Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2021, Síða 23

Víkurfréttir - 01.09.2021, Síða 23
Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020-2035 Reykjanesbær kynnir vinnslutillögu Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2020-2035 samkvæmt 30. gr. skipulagslaga. Reykjanesbær kynnir vinnslutillögu Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2020-2035 samkvæmt 30. Gr. skipulagslaga. Vinnslutillagan er aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar frá og með 2. september til 20. september 2021. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 20. september 2021. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is Reykjanesbær, 2. september 2021. Skipulagsfulltrúi. Viltu vinna með litlum snillingum? Reykjanesbær óskar eftir áhugasömum umsækjendum um leyfi til daggæslu barna í heimahúsum. Upplýsingar má sjá inni á heimasíðu Reykjanesbæjar. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi í síma 421-6700. Íslandsmótinu fer að ljúka og spennan magnast Það er að líða að lokum Íslandsmótsins í knattspyrnu en það getur brugðið til beggja vona á flestum vígstöðvum. Spennan er mikil hjá flestum Suðurnesjaliðanna sem eru ýmist í topp- eða botnbaráttunni hvert í sinni deild. Keflvíkingar í þokkalegum málum Þegar þrjár umferðir eru eftir af Pepsi Max-deild karla eru Keflvík- ingar í níunda sæti með átján stig. Það er mikil spenna milli liðanna í neðstu sætunum en neðstir eru Skagamenn (12 stig), þar fyrir ofan er Fylkir (16 stig) og svo HK í sætinu fyrir neðan Keflavík (17 stig). Næstu lið fyrir ofan Keflavík eru Leiknir og Stjarnan (bæði með 22 stig). Keflvíkingar eru í ágætis stöðu eins og staðan er nú en mega samt ekki við því að misstíga sig á loka- metrunum. Keflavík á eftir að spila heima- leik gegn KR (4. sæti), útileik gegn Leikni (8. sæti) og lokaleikurinn verður gegn ÍA (12. sæti) á HS Orku- vellinum. Mikilvæg stig gegn Tindastóli Í Pepsi Max-deild kvenna er svipaða sögu að segja. Keflvíkingar er ekki í fallsæti en þær eru í þriðja neðsta sæti með sextán stig þegar tveir leikir eru eftir. Þar fyrir neðan eru Fylkir (13 stig) og Tindastóll (11 stig). Þá eru næstu lið fyrir ofan Keflavík Þór/KA (18 stig) og ÍBV (19 stig). Keflavík mætir Val í næstu umferð á Hlíðarenda en Valskonur eru þegar búnar að tryggja sér Íslandsmeist- aratitilinn. Lokaleikur Keflavíkur verður heimaleikur gegn Þór/KA. Keflvíkingar bættu stöðu sína til muna með góðum 0:1 sigri á Tinda- stóli fyrir norðan í síðasta leik og á sama tíma náði Fylkir aðeins jafnt- efli.Pepsi Max-deild kvenna: Pepsi Max-deild karla: Ástbjörn Þórðarson hefur verið mjög öflugur í sumar. Aerial Chavarin hefur skorað sex mörk fyrir Keflavík. Lánlausir Grindvíkingar Grindvíkingar eru væntanlega mjög ósáttir með gengi sitt í Lengjudeild karla í ár en það virðist ekkert hafa fallið með þeim í sumar. Stefna þeirra var að komast upp í efstu deild en þeir sitja nú í sjöunda sæti með 23 stig. Grindavík er um miðja deild og fer hvorki upp né niður en nú er bara spurning fyrir Grindvíkinga að rífa sig í gang og fara að vinna leiki fyrir sálina. Þeir leikir sem Grindavík á eftir eru gegn toppliði Fram á heimavelli um næstu helgi, þá mæta þeir Aftureldingu í Mosfellsbænum og enda á heimavelli gegn Víkingi Ólafsvík. Eru á góðu róli núna Kvennalið Grindavíkur hefur bætt stöðu sína á seinni hluta Lengjudeildar kvenna en þær voru lengst af í neðsta sæti. Það var ekki fyrr en í tólftu umferð að hlut- irnir fóru að ganga upp hjá þeim og þær unnu sig upp í þá stöðu sem þær eru í núna. Grindavík er samt ekki alveg sloppið fyrir horn því mjög stutt er milli neðstu liða, Augnablik er á botninum (11 stig), ÍA í næstneðsta sæti (14 stig), þá kemur HK (15 stig) og Grótta er jafnt Grindavík að stigum (16 stig) en með talsvert lakari mar- kamun. Síðustu tveir leikir verða gegn HK (8. sæti) heima og Víkingi (4. sæti) á útivelli í lokaumferðinni. Lengjudeild karla: Sigurður Bjartur Hallsson hefur skila góðu verki í sumar og er án efa sá albesti í liði Grindavíkur. Lengjudeild kvenna: Kvennalið Grindavíkur hefur stöðugt bætt leik sinn eftir erfiða byrjun á mótinu. Snúin staða í annarri deild karla Í annarri deild karla er allt í hnút á toppnum. Toppliði Þróttar misstókst að tryggja sér sæti í næstefstu deild í síðustu umferð þegar þeir töpuðu fyrir Völsungi á útivelli. Þróttur fékk á sig slysalegt mark snemma í leiknum en Völsungur missti mann út af skömmu síðar. Þrátt fyrir að vera manni fleiri lungann úr leiknum og sækja stíft tókst Þrótturum ekki að skora og norðanmenn héldu fengnum hlut. Þeir eru nú komnir í annað sæti, tveimur stigum frá Þrótti. Þegar þrjár umferðir eru eftir í annarri deild hefur Þróttur 38 stig í efsta sæti. Næstu lið eru Völsungur (36 stig), KV (34 stig) og Njarðvík (32 stig). Reynismenn sigla lygnan sjó í áttunda sæti með 26 stig og hafa tryggt sér áframhaldandi veru í deildinni. Þróttarar eru með pálmann í höndunum og Njarðvíkingar eygja enn von um að vinna sig upp um deild. Úrslitin gætu ráðist í síðustu umferðinn þar sem Þróttarar leika gegn KV (3. sæti) og Njarðvík gegn Völsungi (2. sæti). Það eru því mjög spennandi lokaumferðir framundan í deildinni eins og hjá flestum Suður- nesjaliðunum. Síðustu leikir Suðurnesjaliðanna í annarri deild eru þessir: Kári - Þróttur, Njarðvík - Reynir, Þróttur - Magni, Leiknir F. - Njarðvík Reynir - Fjarðabyggð, KV - Þróttur, Njarðvík - Völsungur og ÍR - Reynir. Víðismenn áfram í þriðju deild Víðismenn munu leika áfram í þriðju deild á næsta ári en þeir fóru ekki vel af stað í deildinni. Víðir er í áttunda sæti með 25 stig og á fjóra leiki eftir óleikna, af þeim er frestaður leikur úr fimm- tándu umferð. Víðir og Dalvík/Reynir eru jöfn að stigum (25 stig) og eiga bæði leik til góða en liðin fyrir neðan þau eru öll búin með nítján leiki. Þau eru; Augnablik (22 stig), ÍH (17 stig), Einherji (16 stig) og Tindastóll (14 stig). Lokaleikir Víðis eru gegn Tindastóli heima, KFG úti, Augnabliki heima og Einherja úti. Tekst Hemma og félögum að vinna Þrótti sæti í næstefstu deild í fyrsta sinn í sögunni? Njarðvíkingar eiga enn möguleika á að komast upp. vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 23

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.