Víkurfréttir - 01.09.2021, Qupperneq 23
Aðalskipulag
Reykjanesbæjar
2020-2035
Reykjanesbær kynnir vinnslutillögu
Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2020-2035
samkvæmt 30. gr. skipulagslaga.
Reykjanesbær kynnir vinnslutillögu
Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2020-2035
samkvæmt 30. Gr. skipulagslaga.
Vinnslutillagan er aðgengileg á heimasíðu
Reykjanesbæjar frá og með 2. september til
20. september 2021. Þeim sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á
að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til
20. september 2021. Skila skal inn skriflegum
athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á
Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ eða á netfangið
skipulag@reykjanesbaer.is
Reykjanesbær, 2. september 2021.
Skipulagsfulltrúi.
Viltu vinna
með litlum
snillingum?
Reykjanesbær óskar eftir
áhugasömum umsækjendum
um leyfi til daggæslu barna
í heimahúsum.
Upplýsingar má sjá inni á heimasíðu
Reykjanesbæjar. Nánari upplýsingar
veitir Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir,
leikskólafulltrúi í síma 421-6700.
Íslandsmótinu fer að ljúka og spennan magnast
Það er að líða að lokum Íslandsmótsins í knattspyrnu en það getur brugðið til beggja vona á flestum vígstöðvum.
Spennan er mikil hjá flestum Suðurnesjaliðanna sem eru ýmist í topp- eða botnbaráttunni hvert í sinni deild.
Keflvíkingar í þokkalegum málum
Þegar þrjár umferðir eru eftir af
Pepsi Max-deild karla eru Keflvík-
ingar í níunda sæti með átján stig.
Það er mikil spenna milli liðanna
í neðstu sætunum en neðstir eru
Skagamenn (12 stig), þar fyrir ofan
er Fylkir (16 stig) og svo HK í sætinu
fyrir neðan Keflavík (17 stig). Næstu
lið fyrir ofan Keflavík eru Leiknir og
Stjarnan (bæði með 22 stig).
Keflvíkingar eru í ágætis stöðu
eins og staðan er nú en mega samt
ekki við því að misstíga sig á loka-
metrunum.
Keflavík á eftir að spila heima-
leik gegn KR (4. sæti), útileik gegn
Leikni (8. sæti) og lokaleikurinn
verður gegn ÍA (12. sæti) á HS Orku-
vellinum.
Mikilvæg stig gegn Tindastóli
Í Pepsi Max-deild kvenna er svipaða
sögu að segja. Keflvíkingar er ekki
í fallsæti en þær eru í þriðja neðsta
sæti með sextán stig þegar tveir
leikir eru eftir. Þar fyrir neðan eru
Fylkir (13 stig) og Tindastóll (11 stig).
Þá eru næstu lið fyrir ofan Keflavík
Þór/KA (18 stig) og ÍBV (19 stig).
Keflavík mætir Val í næstu umferð
á Hlíðarenda en Valskonur eru þegar
búnar að tryggja sér Íslandsmeist-
aratitilinn. Lokaleikur Keflavíkur
verður heimaleikur gegn Þór/KA.
Keflvíkingar bættu stöðu sína til
muna með góðum 0:1 sigri á Tinda-
stóli fyrir norðan í síðasta leik og á
sama tíma náði Fylkir aðeins jafnt-
efli.Pepsi Max-deild kvenna:
Pepsi Max-deild karla:
Ástbjörn Þórðarson
hefur verið mjög
öflugur í sumar.
Aerial Chavarin
hefur skorað sex
mörk fyrir Keflavík.
Lánlausir Grindvíkingar
Grindvíkingar eru væntanlega mjög ósáttir með gengi
sitt í Lengjudeild karla í ár en það virðist ekkert hafa
fallið með þeim í sumar. Stefna þeirra var að komast upp
í efstu deild en þeir sitja nú í sjöunda sæti með 23 stig.
Grindavík er um miðja deild og fer hvorki upp né niður
en nú er bara spurning fyrir Grindvíkinga að rífa sig í
gang og fara að vinna leiki fyrir sálina.
