Víkurfréttir - 20.10.2021, Side 14
Hefurðu fasta rútínu á leikdegi?
„Eina sem ég geri er að passa að ég
sé með næga orku á tanknum þegar
leikurinn byrjar. Ég passa mig á að
borða vel fjórum, fimm tímum fyrir
leik og borða svo eitthvað á milli
fram að leik, t.d. ávexti.“
Hvenær byrjaðir þú í körfu og af
hverju valdirðu körfubolta?
„Ég byrjaði um fimm ára að æfa
körfu. Það er mikill körfubolti í minni
fjölskyldu, pabbi og öll systkini
mín spiluðu körfu þannig það var
einhvern veginn gefið að ég valdi
körfu – en aðalástæðan er sú að
mér finnst körfubolti svo rosalega
skemmtilegur og finnst það ennþá
í dag.“
Hver er besti körfuboltamaður
allra tíma?
„Michael Jordan [NBA: Chicago
Bulls].“
Hver er þín helsta fyrirmynd?
„Ég horfði mikið upp til bræðra
minna.“
Hvert er eftirminnilegasta at-
vikið á ferlinum?
„Þegar við urðum Íslandsmeistarar
tvö ár í röð. Svo verð ég að segja at-
vikið inn í Ásgarði þegar ég fór úr lið
á ökklanum! Erfitt að gleyma því.“
Hver er besti samherjinn?
„Þeir eru svo margir gæti talið enda-
laust upp.“
Hver er erfiðasti andstæðing-
urinn?
„Hlynur Bæringsson.“
Hver eru markmið þín á þessu
tímabili?
„Mín markmið er að sjálfsögðu að
verða Íslands- og bikarmeistarar.
Svo að hjálpa liðinu mínu að vera
betra með hverjum degi.“
Hvert stefnir þú sem íþrótta-
maður?
„Alltaf á toppinn.“
Hvernig væri fimm manna úr-
valslið þitt skipað með þér?
„C: Tryggvi Snær Hlinason (Basket
Zaragoza), PF: Ólafur Ólafur
(Grindavík), SF: Haukur Helgi
Pálsson (Njarðvík), SG: Martin Her-
mannsson (Valencia), PG: Elvar Már
Friðriksson (Antwerp Giants).“
Fjölskylda/maki:
„Katrín Ösp Eyberg Rúnarsdóttir,
Írena Eyberg Ólafsdóttir og Ölver
Óli Ólafsson.“
Hvert er þitt helsta afrek fyrir
utan körfuboltann?
„Börnin mín.“
Áttu þér áhugamál fyrir utan
körfuboltann?
„Fótbolti, píla og útivist.“
Ef þú ætlar að gera vel við þig,
hvað gerirðu?
„Borða góðan mat, slappa af og
eyða tíma með fjölskyldunni minni. “
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Saltfiskur.“
Ertu öflug(ug) í eldhúsinu?
„Já, þegar ég ákveð að elda þá er
ég „all in“ og það má enginn hjálpa
mér.“
Býrðu yfir leyndum hæfileika?
„Já, ég syng ágætlega.“
Er eitthvað sem fer í taugarnar
á þér?
„Óstundvísi. Þoli ekki að vera seinn
eða þegar fólk mætir seint.“
NAFN:
ÓLAFUR ÓLAFSSON
ALDUR:
30 ÁRA
TREYJA NÚMER:
14
MOTTÓ:
TAKA EINN DAG Í EINU OG VERA ÞAKKLÁTUR FYRIR
FÓLKIÐ Í LÍFINU ÞÍNU. KOMA FRAM VIÐ NÁUNGANN
EINS OG ÞÚ VILT AÐ NÁUNGINN KOMI FRAM VIÐ ÞIG.
Mér finnst körfubolti svo rosalega skemmtilegur
Ólafi finnst ennþá rosa-
lega gaman í körfubolta.
Ivan Aurrecoechea Alco-
lado, liðsfélagi hans, virðist
ekki skemmta sér síður.
Hlynur Bæringsson í
leik gegn Keflavík.
Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson er einn af leikreyndari mönnum Subway-deildar
karla. Hann hefur leikið 38 leiki fyrir Íslands hönd með A-landsliði karla auk þess
að leika með liðum í Frakklandi og Þýskalandi. Ólafur svaraði nokkrum laufléttum
spurningum Víkurfrétta í uppleggi vikunnar.
NAFN:
HELGA JARA BJARNADÓTTIR.
ALDUR:
TÓLF ÁRA.
SKÓLI:
GRUNNSKÓLI GRINDAVÍKUR.
HVAÐ ERTU BÚIN AÐ ÆFA KÖRFUBOLTA LENGI?
SJÖ ÁR.
HVAÐ FINNST ÞÉR SKEMMTILEGAST VIÐ KÖRFUBOLTA?
SPILA HANN.
HEFURÐU EIGNAST MARGA VINI Í KÖRFUBOLTANUM?
JÁ.
HVERJIR ERU BESTU LEIKMENN GRINDAVÍKUR KARLA OG KVENNA?
ÞAÐ ERU MARGIR EN IVAN, NAOR OG TRAVIS ERU GÓÐIR OG Í
KVENNA ERU ROBBY OG HEKLA EN SÆDÍS ER BESTI ÞJÁLFARINN.
HVER ER BESTUR Í HEIMI?
LEBRON [JAMES, NBA: L.A. LAKERS]
UPPRENNANDI KÖRFUBOLTASNILLINGUR Í GRINDAVÍK
STAÐA Á VELLINUM:
LÍTILL FRAMHERJI (SMALL FORWARD),
KRAFTFRAMHERJI (POWER FORWARD)
Miðvikudagur 20. október 2021 // 39. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is