Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Síða 8

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Síða 8
Tekjur af sælgætis- sölu Milliþinganefnd sem Alþingi skipaði árið 1959 til að fjalla um málefni öryrkja skilaði af sér ári síðar tillögum þar sem ma. var gert ráð fyrir því að á hvert kíló sælgætis sem fram- leitt er í landinu skyldi lagt 3 kr. gjald og rynni það til fatl- aðra og samtaka þeirra. Á Al- þingi veturinn 1961-62 var þessi tillaga samþykkt og var þessi skipan við lýði í 10 ár. Félag stofhað á Suður- nesjum 10. desember var stofnað nýtt Sjálfsbjargarfélag á Suðurnesj- um og hefur það aðsetur í Keflavík. Stofnendur félagsins voru 22 en auk þess voru 7 styrktarfélagar á stofnfundi. Formaður var kjörinn Falur Guðmundsson en hann lést skömmu eftir stofnfundinn. í hans stað var þá kjörinn Ágúst Jóhannesson úr Keflavík. Norrænt samstarf hefst Sumarið 1961 var haldinn í Nor- egi stjómarfundur í VNI, Banda- lagi fatlaðra á Norðurlöndum. Um vorið barst Sjálfsbjörg boð um að senda fulltrúa á þennan fund. Var ætlunin að ræða þar upptöku Sjálfsbjargar í nor- rænu samtökin. Ólöf Ríkarðsdóttir fór utan í ágúst og sat stjórnarfundinn. Þar var samþykkt samhljóða að veita Sjálfsbjörg aðild að VNI. Á fundinum fluttu fulltrú- arnir skýrslu um stöðu öryrkja- mála í hverju landi fyrir sig. Eftir fundinn sat Ólöf þing landssambands fatlaðra í Nor- egi og kynnti sér rekstur ör- yrkjaheimila þar í landi. Með þessu má segja að norrænt samstarf fatlaðra og samtaka þeirra hafi formlega hafist en allar götur síðan hefur Sjálfs- björg getað sótt hugmyndir og stuðning til bræðrasamtakanna á Norðurlöndunum. 1962 Félag stofnað á Sauðárkróki Þann 11. mars var stofnað Sjálfsbjargarfélag á Sauðar- króki og teljast aðalfélagar vera 62 en styrktarfélagar 196. Komst ekkert annað félag í hálfkvisti við nýja félagið hvað fjölda styrktarfélaga varðar. Formaður félagsins var kjörinn Konráð Þorsteinsson. Starfsemi þessa nýja félags varð strax mjög blómleg. Bæj- arstjórn Sauðárkróks veitti því 7.500 kr. styrk á fyrsta starfsári og á bögglauppboði sem haldið var á sumardaginn fyrsta, rúm- um mánuði eftir stofnfund, söfnuðust 7.877 kr. Um sumar- ið var því ráðist í að kaupa gamalt hús sem flutt var á nýj- an grunn sem Kaupfélag Skag- firðinga gaf félaginu. Nokkur dráttur varð þó á að húsið kæmist í notkun þar sem í því kviknaði vorið 1964. Húsakaup og ársþing á ísafirði Félagsstarfið á ísafirði hefur staðið með miklum blóma og á þessu ári réðst félagið í það að kaupa húsnæði í félagi við Berklavörn. Ársþing Sjálfs- bjargar, það fjórða í röðinni, var haldið á ísafirði um vorið og þótti takast ágæta vel. í fundargerð af ársþinginu sem Jón Þór Buch færði er að finna hugleiðingar hans um fyrir- komulag ársþinganna og eru þær svohljóðandi: „Sú venja hefur skapazt að ársþing Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, séu haldin á vegum ein- stakra deilda þess, sem víð- ast um landið. Þó að því fyr- irkomulagi fylgi ókostir nokkrir, þá veitir það á hinn bóginn fulltrúum svo mikla kynningu á staðháttum og aðstæðum deildanna, þar sem þingin eru háð, að það er mjög mikils virði fyrir samtökin í heild.“ 1963 Stjómar- fundur VNI í Rvík Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, var nú fullgildur aðili 8 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.