Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Síða 7
Vinnustofur starfræktar á ísafirði. Vestur á ísafirði réðust félagar i
það þrekvirki að koma á fót vinnustofu fyrir fatlaða, þeirri fyrstu sem sett
var á fót í landinu. Félagið fékk húsnæði í kjallara íþróttahússins á staðn-
um og kom þar fyrir prjóna- og saumavélum.
löggjöf um húsnæðismál fatl-
aðra í sama anda og upphafleg
lög um verkamannabústaði.
Tillögur stofnþingsins um
tryggingamál voru ítrekaðar og
bætt við nýjum, svo sem þeirri
að krefjast vísitölubindingar
örorkulífeyris.
Við stjórnarkjör lét Emil
Andersen af forsetaembætti en
við því tók TheodórA. Jónsson
úr Reykjavík.
1961
ÖBÍ stofnað
Þann 5. maí var haldinn stofn-
fundur Öryrkjabandalags Is-
lands. Þar sameinuðust sex fé-
lög öryrkja og styrktarfélög í
einu bandalagi. Félögin voru:
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra, Blindrafélagið,
Blindravinafélag Islands, Sam-
band íslenskra berklasjúk-
Iinga, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra og Styrktarfélag van-
gefinna.
Þessi stofnun Öryrkjabanda-
Landssambandið fékk inni í
stórhýsi SÍBS við Bræðraborgar-
stíg haustið 1960. Þar var opnuð
skrifstofa þann 1. október og var
hún fyrst um sinn aðeins opin á
kvöldin. Sinntu félagsmenn henni
fram í nóvember en þá var Trausti
Sigurlaugsson ráðinn til að veita
henni forstöðu og var hún eftir það
opin á venjulegum skrifstofutíma.
Trausti hafði búið á Isafirði og var
fyrsti formaður félagsins þar.
lagsins átti sér nokkurn að-
draganda. Það var haustið 1959
að Ólöf Ríkarðsdóttir sem þá
var ritari Sjálfsbjargar boðaði
Blindrafélagið og SÍBS til
fundar um samstarf að hags-
munamálum öryrkja. Sam-
starfið tókst svo vel að árið eftir
var skipuð þriggja manna
nefnd tií að gera tillögur um
stofnun bandalags. Nefndin
boðaði svo áðurnefnd sex félög
á fund í febrúar 1961 og í maí
var Öryrkjabandalagið orðið
að veruleika.
Tilgangur bandalagsins var
bundinn í lögum þess:
1. að koma fram fyrir hönd ör-
yrkja gagnvart opinberum
aðilum.
2. að reka vinnumiðlunar- og
upplýsingaskrifstofu fyrir
öryrkja.
3. að koma á samstarfi við fé-
lagasamtök erlendis, er
vinna á líkum grundvelli og
hagnýta reynslu þeirra í
þágu bandaíagsins.
4. að vinna að öðrum sameig-
inlegum málefnum öryrkja.
Húseign
keyptá
Siglufirði
.Sjálfsbjörg á Siglufirði réðst í
það á árinu að kaupa húsnæði
undir starfsemi sína. Festi fé-
lagið kaup á neðstu hæð Tún-
götu 11 og var strax hafist
handa við að koma þar upp
vinnustofu. Keyptar voru vélar
til saumaskapar og snemma árs
1962 settust þar fjórar stúlkur
við sauma. Unnu þær samfleytt
í þrjá mánuði og bjuggu til 500
dúsín af vinnuvettlingum.
Voru birgðir þá farnar að safn-
ast upp og því gert hlé á sauma-
skapnum um skeið.
Það gefur auga leið að 58
manna félag hefur ekki ráðið
eitt og óstutt við slíkar fram-
kvæmdir. Félagið fékk hins
vegar lán úr Erfðafjársjóði til
framkvæmdanna og gekkst
Siglufjarðarbær í ábyrgð fyrir
láninu.
SJÁLFSBJÖRG 7