Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 9
Vinnuver á ísafirði. í húsi því að Mjallargötu 5 sem Sjálfsbjörg og
Berklavörn keyptu af Útvegsbankanum sumarið 1962 var komið fyrir
vinnustofu félaganna sem fram til þess tíma hafði verið til húsa í kjallara
sundhallarinnar. Vinnustofunni var gefið nafnið Vinnuver og var þar hald-
ið áfram að prjóna sokka og vettlinga, að ógleymdum hinum geysivin-
sælu „gammósíubuxum" sem þóttu hreint afbragð.
að norrænu samstarfi fatlaðra.
Til marks um það má nefna að
á þessu sumri var haldinn í
Reykjavík stjórnarfundur
Bandalags fatlaðra á Norður-
löndum. Samtök þessi voru
stofnuð árið 1946 og var félaga-
tala þeirra 1963 um 85.000
manns.
Landssambandið eignast fundarhamar. Á fimmta ársþinginu
gáfu félagsdeildirnar landssambandinu þennan fallega fundarhamar
sem Ríkarður Jónsson myndhöggvari skar út í fílabein og hreindýrshorn.
í hann er skorið merki Sjálfsbjargar sem Ríkarður teiknaði og vísupartur
eftir hann sem eru einkunnarorð samtakanna:
„AHtafbeita upp í vindinn,
eygja, klífa hæsta tindinn. “
Sjálfsbjörg
í Reykjavík
kaupir hús
Félagið í Reykjavík hefur frá
stofnun verið í leiguhúsnæði en
á þessu ári festi félagið kaup á
jarðhæð hússins númer 2 við
Marargötu. Þar var aðstaða
fyrir fundi og föndurvinnu og
ætlunin að koma þar á fót
vinnustofu þegar fram líða
stundir.
Eftirgjöf
tolla á
bifreiðum
Ferlimál fatlaðra hafa verið eitt
af helstu baráttumálum Sjálfs-
bjargar frá stofnun. Þar hefur
verið sótt eftir því til ríkisvalds-
ins að tollar af bílum sem fatl-
aðir kaupa verði gefnir eftir.
Ríkið var raunar komið inn á
þessa braut fyrir stofnun Sjálfs-
bjargar en á þessu ári var gerð
breyting á reglunum. Tollaeft-
irgjöfin var hækkuð úr 40 þús-
und krónum á bíl í 70 þúsund
krónur og Ieyfum til úthlutunar
bílum til fatlaðra var fjölgað úr
50 í 150. Þá var samþykkt ný
tollskrá þar sem hjólastólar og
mótorþríhjól voru undanþegin
aðflutningsgj öldum.
Norrænt
samstarf
Sjálfsbjörg komst æ betur inn í
norrænt samstarf og snemma í
júní sóttu íslenskir fulltrúar í
fyrsta sinn þing Bandalags fatl-
aðra á Norðurlöndum (VNI)
sem haldið var í Helsinki í
Finnlandi. Þing bandalagsins
eru haldin fjórða hvert ár og að
þessu sinni sóttu 150 fulltrúar
frá öllum Norðurlöndum þing-
ið.
SJÁLFSBJÖRG 9