
Hildar Bjarneyjar frænku hafi komið
mest á óvart. Eftir langan tíma án
partýstands voru allir svo tilbúnir
að skemmta sér. Mikið fjör.“
Golfvöllurinn í Öndverðar-
nesi uppáhaldsstaðurinn
Golfvöllurinn í Öndverðarnesi er
uppáhaldsstaður Sigurbjargar innan-
lands. „Við erum með sumarbústað
í nágrenni hans og förum oft og
spilum golf þar. Svo er alltaf fallegt
að spila á Kiðjabergi.“
Aðspurð hvernig Sigurbjörg myndi
skipuleggja góða dagsferð með gesti
á Suðurnesjum, sagði hún: „Það er
svo margt spennandi á Suðurnesjum
og Reykjanesbæ. Sígilda svarið var
Garðskagi og Bláa lónið en mér
finnst göngustígar Reykjanesbæjar
líka mjög heillandi. Sérstaklega nýja
leiðin í Grænásnum. Hún er mjög
skemmtileg.“
Hver er tilfinningin fyrir haustinu
og komandi vetri?
„Tilfinningarnar eru mjög blendnar
gagnvart haustinu. Þegar maður
starfar í þessu umhverfi sem skólinn
er þá hefur heimsfaraldur mjög mikil
áhrif og á mjög marga þegar upp
koma smit. Haustið hefur því miður
ekki farið vel af stað en við vonum
það besta en erum undirbúin undir
að þurfa að bregðast við, hratt og
örugglega.“
Hver eru stærstu málin í þínum
skóla um þessar mundir?
„Það eru mörg verkefnin í skól-
anum mínum og sem betur fer eru
þau flest skemmtileg. Við erum að
stofna nýtt námsúrræði fyrir nem-
endur í Reykjanesbæ, Lindina, sem
er skemmtilegt verkefni. Við erum
svo að vinna stór verkefni tengd læsi
og námsárangri sem verður gaman
að taka þátt í og fylgjast með. Það
er skrýtin staða að vera í skóla þar
sem nemendum fækkar en það
skapar líka tækifæri til að gera nýja
hluti. Við hefjum t.d. skóla síðar á
morgnana fyrir unglingana okkar
eða klukkan 8:30 og höfum einnig
tekið upp klukkutíma kennslu-
stundir sem hafa reynst afar vel. Það
eru bara spennandi tímar framundan
í Akurskóla.“
Hilmar Egill, skólastjóri í Vogum, mælir með því að enda góða dagsferð á Papas í Grindavík.
Öll orðin meistarar í að haga seglum eftir vindi
SKRÝTIN STAÐA AÐ VERA Í SKÓLA
ÞAR SEM NEMENDUM FÆKKAR
– segir Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla, sem fór talsvert í golf í sumar
og segir göngustígana í Reykjanesbæ mjög heillandi.
Norðfjörðurinn
er alltaf fallegastur
– segir Eysteinn Þór Kristinsson, nýráðinn
skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur.
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 13