Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 15

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 15
Sumarmót í Húnaveri. Sumarmót Sjálfsbjargar eru fastur liöur í starf- semi félaganna og þykja nauðsynleg til aö hrista saman félagsmenn úr öllum landshornum. I sumar var þaö haldið í Húnaveri og þótti takast vel. Hér sjást þrjú úr Reykjavík í rútunni á leið noröur, frá vinstri: Gestur Sturluson, Ásgerður Þórarinsdóttir og Snæborg Þorsteinsdóttir. 1972 Foreldra- fræðsla í Noregi kynnt í ársritinu gaf að líta grein eftir Tor-Albert Henni, formann Landssambands fatlaðra í Nor- egi, þar sem hann greindi frá námskeiðshaldi fyrir foreldra fatlaðra barna. Henni hafði komið hingað í boði Sjálfs- bjargar og haldið erindi um foreldrafræðsluna. Slíkt námskeiðshald hófst í Noregi árið 1967 þegar Lands- sambandið skipulagði í fyrsta sinn sumarbúðir fyrir foreldra. Náði þetta strax miklum vin- sældum og árið 1971 voru hald- in 59 sumarnámskeið víðsveg- ar um Noreg. Á þessum námskeiðum fengu foreldrar fatlaðra barna fræðslu um réttindi sín og skyldur, ólík afbrigði fötlunar, fjárstuðning hins opinbera, möguleika á vistun barnanna, aðferðir við þjálfun þeirra, að- stæður fatlaðra í skólakerfinu og um ýmis þau vandamál sem ávallt gera vart við sig í uppeldi fatlaðra barna. Lokaorð norska formanns- ins voru á þá leið að þetta fræðslustarf hafi verið foreldr- um fatlaðra barna til ómetan- legs gagns, auk þess sem það hafi vakið athygli fjölmiðla og almennings á starfi og hlut- verki samtaka fatlaðra. ÖryrkjEU' fá undttnþágu frá síma- gjöldum Sjálfsbjörg fór þess á leit við Alþingi að það veitti Lands- síma Islands heimild til að fella niður gjöld af allt að 25 símum hjá tekjulitlum öryrkjum. Varð Alþingi við þessari beiðni og er heimildin nú í gildi. 1973 Sjálfsbjörg berast styrkir vegna Vest- mannaeyja- gossins Þegar jörðin opnaðist og hrakti íbúa Vestmannaeyja á flótta í janúar voru að sjálfsögðu margir fatlaðir í hópi flótta- manna. Samtök fatlaðra í Dan- mörku og Noregi brugðust skjótt við og sendu Sjálfsbjörg gjafir til styrktar fötluðum sem neyðst höfðu til að flýja Eyjar. .Frá Danmörku bárust 500.000 kr. en frá Noregi 790.000 kr. Félagsmála- og upplýs- ingadeild Trygginga- stolnunar ríkisins Það hefur verið eitt helsta bar- áttumál Sjálfsbjargar frá upp- hafi að knýja á um bætta þjón- ustu Tryggingastofnunar ríkis- ins við viðskiptavini sína. Á því sviði varð mikil framför þegar SJÁLFSBJÖRG 15

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.