Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 3

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 3
Ávarp „Fundi var slitið, og fór hver til síns heima með þá öruggu vissu og óbil- andi trú, að hér hefði verið stigið það spor sem opna myndi dyrnar að manniífinu fyrir fatlað fólk, ekki ein- göngu hér í okkar heimabyggð held- ur víðsvegar annars staðar um land- ið, þegar tímar líða.“ Þannig lauk fyrstu fundargerð stofnfundar Sjálfsbjargarfélagsins á Siglufirði í júní 1958. A þeim 30 árum sem liðin eru síðan Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra var stofnað má segja að þessi orð hafi að verulegu leyti ræst. Gjörbreyting hefur orðið á viðhorfum til fólks sem fatlað má teljast og aðstæðum öllum í þjóðfélaginu. Á þeim tíma voru fatlaðir félagslega ein- angraðir, voru lítið á ferli í þjóðfélaginu og sú skoðun var ríkjandi að fólk í hjólastól væri til fárra hluta nýtt. Ekki var heldur um auðugan garð að gresja þegar litið var til stofnana fyrir fatlaða eða á húsnæðismál þeirra að öðru leyti. í dag er þetta mikið breytt. í dag taka margir fatlaðir virkan þátt í þjóðlífinu, búa margir hverjir í almennu íbúðarhúsnæði, fara á skemmtanir, í verslanir og þar fram eftir götum. Smám saman hafa menn gert sér grein fyrir því að fólk sem er fatlað, er ekkert öðruvísi en annað fólk ef frá er skilin líkamleg hömlun. Allt frá stofnun hefur Sjálfsbjörg getað treyst á stuðning og velvilja almennings og fyrirtækja í landinu. Nægir í því sambandi að nefna þann geysilega stuðning sem Sjálfsbjörg hefur notið við byggingu Vinnu- og dvalarheimilis síns að Hátúni 12 í Reykjavík. Á þessu 30 ára afmælisári okkar höfum við Sjálfsbjargarfélagar enn einu sinni fundið hve ríkan stuðning við eigum hjáþjóðinni. Það varokkurómetan- legt að finna hve vel okkur var tekið á öll- um sviðum og hve jákvæður almenningur var gagnvart baráttumálum okkar. Fyrir þetta og stuðninginn öll þessi 30 ár kunn- um við ykkur bestu þakkir. En þó að margt hafi unnist á 30 árum þá er margt enn óunnið. Það ár sem nú fer í hönd er norrænt ferðamálaár. Hvernig er ferðamálum háttað, t.d. með tilliti til að- gengis fatlaðra hér á landi? Kröfur breyt- ast líka í tímans rás og það húsnæði sem fyrir 30 árum hefði verið talið geysileg bylt- ing er í dag ekki nægjanlegt. Stórátak þarf því að gera í húsnæðismálum sem og mörgum öðrum hagsmuna- og baráttu- málum fatlaðra. Einkunnarorð Sjálfsbjarg- ar eru því enn í fullu gildi en þau eru: „Alltaf beita upp í vindinn, eygja, klífa hæsta tindinn.“ Saman getum við Sjálfsbjargarfélagar og þjóðin stuðlað að því, að á þessu af- mælisári okkar rætist einkunnarorð árs- ins: „Betri framtíð byrjar í dag.“ Jóhann Pétur Sveinsson formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra SJÁLFSBJÖRG 3

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.