Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ.
ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR
A S TA@A L LT.I S | 560-5507
UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR
U N N U R@A L LT.I S | 560-5506
JÓHANN INGI KJÆRNESTED
J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508
DÍSA EDWARDS
D I S A E@A L LT.I S | 560-5510
ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR
E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509
PÁLL ÞOR BJÖRNSSON
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
Mygla hefur greinst í Myllubakka-
skóla í Keflavík og hafa nokkrir
starfsmenn og nemendur fundið
fyrir verulegum einkennum. Lag-
færingar á þessum sjötuga grunn-
skóla hafa farið fram en hafa ekki
borið fullnægjandi árangur. Skóla-
stjóri Myllubakkaskóla er einn
þeirra sem er í veikindaleyfi vegna
myglunnar en einnig fleiri starfs-
menn.
Nærri tvö ár eru síðan myglan
greindist fyrst að sögn Helga Arnar-
sonar, sviðsstjóra fræðslusviðs
Reykjanesbæjar, en málið hefur
reynst erfiðara en áætlað var. Mygla
hefur fundist á mörgum stöðum í
byggingunni en elsti hluti hennar er
frá árinu 1952.
„Við höfum fengið sjö skýrslur sem
hafa verið unnar eftir sýnatökur og
sýna allar einhverja myglu. Það er
búið að lagfæra fullt en þegar mygla
var farin að finnast víðar í hús-
næðinu var talið rétt að hætta að
vera með einhverjar reddingar og
fara í heildstæðari aðgerðir,“ segir
Helgi.
Málið var tekið fyrir á fundi bæjar-
ráðs Reykjanesbæjar síðastliðinn
fimmtudag. Þar lagði formaður
bæjarráðs til að stofnaðir yrðu tveir
starfshópar sem tækju strax til starfa
við að kanna umfang vandans og
leita leiða til úrbóta eins fljótt og
auðið er.
Annar starfshópurinn myndi
skoða aðgerðir sem snúa að núver-
andi húsnæði en hinn myndi finna
lausn með bráðabirgðahúsnæði ef
þess gerist þörf.
„Við ætlum sem sagt að staldra við
núna og stöðva framkvæmdir sem
voru hafnar eða voru á teikniborðinu
og fá álit frá fleiri sérfræðingum. Við
höfum verið með sérfræðinga með
okkur í þessu en aðrir skólar sem
hafa lent í svipuðum málum hafa
nýtt sér þjónustu fleiri sérfræðinga.
Þetta er stærra vandamál en við
gerðum okkur grein fyrir. Það er
ljóst að það þarf að gera verulegar
endurbætur á þessum elsta grunn-
skóla bæjarins. Nú er tengibygging
í skólanum innsigluð og þar af leið-
andi lokuð en að öðru leyti er allt
annað húsnæði skólans í notkun.
Vonandi gengur okkur vel í þessari
vinnu í starfshópunum og finnum
endanlega lausn á vandamálinu,“
sagði Helgi.
Í Myllubakkaskóla eru um 370
nemendur og kennarar eru á fjórða
tug.
– Skólastjórinn í veikindaleyfi. Starfshópar skipaðir og unnið að heildarlausn.
Mygla í elsta skóla Reykjanesbæjar
Ökumaður sem lögregla hafði af-
skipti af fyrir helgi svaf ölvunar-
svefni undir stýri í bifreið sinni
þegar að var komið. Bifreiðin
var í gangi og tónlist í botni.
Hann var handtekinn og færður
á lögreglustöð.
Annar ökumaður sem hand-
tekinn var fyrr í vikunni sem
leið vegna ölvunaraksturs var
með þriggja ára barn sitt með
sér í bifreiðinni. Tilkynning var
send á barnavernd.
Í bifreið sem stöðvuð var við
hefðbundið eftirlit fundust meint
kannabisefni við leit að fenginni
heimild. Þrjú ólögráða ungmenni
voru í bifreiðinni, ásamt öku-
manni, og var haft samband við
foreldra þeirra og málið tilkynnt
til barnaverndar.
Svaf ölvunar-
svefni undir
stýri með tón-
listina í botni
Leiðarljós
í lífhöfn
Áhugaverð sýning um Reykjanesvita
og sögu sjóslysa við Reykjanes
SJÁIÐ UMFJÖLLUN Í MIÐOPNU
OG Í SUÐURNESJAMAGASÍNI
Myllubakkaskóli verður 70 ára á næsta
ári. Nú herjar mygla á húsnæðið.
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
FLJÓTLEGRI KOSTURINN
Corny súkkulaði
50 gr
FLJ
ÓTLEGRI
KOSTURINN
Mexíkóskt
þema
í kvöld?
Miðvikudagur 20. október 2021 // 39. tbl. // 42. árg.