Þeir leikir sem Grindavík á eftir eru gegn toppliði Fram
á heimavelli um næstu helgi, þá mæta þeir Aftureldingu
í Mosfellsbænum og enda á heimavelli gegn Víkingi
Ólafsvík.
Eru á góðu róli núna
Kvennalið Grindavíkur hefur bætt stöðu sína á seinni
hluta Lengjudeildar kvenna en þær voru lengst af í
neðsta sæti. Það var ekki fyrr en í tólftu umferð að hlut-
irnir fóru að ganga upp hjá þeim og þær unnu sig upp
í þá stöðu sem þær eru í núna. Grindavík er samt ekki
alveg sloppið fyrir horn því mjög stutt er milli neðstu
liða, Augnablik er á botninum (11 stig), ÍA í næstneðsta
sæti (14 stig), þá kemur HK (15 stig) og Grótta er jafnt
Grindavík að stigum (16 stig) en með talsvert lakari mar-
kamun.
Síðustu tveir leikir verða gegn HK (8. sæti) heima og
Víkingi (4. sæti) á útivelli í lokaumferðinni.
Lengjudeild karla:
Sigurður Bjartur Hallsson
hefur skila góðu verki
í sumar og er án efa sá
albesti í liði Grindavíkur.
Lengjudeild kvenna:
Kvennalið Grindavíkur
hefur stöðugt bætt
leik sinn eftir erfiða
byrjun á mótinu.
Snúin staða í annarri deild karla
Í annarri deild karla er allt í hnút á
toppnum. Toppliði Þróttar misstókst
að tryggja sér sæti í næstefstu deild
í síðustu umferð þegar þeir töpuðu
fyrir Völsungi á útivelli. Þróttur
fékk á sig slysalegt mark snemma í
leiknum en Völsungur missti mann
út af skömmu síðar. Þrátt fyrir að
vera manni fleiri lungann úr leiknum
og sækja stíft tókst Þrótturum ekki
að skora og norðanmenn héldu
fengnum hlut. Þeir eru nú komnir
í annað sæti, tveimur stigum frá
Þrótti.
Þegar þrjár umferðir eru eftir í
annarri deild hefur Þróttur 38 stig í
efsta sæti. Næstu lið eru Völsungur
(36 stig), KV (34 stig) og Njarðvík
(32 stig). Reynismenn sigla lygnan
sjó í áttunda sæti með 26 stig og
hafa tryggt sér áframhaldandi veru
í deildinni.
Þróttarar eru með pálmann í
höndunum og Njarðvíkingar eygja
enn von um að vinna sig upp um
deild. Úrslitin gætu ráðist í síðustu
umferðinn þar sem Þróttarar leika
gegn KV (3. sæti) og Njarðvík gegn
Völsungi (2. sæti). Það eru því mjög
spennandi lokaumferðir framundan
í deildinni eins og hjá flestum Suður-
nesjaliðunum.
Síðustu leikir Suðurnesjaliðanna
í annarri deild eru þessir:
Kári - Þróttur, Njarðvík - Reynir,
Þróttur - Magni, Leiknir F. - Njarðvík
Reynir - Fjarðabyggð, KV - Þróttur,
Njarðvík - Völsungur og ÍR - Reynir.
Víðismenn áfram
í þriðju deild
Víðismenn munu leika áfram í
þriðju deild á næsta ári en þeir
fóru ekki vel af stað í deildinni.
Víðir er í áttunda sæti með 25
stig og á fjóra leiki eftir óleikna, af
þeim er frestaður leikur úr fimm-
tándu umferð.
Víðir og Dalvík/Reynir eru jöfn
að stigum (25 stig) og eiga bæði
leik til góða en liðin fyrir neðan
þau eru öll búin með nítján leiki.
Þau eru; Augnablik (22 stig), ÍH
(17 stig), Einherji (16 stig) og
Tindastóll (14 stig).
Lokaleikir Víðis eru gegn
Tindastóli heima, KFG úti,
Augnabliki heima og Einherja úti.
Tekst Hemma og félögum að
vinna Þrótti sæti í næstefstu
deild í fyrsta sinn í sögunni?
Njarðvíkingar eiga enn
möguleika á að komast upp.
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 23