Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 11

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 11
Byggt við Bjarg á Akureyri. Félagsstarf fatlaðra á Akureyri hefur bú- ið við góða aðstöðu í Bjargi en haustið 1962 var hafist handa við að stækka húsið. í viðbyggingunni er gert ráð fyrir 105 fermetra vinnusal sem auðvelt er að stækka þar sem hann tengist fundarsal félagsins. Er ætlunin að 25 manns fái vinnu í vinnustofu sem fyrirhugað er að starf- rækja í viðbyggingunni. varnar á ísafirði. Skemmdist húsið töluvert í eldinum, eink- um vinnustofan sem gjöreyði- lagðist með öllum vélum og efni. Strax var hafist handa við endurbyggingu hússins. Var ákveðið að leggja niður vinnu- stofuna Vinnuver en halda áfram rekstri verslunar sem var í þeim hluta hússins sem lítið skemmdist í eldinum. 1967 966 Fram- kvæmdir hafnar við Sjáifs- bjargar- húsið Þann 28. október hófust fram- kvæmdir við 1. áfanga Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar með því að Eggert Þorsteinsson félagsmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna á lóðinni sem landssambandinu var úthlutað við Hátún. Samkvæmt teikningu verður húsið tvær aðalálmur, 5 hæðir hvor, og einnar hæðar lágbygg- ing. Auk íbúða fyrir fatlaða verða í húsinu skrifstofur, fundarsalur, lækninga- og þjálfunarstöð, vinnustofur, sundlaug ofl. Húsið er 2.377 fermetrar að grunnfleti, 25.000 rúmmettar, þar af fyrsti áfangi 16.820 rúmmetrar. Saman- lagður gólfflötur allra hæða er 7.170 fermetrar. í húsinu verð- ur stórt eldhús og matsalur fyr- ir 100-110 manns. í því verða 12 íbúðir (2 herbergi, eldhús og bað), 24 stór herbergi með baði og forstofu, og 45 einsmanns- herbergi. Eldur eyðir vinnu- stofunni á ísafirði I desember varð sá dapurlegi atburður að eldur kom upp í húsi Sjálfsbjargar og Berkla- Rofin er hula húms og skugga, hafinn dagur nýr, dagur lífs og Ijúfra anna, langur, bjartur, hlýr. Förum saman fram til starfa, fyllum hópinn stóra, djarfa. Vaknandi lífstrú einn og alla að einu marki knýr. Frá trygginga- málanefnd Á níunda landsfundi Sjálfs- bjargar voru að vanda gerðar ýmsar samþykktir, þám. tillög- ur frá tryggingamálanefnd sem ástæða er til að benda á. Sam- þykkt var að beina því til nefndar, sem félagsmálaráðu- neytið hafði í huga að skipa til .að undirbúa löggjöf um endur- hæfingu og dvalarheimili ör- yrkja, að hún beitti sér fyrir eft- irfarandi: að fatlaðir fái sem besta að- stöðu til náms, að tryggður verði fjárhagsleg- Er ekki líkt og haltur hafi hœkju á eldinn fleygt, eða blindur gœfugull í götu sinni eygt, við að skapa verk til þarfa, vinna, nema, lifa, starfa, við að hafa í vinarbrjósti vonarloga kveikt. Söngur Sjálfsbjargar Ljóð: Ásgeir Ingvarsson Lag: Sigursveinn D. Kristinsson SJÁLFSBJÖRG 11

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.