Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2021, Qupperneq 24

Víkurfréttir - 01.09.2021, Qupperneq 24
Til staðar fyrir þig Þú færð persónulega þjónustu og ráðgjöf í 22 útibúum og þjónustuskrifstofum Sjóvá um land allt. Grafinn hefur verið skurður í mynni Nátthaga og í hann lagðar lagnir, rör og ýmsar tegundir af ein- angrunar- eða fylliefnum. Landsnet hefur fengið afnot af öðrum enda skurðsins og í hann er settur strengsandur og hann þjappaður eftir kúnstarinnar reglum. Hita- mælar settir í skurðinn og svo er fyllt upp í hann. „Svo bíðum við spennt og von- umst til þess að hraunið renni yfir skurðinn. Heppnist þessi tilraun von- umst við til þess að eignast mæli- niðurstöður sem telja má einstakar á heimsvísu og verða mjög mikilvægt innlegg í vitneskju um áhrif hraun- flæðis á jarðstrengi og aðra innviði sem grafnir eru í jörðu,“ segir í færslu Landsnets á Facebook. Þar segist fyrirtækið bíða spennt eftir að hraun renni yfir skurðinn en fyrirtækið er þátttakandi í spennandi verkefni í Nátthaga við gosstöðvarnar í Fagra- dalsfjalli. Verkefnið snýst um að freista þess að mæla áhrif hraun- rennslis á lagnir í jörðu. Aðilar sem koma að þessu verk- efni eru Almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra, Jarðvísindastofnun Há- skólans, Veðurstofa Íslands, Lands- virkjun, Neyðarlínan 112, Verkís, Verkfræðistofa EFLA, Míla, Gagna- veitan, Tensor, Rafholt ofl. Bíða spennt eftir að hraunið renni yfir skurðinn Frummatsskýrsla um mat á um- hverfisáhrifum um breikkun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði hefur verið lögð fyrir skipulags- yfirvöld í Sveitarfélaginu Vogum. Breikkunin er frá Krýsuvíkurvegi að Hvassahrauni. Skipulagsnefnd Voga tekur vel í framkvæmdina og telur hana auka umferðaröryggi. Sveitarfélagið hefur nýverið í samvinnu við Vegagerðina lagt 2,6 km göngustíg meðfram Vatnsleysustrandarvegi. Fyrirhug- aðir eru stígar á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum og því tilvalið að tekið verði tillit til göngustíga fyrir gangandi og hjólandi við tvöföldun Reykjanesbrautar. Með þeim mögu- lega að í framtíðinni verði eitt sam- fellt stígakerfi frá flugstöð að höfuð- borgarsvæðinu. Tekið verði tillit til göngustíga við breikkun Reykja- nesbrautar FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.